Landbúnaður

Breytingar á fíkniefnalögum samþykktar
Málefni iðnaðarhamps færast frá Lyfjastofnun til Matvælastofnunar eftir lagabreytingu sem samþykkt var í gær.

Innanhússrannsókn Ernu
Erna Bjarnadóttir, starfsmaður Mjólkursamsölunnar og pennavinkona mín, dregur fáeinar rangar ályktanir í grein sem hún birti hér á Vísi í gær, um Félag atvinnurekenda og fríverzlunarsamning við Bretland. Ég leyfi mér að staldra við tvær.

Félag atvinnurekenda og fríverslunarsamningur við Bretland
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda (FA) fer mikinn þessa dagana vegna kynningar utanríkisráðherra á samningsdrögum að nýjum fríverslunarsamningi við Bretland. Í langri fréttatilkynningu FA um samningsdrögin eru hlutirnir málaðir sterkum litum. Enn og aftur rennur framkvæmdastjórinn til á svellinu, en það er ekki í fyrsta skipti.

Mikið réttlætismál að MS sæti ábyrgð á brotum sínum
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í morgun frávísunarkröfu MS í máli Mjólku gegn MS. Stofnandi Mjólku fagnar úrskurðinum.

Mjöll bar þremur sprelllifandi kálfum
Sá óvenjulegur atburður átti sér stað í gær að kýrin Mjöll á bænum Miðskógi í Dalabyggð bar þremur kálfum, tveimur nautum og einni kvígu. Þríkelfingnum og móður þeirra heilsast vel.

Alþjóðlegi mjólkurdagurinn
Í dag, þann 1. júní, er Alþjóðlegi mjólkurdagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim. Þessum vitundarvakningadegi mjólkurframleiðslunnar var hrundið af stað árið 2001 fyrir tilstilli Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) og því fögnum við 20 ára afmæli þessa framtaks í ár.

Brunaði af vettvangi eftir að hafa ekið niður ær og lamb
Þriðjudaginn 25. maí var bifreið ekið á ær og lamb á Suðurlandsvegi skammt frá Jökulsárlóni og drápust bæði. Bílnum var ekið af vettvangi og ekki tilkynnt um slysið.

„Bæta þarf gæði gagna!“
Undanfarin misseri hefur sjónum mjög verið beint að tölfræði yfir innflutning landbúnaðarvara til landsins. Nokkur harka hefur jafnvel færst í leikinn og er ég þar að vísa til ummæla sem Páll Rúnar M. Kristjánsson hrl. lét falla í Viðskiptablaðinu sem birtist 20. maí sl.

Vogafjós í miklum vandræðum með að fá starfsfólk
Ólöf Hallgrímsdóttir, einn eigandi Vogafjóss í Mývatnssveit segir það sæta mikilli undrun að ekki sé hægt að fá fólk til að vinna í ferðaþjónustu nú þegar ferðamenn streymi til landsins. Hún segir að fólk á lista frá Vinnumálastofnun neiti ítrekað eða svari ekki þegar því er boðin vinna

Fækka héraðsdýralæknum úr fimm í fjóra
Umdæmum héraðsdýralækna Matvælastofnunar verður fækkað úr fimm í fjögur um mánaðamótin. Í fyrra var þeim fækkað úr sex í fimm.

Myndi vilja leggja sig hjá kúnum í Nátthaga og láta hrauna yfir sig
Guðbergur Bergsson rithöfundur heimsótti æskuslóðir sínar á Ísólfsskála í dag þar sem fornleifafræðingar frá Minjastofnun vinna í kappi við hraunrennslið að kanna fornminjar. Sjálfur skoðaði Guðbergur nýja hraunið í Nátthaga þar sem hann var kúasmali á yngri árum.

Álfadís hefur kastað tuttugu folöldum
Hryssan Álfadís er engin venjuleg hryssa því hún var að kasta sínu tuttugasta folaldi. Mörg af folöldum hennar hafa náð frábærum árangri á sínum ferli, meðal annars stóðhesturinn Álfaklettur, sem er hæst dæmdi kynbóta hestur í heimi.

Segir alveg skelfilegt að sjá hraunið stefna á Ísólfsskála
Talsmaður landeigenda Ísólfsskála segir alveg skelfilegt að hraun stefni núna á bæjarstæðið og hvetur til þess að reynt verði bægja því frá með rásum.

Yndisleg sveitaferð heyrnarlausra barna
Það var mikil gleði og ánægja sem skein úr hverju andliti þegar ellefu heyrnarlaus börn eða verulega heyrnarskert heimsóttu sveitabæ í Biskupstungum í Bláskógabyggð í vikunni og fengu að skoða lömbin og að fara á hestbak. Bærinn heitir Myrkholt.

Íslenska ullin í húseingangrun, uppgræðslu lands og umhverfisvæn kælibox
Að einangra hús með ull, uppgræðsla lands með ull, umhverfisvæn kælibox fyrir fisk úr ull og rekjanleiki ullar urðu hlutskörpust í Ullarþoni 2021. Úrslitin voru tilkynnt á HönnunarMars í gær og sýnt var frá verðlaunaafhendingunni í beinni útsendingu á Vís.

Þrettán sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra
Alls bárust þrettán umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem auglýst var þann 30. apríl 2021.

Bein útsending: Kynna skýrslu um leiðir til að bæta afkomu sauðfjárbænda
Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra mun kynna skýrslu um afkomu sauðfjárbænda á Íslandi og leiðir til að bæta hana á streymisfundi sem hefst klukkan 9:30.

Tveir bæir bætast á garnaveikilista
Tveir bæir í Suðurfjarðahólfi hafa bæst við á garnaveikilista Matvælastofnunar. Fyrr á árinu var garðfest að garnaveiki hafi komið upp á bænum Lindarbrekku í Djúpavogshreppi en í því hólfi hefur garnaveiki freinst greinst í sauðfé á einum öðrum bæ síðasta áratuginn.

8 ára „sauðfjárbóndi“ sem les Hrútaskrána
Þó hann sé ekki nema 8 ára er hann búin fyrir löngu að ákveða hvað hann ætlar að verða þegar hann verður stór. Hér erum við að tala um Helga Fannar Oddsson á bænum Hrafnkelsstöðum við Flúðir, sem ætlar sér að verða sauðfjárbóndi. Hrútaskráin er uppáhalds bókin hans.

Fylfullar hryssur geta frestað köstun
Svo undarlega sem það kann að hljóma þá hafa fylfullar hryssur þann hæfileika að geta frestað köstun vegna kuldatíðar eins og vorið í vor hefur verið. Það kom þó ekki í veg fyrir að hryssan Gleði, sem Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra á kastaði hestfolaldi í vikunni.

Af skotvopnum og grasbítum
Í Bændablaðinu þann 15.4.2021 skrifaði Ólafur Arnalds prófessor, grein sem fékk mig til að staldra við.

Brottreksturinn grátbroslegur nú þegar leyfa á heimaslátrun: „Óska engum þess að fara í gegnum þetta“
Sveinn Margeirsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps og fyrrverandi forstjóri Matís, fagnar því að loks standi til að leyfa bændum að slátra sauðfé og geitum á búum sínum og dreifa á markaði.

Vöntun á hrossum til slátrunar
Sláturfélag Suðurlands leitar nú logandi ljósi af hrossum til slátrunar til að uppfylla samning um sölu á fersku hrossakjöt til Sviss.

Jörð með gjósandi eldfjalli fæst keypt fyrir rétt verð
Núna er hægt að kaupa gjósandi eldfjall. Landeigendur gosstöðvanna í Fagradalsfjalli segja jörðina eða hluta hennar fala fyrir rétt verð og eru þegar komnir með tilboð.

Bein útsending: Ræktum Ísland
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til blaðamannafundar um Ræktum Ísland!, umræðuskjal um Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland.

Sauðfjár- og geitabændur mega nú slátra sjálfir
Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra segir að í dag sé verið að ná ákveðnum áfanga, ganga frá regluverki sem gerir sauðfjár- og geitabændum sem vilja slátra sjálfir og markaðssetja vöru sína, það kleift.

Orsakir hækkunar verðlagsvísitölu: Misskilningur leiðréttur
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,7% í apríl samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga mælist nú 4,6% en var 4,3% í mars og hefur ekki mælst meiri síðan í ársbyrjun 2013. Þessi hækkun er meiri en flestir greiningaraðilar höfðu spáð.

Naut réðst á vinnukonu á meðan bóndinn létti á sér
Landsréttur staðfesti á föstudag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem á rætur sínar að rekja alla leið aftur til ársins 2010 þegar naut réðist á konu í ónefndri sveit hér á landi.

Mikil ánægja með einu hestasundlaug landsins
Mikil eftirspurn er eftir því að komast með hesta í einu hestasundlaug landsins þar sem hestarnir fá þjálfun og endurhæfingu í lauginni. Eftir sundsprettinn fara hestarnir í sérstakan þurrkklefa og fá verðlaun fyrir frammistöðu sína í lauginni.

Ríkisjarðir á að selja bændum
Ríkissjóður á fjölda bújarða. Verulegur hluti þeirra er í langtímaábúð, langtímaleigu. Ríkið hefur eignast þessar jarðir með margvíslegum hætti og verður ekki rakið hér frekar.