

IKEA hefur innkallað útiljósaseríur og útiljós úr ákveðnum vörulínum þar sem rafmagnstengill stenst ekki öryggiskröfur. Vörurnar eru sagðar geta leitt til rafstuðs.
Matvælaframleiðslufyrirtækið Katla hefur ákveðið að innkalla framleiðslulotu af baunasúpugrunni vegna rofs á hitastýringu í dreifikerfi. Ætla má að baunasúpugrunnur hafi verið á leið í potta fjölda landsmanna, enda er sjálfur sprengidagurinn í dag.
Ein framleiðslulota af franska blámygluostinum Morbier Tradition Émotion hefur verið innkölluð vegna gruns um að í henni sé að finna E. coli bakteríuna.
Myllan hefur ákveðið með tilliti til neytendaverndar og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla heil Heimilisbrauð 770 grömm með best fyrir 27.01.2025 vegna aðskotahlutar sem sást á röntgenmyndum við hefðbundið gæðaeftirlit. Mögulega er um að ræða brot úr peru.
Matvælastofnun vara við Chrisco tyggerulle med kylling & kyllingelever frá Kína sem Lífland flytur inn vegna eituráhrifa hjá hundum eftir neyslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Matvælastofnun.
Arna í Bolungarvík hefur tekið úr sölu og innkallað framleiðslulotu af kaffiskyri með kaffi og vanillubragði sem er merkt best fyrir 14.11.2024 þar sem að vara stenst ekki gæðakröfur.
Allsherjarinnköllun stendur nú yfir á Rubbabu leikföngum, sem eru úr mjúku gúmmíi með flauelsmjúku yfirborði, en mest hefur selst af boltum og litlum farartækjum á hjólum. Leikföngin innihalda of mikið af efni sem getur verið krabbameinsvaldandi.
Krónan hefur hafið innköllun og tekið úr sölu pastaskrúfu sem seldar eru undir vörumerkinu First Price eftir að skordýr fannst í innihaldi einnar pakkningar frá framleiðandanum. Ekki kemur fram í tilkynningu hvaða skordýr það var.
Matvælastofnun varar við neyslu á nokkrum framleiðslulotum af frönskum makkarónukökum með pistasíukremi frá Joie De Vivre sem Costco Iceland hefur flutt inn, vegna salmonellumengunar.
Tvær tegundir af United flout hveiti frá Taílandi hefur verið innkallað að beiðni Matvælastofnunar. Ólöglegt bleikiefni er að finna í hveitinu.
IKEA hefur innkallað hleðslubanka vegna framleiðslugalla sem gerið það að verkum að af bönkunum stafar brunahætta.
Fyrirtækið Lagsmaður, sem heldur úti vefheildsölunni fiska.is, hefur innkallað Kite-hveiti. Ástæðan er sú að hveiti inniheldur ólöglega aukaefnið benzólý peroxíð.
Matfugl ehf. hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að grunur sé um salmonellusmit í ferskum kjúkling frá þeim í nokkrum framleiðslulotum. Frekari rannsókna er þörf en þau telja samt rétt að innkalla vöruna.
Matvælastofnun varar við neyslu á nokkrum framleiðslulotum af Froosh jarðaberja, banana og guava hristingum, 250 ml og 150 ml. Varan stóðst ekki gæðaeftirlit.
MAST og Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness hafa ákveðið að innkalla sex drykkjartegundir af orkudrykknum Prime Energy í 330 millilítra dósum. Drykkurinn inniheldur L-þíanín sem ekki hefur fengið leyfi í öðrum matvælum en fæðubótaefnum í Evrópu.
Stjörnugrís hefur tilkynnt innköllun á tveimur tegundum af skinku vegna þess að gerillinn Listeria monocytogenes mældist í vörunum. Neytendur eru beðnir um að neyta ekki varanna og farga þeim eða skila í verslun.
Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum Til hamingju Súkkulaðihúðaða banana. Ástæða innköllunar er sú að við framleiðslu á vörunni hafa blandast saman við hana súkkulaðihúðaðar valhnetur.
Ákveðið hefur verið að kalla inn 200 gramma pakkningar af Nóa Kroppi. Ástæðan er blöndun sem átti sér stað við pökkun sælgætisins, sem veldur því að heslihnetur komust í kroppið.
IKEA hefur innkallað ÅSKSTORM 40 W USB-hleðslutæki vegna hættu á rafstuði og bruna.
Krydd sem var flutt inn af Krónunni og selt í verslunum hennar hefur verið innkallað vegna þess að skordýr fannst í því. Þá hefur Sælkerabúðin ákveðið að innkalla súpu því að í henni fundust glerbrot.
Myllan innkallar smákökudeig sem framleitt er undir nafni Evu Laufeyjar. Hluti framleiðslunnar var merktur sem súkkulaðideig en inniheldur deig með trönuberjum og pekanhnetur, sem er þekktur ofnæmis- og óþolsvaldur.
Drykkurinn HELL ICE Coffee Coconut hefur verið innkallaður. Mjólk var ekki merkt sem innihaldsefni, en er eitt þeirra.
Aðföng hafa ákveðið að innkalla ostasósuna „Santa Maria Dip Nacho Cheese Style“ í 250 gramma dósum. Ástæða innköllunarinnar er að í tiltekinni framleiðslulotu greindist baktería sem valdið getur matareitrun.
Álfasaga ehf. hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Carbonara kjúklingapasta. Ástæða innköllunar er röng innihaldslýsing og ómerktir ofnæmisvaldar, bæði egg og sellerí.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur innkallað vöru að nafni Shicken Butter Curry eftir að málmstykki fannst í pakkningu. Varan hefur verið seld í verslunum Krónunnar, Nettó, Hagkaupa og í Vegan búðinni.
Matvælastofnun hefur varað við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingabringum frá Esju Gæðafæði vegna gruns um salmonellu. Fyrirtækið hefur innkallað framleiðslulotuna.
Fyrirtækið Fastus hefur innkallað „Paderno World Cuisine“ eldhússpaða úr plasti. Ástæðan er að flæði arómatísks amíns fer yfir leyfileg mörk samkvæmt reglugerðum. Viðskiptavinir eru beðnir um að hætta notkun vöru hennar og farga henni eða skila.
Heildsalan Danól ehf. hefur innkallað spínatpasta frá vörumerkinu Pastella í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Ástæðan er sú að málmagnir fundust í vörunni, samkvæmt tilkynningu frá eftirlitinu.
Matvælastofnun hefur varað við glútenfría bjórnum Snublejuice frá To Øl sem Rætur og Vín ehf. flytja inn þar sem glúten í bjórnum. Bjórinn er markaðssettur sem glútenfrír bjór.
Litlar málmflísar fundust í sælgæti frá Haribo og hefur Matvælastofnun því varað við neyslu á vissum framleiðsludagsetningum af Haribo sælgæti. Fyrirtækið Danól flytur vörurnar inn og hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna af markaði.