
Börn og uppeldi

Bókin sem átti aldrei að koma út
Gunnar Helgason hefur sent frá sér bókina Barist í Barcelona en hún er sú fimmta í bókaflokknum Fótboltasagan mikla. Gunnar ætlaði aldrei að skrifa þessa bók. Aðdáendur bókaflokksins létu hann ekki komast upp með annað.

Neysla ungmenna á kókaíni að aukast og verða hættulegri
Víðir Sigrúnarson, læknir á Vogi, það gríðarlegan vanda hve mikil aukning hafi verið í neyslu kókaíns hjá ungu fólki.

Finnst að börn eigi að geta leitað sér aðstoðar vegna kynferðisofbeldis í trúnaði
Sjötíu prósent þeirra sem leituðu til Stígamóta í fyrra gerðu það vegna ofbeldis sem þau voru beitt sem börn. Talskona Stígamóta segir börn hika við að leita sér hjálpar vegna tilkynningarskyldu þess sem hjálpina veitir. Hún vill að börn geti leitað sér aðstoðar í trúnaði.

Hætti strax notkun á hættulegum barnahreiðrum
Barnavöruverslunin Fífa hefur innkallað Cuddle Nest Ergo frá Baby Dan vegna köfnunarhættu.

Andrea og Þorleifur kynntust á Tinder og er nú fjölskyldan að verða tíu manna
Andrea Eyland er 38 ára gömul, höfundur bókarinnar Líf kviknar og stjórnandi þáttarins Líf kviknar en bæði bókin og þættirnir fjalla um getnað, meðgöngu, fæðingu og sængurlegu.

Seinka barneignum og skipuleggja lífshlaupið
Konur á Íslandi eignast börn síðar á lífsleiðinni en áður. Nú er meðalaldur kvenna sem eignast sitt fyrsta barn rúmlega 28 ár. Markþjálfi segir að yngri kynslóðir skipuleggi lífshlaup sitt betur en foreldrar þeirra og seinki barneignum meðal annars vegna þess.

Reynir á trúnaðarmannakerfið að fylgja eftir styttingu vinnuvikunnar
Forseti ASÍ segir að stytting vinnuvikunnar sé stór breyting en á sama tíma mjög spennandi verkefni.

Ofbeldi gegn börnum sýnt í rauntíma á netinu
Er farið að notast við svo kallað beint streymi til að sýna ofbeldið í rauntíma. Barnaheill óskar eftir að almenningur sé vakandi fyrir hvers kyns ofbeldi sem leynist á netinu og tilkynni það hiklaust.

Heiða Björg skipuð forstjóri Barnaverndarstofu
Heiða Björg Pálmadóttir hefur verið skipuð í embætti forstjóra Barnaverndarstofu.

Banna reykingar í Disney-görðum
Þeir verða færri og færri staðirnir þar sem reykingafólk getur dregið að sér smók utandyra. 1. maí fækkar þeim stöðum í Bandaríkjunum þar sem má reykja, meðal þeirra eru Disney-garðarnir.

Barnahús opnað á Akureyri í dag
Útibú Barnahúss, sem þjónusta mun börn sem beitt hafa verið kynferðislegu ofbeldi eða heimilisofbeldi, opnaði formlega á Akureyri í morgun.

Sleggjan í Fjölskyldugarðinn og hringekjan gerð upp
Gestir Fjölskyldu- og húsdýragarðsins hafa tekið eftir að lítið er eftir að hringekjunni sem staðið hefur í garðinum síðustu ár og áratugi.

Hætta að gefa börnum gjafir úr plasti
Íslandsbanki hyggst hætta að gefa börnum gjafavörur úr plasti nú á vormánuðum til að sporna við mengun og sóun, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

„Það lítur út fyrir að Reykjavíkurborg sé ekki annt um öryggi barna“
Íbúar í Seljahverfi í Breiðholti eru uggandi yfir fyrirhugaðri byggingu húsnæðis fyrir fólk með þungan geðrænan vanda, á sömu lóð og félagsmiðstöð barna í hverfinu.

Áttburarnir orðnir tíu ára
Nadya Suleman varð heimsfræg fyrir tíu árum síðan þegar hún eignaðist áttbura eftir glasafrjóvgun.

Gleður börn með dúkkum sem líta út eins og þau
Amy Jandrisevits hefur í fjögur ár skapað dúkkur fyrir börn sem sjá ekki sína líkamlegu eiginleika endurspeglaða í leikföngum.

Leitin hafin að nýjum krúttlegum Zúmma
Drengirnir þrír, Bjartur, Einar og Jóhann, sem hafa leikið fjörálfinn Zúmma í ævintýrum Skoppu og Skrítlu, eru orðnir fullorðnir og svo hávaxnir að nú þarf að finna nýjan. Prufurnar verða á laugardaginn eftir viku í Hörpu.

Rúnar og Eyrún fengu eineggja tvíbura frá brúðkaupsgestunum
Vala Matt heimsótti hjónin Rúnar Geirmundsson, kraftlyftingamann, og Eyrúnu Telmu Jónsdóttur, einkaþjálfara, í Íslandi í dag í gærkvöldi en þau voru búin að reyna að eignast barn í meira en fjögur ár en ekkert gekk.

Fífa innkallar hættulegu barnaburðarpokana
Aðstandendur barnavöruverslunarinnar Fífu hafa ákveðið að innkalla tvær gerðir af barnaburðarpokum.

Auglýsa eftir mjólk handa huldubarni
Landspítali kannast ekki við tilfelli barns sem sagt er þarfnast móðurmjólkar í Facebook-hópum mæðra. Mjólkin er nú vinsæll orkudrykkur.

Eitt til fimm prósent íslenskra barna þjáist af kæfisvefni
Rannsóknir benda til þess að á bilinu eitt til fimm prósent íslenskra barna þjáist af kæfisvefni og enn fleiri af hrotum. Þau börn eru líklegri til að þjást af athyglisbresti og ofvirkni eða öðrum kvillum. Nýrri rannsókn á hrotum og kæfisvefni barna var ýtt úr vör í dag.

Ósátt við að börn séu tengd göddum, leðri og kynferðislegum órum
Gagnrýnir Breiðagerðisskóla harðlega fyrir að lána börn í atriði Hatara.

Heilbrigðisstarfsmenn mistúlkuðu mislingapróf
Heilbrigðisstarfsmenn gerðu mistök við túlkun á mislingaprófi á ungu barni sem nú er með mislinga að sögn sóttvarnalæknis og því fór barnið á leikskóla í góðri trú. Hann harmar mistökin. Tugir eru nú í sótthví vegna mögulegs smits.

Vilja fresta samrekstri leikskólanna vegna uppsagna: „Þetta leggst mjög þungt á fólk“
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem sitja í borgarráði leggja fram tillögu á fundi ráðsins í dag um að fresta fyrirhuguðum samrekstri leikskólanna Suðurborgar og Hólaborgar.

Barnaheill og Blátt áfram sameinast
Stjórnir Barnaheilla og Blátt áfram hafa tekið þá ákvörðun að sameinast undir nafni Barnaheilla - Save the Children á Íslandi.

Erna Hrund fékk taugaáfall í skilnaðinum
Erna Hrund Hermannsdóttir er 29 ára gömul, tveggja barna móðir og vörumerkjastjóri hjá fyrirtækinu Danól. Erna Hrund bloggaði um árabil á vefsíðunni trendnet.is og var þekkt fyrir að opna sig varðandi persónuleg málefni sem oft á tíðum sköpuðu miklar umræður í samfélaginu.

Börnin þurfa að glíma við afleiðingarnar
Ný íslensk þáttaröð, Hvað höfum við gert?, hefur göngu sína sunnudaginn 10. mars á RÚV en umsjónarmaður þáttanna er Sævar Helgi Bragason.

Auka þarf stuðning við börn sem upplifa skilnað
Um 66 prósent barna sem rætt er við vegna skilnaðar eða sambúðarslita foreldra þeirra, eru þegar komin með stjúpfjölskyldu þegar leysa á úr ágreiningi hjá sýslumanni, en aðeins um helmingur mála endar með sátt. Félagsráðgjafi segir biðlista eftir sáttameðferð óásættanlega því hver dagur í lífi barns skipti máli.

Nýtt heimili á Selfossi fyrir börn með fjölþættan vanda
Á Selfossi hefur tekið til starfa heimili fyrir börn með fjölþættan vanda og langvarandi stuðningsþarfir.

Útrýma megi barnafátækt á Íslandi
Lífskjör barna á Íslandi eru góð í alþjóðlegum samanburði en Ísland er eftirbátur Norðurlanda þegar kemur að fjárveitingum til fæðingarorlofs, barnabóta eða daggæslu samkvæmt nýrri rannsókn. Félagsfræðingur segir vel hægt að útrýma barnafátækt á Íslandi.