Rússland

Apple sýnir Krímskagann sem hluta af rússnesku yfirráðasvæði
Apple hefur breytt kortum í forritum sínum til að mæta beiðni Rússlands. Nú sýna forrit Apple Krímskagann sem hluta af rússnesku yfirráðasvæði.

Stendur við niðurstöðu OPCW vegna árásarinnar í Douma
Yfirmaður Efnavopnastofnunarinnar stendur við niðurstöðu rannsóknarnefndar stofnunarinnar sem komst að þeirri niðurstöðu að líklega hafi klórgas verið notað í efnavopnaárásina á Douma í Sýrlandi í apríl í fyrra. Tilefni ummæla hans er birting Wikileaks á tölvupósti eins úr nefndinni sem segir niðurstöður skýrslu hennar hafa verið villandi.

Guðlaugur Þór bauð Lavrov til Íslands
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra bauð í dag Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands í heimsókn til Íslands og vonar að hann geti mætt á Hringborð norðurslóða á næsta ári.

Viðskipti við Rússland aukast þrátt fyrir viðskiptaþvinganir
Utanríkisráðherrar Íslands og Rússlands undirrituðu yfirlýsingu í morgun sem tryggir að samfella verður í stefnu Norðurskautsráðsins að mati Guðlaugs Þórs Þórðarsonar.

Vilja Rússa í fjögurra ára bann
Alþjóðlega lyfjaeftirlitið WADA vill setja Rússa í nýtt bann frá öllum alþjóðlegum keppnum.

Guðlaugur Þór fundar með Sergey Lavrov á morgun
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lenti í Moskvu í dag þar sem hann mun á morgun eiga fund með Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands.

Rússneskur málaliði myndaði aðra pynta, myrða, afhöfða og brenna fanga
Rússneskumælandi maður sem myndaði pyntingu og morð sýrlensks fanga er starfsmaður rússneska málaliðafyrirtækisins Wagner Group og Wagner PMC, sem tengist ríkisstjórn Rússlands.

Sjávarútvegsráðherra segir aðrar þjóðir ekki segja Íslendingum fyrir verkum
Sjávarútvegsráðherra segir Evrópusambandið, Norðmenn og Færeyinga ekki segja Íslendingum fyrir verkum varðandi makrílveiðar, en sambandið og þessar þjóðir hafi haldið Íslendingum, Grænlendingum og Rússum utan við samninga um veiðiheimildir á makríl í mörg ár.

Segir ásakanir um afskipti Úkraínu skáldskap
Fiona Hill, fyrrverandi sérfræðingur Hvíta hússins varðandi Rússlands, skammaði þingmenn Repúblikanaflokksins í upphafsræðu sinni í vitnaleiðslum vegna rannsóknar fulltrúadeildarinnar á meintum embættisbrotum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

Hafnar áhrifum Rússa á kosningar
Forsætisráðherra Bretlands mætti í útvarpið og svaraði innhringjendum í beinni. Sagði hann engar sannanir fyrir áhrifum Rússa á kosningar.

MH17: Segja aðskilnaðarsinna hafa tekið við skipunum frá Rússum
Alþjóðlegt teymi rannsakenda sem skoðað hafa atvikið þegar malasíska flugvélin MH17 var skotin niður yfir austurhluta Úkraínu í júlí 2014 hafa opinberað upptökur símtala sem þeir segja vera á milli aðskilnaðarsinna í Úkraínu og embættismanna í Rússlandi. Upptökurnar segja rannsakendurnir að séu til marks um náið samstarf aðskilnaðarsinna við yfirvöld Rússlands.

Neita að birta skýrslu um afskipti Rússa fyrir kosningar
Umfangsmiklar deilur standa nú yfir meðal stjórnmálamanna í Bretlandi vegna leynilegrar skýrslu sem gerð var um afskipti Rússa af stjórnmálum þar í landi.

Einn helsti bakhjarl Hvítu hjálmanna dó í Tyrklandi
Hinn breski James Le Mesurier fannst fyrir utan íbúð sína í borginni og er hann sagður hafa fallið af svölum íbúðarinnar í nótt.

Fundu kvenmannshandleggi í bakpoka prófessors
Rússneskur sagnfræðiprófessor á sjötugsaldri hefur játað að hafa myrt ástkonu sína eftir að handleggir hennar fundust í bakpoka hans.

Pútín vill að Wikipedia verði skipt út fyrir rússneskt alfræðirit
Best yrði ef nýtt og áreiðanlegra rússneskt alfræðirit tæki við af Wikipedia í Rússlandi. Þeirrar skoðunar er Rússlandsforseti, Vladímír Pútín en hann greindi frá skoðuninni á fundi í Kreml í dag.

Nýtt viðskiptaráð eflir tengsl Rússa og Íslendinga
viðskipti Efnt var til stofnfundar Rússnesk-íslensks viðskiptaráðs í sendiráði Rússlands í gær. Markmiðið er að styrkja góð tengsl landanna á sviðum viðskipta, stjórnmála, menntunar og menningar.

Vongóður um að viðskiptabönnum verði aflétt
Stofnfundur Rússnesk-íslenska viðskiptaráðsins fór fram í rússneska sendiráðinu í dag. Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar segist vongóður um að viðskiptabönnum verði aflétt.

Umdeild netlög taka gildi í Rússlandi
Ný lög varðandi internetið taka gildi í Rússlandi í dag. Lög þessu eru umdeild og gagnrýnendur þeirra segja yfirvöld landsins geta notað þau til að þagga í gagnrýnendum sínum.

Aukin kafbátaumferð Rússa „ekki góðar fréttir”
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að aukin áhersla verði á nýstárlegar ógnir í skýrslu um aukið norrænt samstarf á sviði utanríkis- og öryggismála sem væntanleg er á næsta ári. Hann segir aukna kafbátaumferð Rússa á norðurslóðum vera slæmar fréttir.

Butina sleppt úr haldi og á leið til Rússlands
Maria Butina, sem játaði sig seka um samsæri og starfa sem útsendari erlends ríkis í Bandaríkjunum, er á leið til Rússlands.

Rússneskur hermaður skaut átta félaga sína til bana
Rússneskir fjölmiðlar segja að atvikið hafi átt sér stað á herstöð í Gorníj í austurhluta landsins í dag.

Forseti Alþingis íhugar heimboð forseta rússnesku Dúmunnar
Steingrímur segir mikilvægt að halda samskiptaleiðum við Rússland opnum en ætlar að ráðfæra sig við íslensk stjórnvöld áður en hann tekur afstöðu til heimboðsins.

Ætlar að mylja Kúrda yfirgefi þeir ekki öryggissvæðið
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir að herafli sinn muni gera út af við meðlimi Sýrlenska lýðræðishersins, SDF, yfirgefi þeir ekki "öryggissvæðið“ svokallaða í norðausturhluta Sýrlands.

Aukin umsvif Rússa í Afríkuríkjum
Áhrif Rússa í Afríku hafa aukist jafnt og þétt með samningum um vopnasölu, kjarnorkuver, námagröft og olíuviðskipti um alla álfuna. Vladímír Pútín bauð afrískum leiðtogum til fundar um samskipti Rússlands og Afríku sem hófst í borg

Rússneskir hermenn komnir á vígstöðvarnar
Rússneskir hermenn eru nú komnir til Norðaustur-Sýrlands eftir að Tyrkir og Rússar komust að samkomulagi í gær. Bandaríkin hafa tilkynnt um afléttingu viðskiptaþvingana sinna á Tyrki og sagði Bandaríkjaforseti að Tyrklandsstjórn hefði tjáð sér að vopnahlé á svæðinu væri orðið varanlegt.

Rússneskur áróður skýtur áfram upp kollinum á Facebook
Falsaðir reikningar í nafni bandarískra kjósenda lofa Donald Trump forseta en lasta Joe Biden, mögulegan mótframbjóðanda hans á næsta ári.

Tyrkir vilja aðstoð Rússa gegn Kúrdum
Sýrlenski lýðræðisherinn (SDF), her Kúrda, tilkynnti á sunnudag að allir hermenn hans hafi hörfað frá landamærabænum Ras al-Ayn. Þetta gerðu þeir til að standa við vopnahléssamning sem Bandaríkin tryggðu á milli Kúrda og Tyrkja.

Fimmtán námuverkamenn létust eftir að stífla brast
Minnst 15 létust og þrettán er enn saknað eftir að stífla brast við gullnámu í Síberíu.

Trump gaf samkomulagi Kúrda við Assad-liða blessun sína
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mótmælti því ekki að sýrlenskir Kúrdar leituðu á náðir Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, og bandamanna Rússa. Það gerðu Kúrdar eftir að Trump skipaði bandarískum hermönnum að yfirgefa Sýrland í aðdraganda innrásar Tyrkja, sem líta á sýrlenska Kúrda sem hryðjuverkamenn.

Rússar áttu við þúsundir lyfjaprófa
Yfirmaður lyfjaeftirlits Rússlands segir að aðeins einstaklingar með aðgang að valdamestu stofnunum landsins hefðu getað átt við próf á íþróttamönnum.