
Filippseyjar

Hani banaði lögreglumanni á Filippseyjum
Lögreglumaður á Filippseyjum er látinn eftir að hani, sem þjálfaður hafði verið upp til að stunda hanaat, réðst á hann við húsleit lögreglu á ólöglegum hanaatsstað í héraðinu Norður-Samar.

Ályktun Íslands um Filippseyjar samþykkt samhljóða
Ályktun Íslands um að mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna beri að veita ríkisstjórn Rodrigos Duterte stuðning og aðstoð við umbótastörf var samþykkt samhljóða á fundi mannréttindaráðs SÞ í morgun.

Halda aftur flotaæfingar í Suður-Kínahafi og víðar
Yfirvöld Kína halda nú fimm mismunandi flotaæfingar á hafsvæðum í Austur-Asíu. Þetta er í annað sinn á tveimur mánuðum sem herinn heldur svo umfangsmiklar æfingar og á sama tíma er spenna að aukast mikið á svæðinu.

Aftökur án dóms og laga
Í litlu þorpi í borginni Quezon á Filippseyjum varar presturinn Robert Reyes íbúana við ógn sem er sýnu verri en kórónuveirufaraldurinn, ítrekaðar aftökur án dóms og laga.

Milljónum aftur gert að halda sig heima
Tugir milljóna manna eru nú aftur komnir í útgöngubann í Filippseyjum en þar óttast læknar að nýleg fjölgun í kórónuveirusmita geti rústað heilbrigðiskerfið.

Herða aðgerðir vegna faraldursins í Asíu og Ástralíu
Stjórnvöld í Ástralíu og nokkrum Asíuríkjum hafa hert á aðgerðum til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar á nýjan leik af ótta við að fjölgun smita undanfarið sé upphafið að annarri bylgju faraldursins. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin varar við því að faraldurinn eigi eftir að versna grípi ríki ekki til strangra varúðarráðstafana.

Hryðjuverkalögum Duterte sagt beint gegn andstæðingum hans
Stjórnarandstæðingar á Filippseyjum segja að ný hryðjuverkalög sem Rodrigo Duterte forseti staðfesti í dag verði notuð sem vopn gegn pólitískum andstæðingum hans og til þess að kæfa tjáningarfrelsi í landinu. Með lögunum geta stjórnvöld skilgreind einstaklinga sem hryðjuverkamenn og haldið þeim í allt að 24 daga án ákæru.

Sakfelling blaðakonu talin áfall fyrir frjálsa fjölmiðlun
Verðlaunablaðakona á Filippseyjum var í morgun dæmd í fangelsi fyrir meiðyrði og er málið sagt áfall fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu.

Guðlaugur segir nú ljóst að framganga Íslands skipti máli
Tugir þúsunda manna kunna að hafa látist í stríði stjórnvalda í Filippseyjum á hendur fíkniefnum síðan árið 2016. Þetta kemur fram í skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem birt var í dag. Utanríkisráðherra segist vona að skýrslan leiði til góðs.

„Íslenska úttektin“ sýnir að tugir þúsunda gætu hafa látist í fíkniefnastríðinu
Tugir þúsunda manna kunna að hafa látist í stríði stjórnvalda í Filippseyjum á hendur fíkniefnum síðan árið 2016. Þetta kemur fram í skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Skýrslan er afleiðing tillögu Íslands í mannréttindaráði.

Um 30 manns í gíslingu í Manila
Fyrrverandi öryggisvörður heldur fólkinu í verslunarmiðstöð.

Fyrsta andlátið af völdum Wuhan-veirunnar utan Kína staðfest
Karlmaður á fimmtugsaldri lést í Filippseyjum af völdum Wuhan-kórónaveirunnar svokölluðu. Andlát hans er það fyrsta af völdum veirunnar utan Kína, en þar á veiran uppruna sinn.

Búa sig undir að flytja hundruð þúsundir burt vegna eldgossins
Áframhaldandi skjálftavirkni og vaxandi þrýstingur undir eldstöðinni þykir vísbending um að enn stærra gos sé í vændum á FIlippseyjum.

Eldgos hafið á Filippseyjum
Eldgos er hafið í eldfjallinu Taal á Filippseyjum sem er í um sjötíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Manila.

Gert að yfirgefa heimili sín eftir gos í eldfjallinu Taal
Rúmlega 8000 manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í grennd við filippseyska eldfjallið Taal en mikið öskugos hófst í dag.

Banna bandarískum þingmönnum að koma til Filippseyja
Stjórnvöld í Manila eru ósátt við refsiaðgerðir sem Bandaríkjaþing samþykkti vegna handtöku filippseysks stjórnarandstæðings.

Mikil eyðilegging eftir Phanfone
Fjöldi fólks er látið og hundrað fjölskyldur hafa misst heimili sín eftir að fellibylurinn Phanfone gekk yfir Filippseyjar.

Sex ára stúlka meðal þeirra sem létust í jarðskjálfta á Filippseyjum
Stúlkan er sögð hafa verið heima hjá sér þegar hús fjölskyldunnar hrundi í jarðskjálftanum, samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum.

Hreyfillinn logaði skömmu eftir flugtak
Vélinni var nauðlent skömmu síðar.

„Lygi sem er sögð milljón sinnum verður staðreynd“
Upplýsingaóreiða hefur aldrei verið meiri í heiminum og staða sjálfstæðra fjölmiðla aldrei verri. Þetta segir Maria Ressa, reynd blaðakona frá Filippseyjum, en hún sætir ákærum í heimalandinu sem geta varðað allt að 63 ára fangelsi.

Íslendingar veita sérfræðiþekkingu í þangræktun á Filippseyjum
Matís tók fyrir hönd utanríkisráðuneytisins þátt í verkefni fyrir skömmu á Filippseyjum sem er hluti af samstarfsverkefni ráðuneytisins og Alþjóðabankans um að veita aðgang að sérfræðiþekkingu Íslendinga, meðal annars um uppbyggingu á eldi í sjó, með sérstaka áherslu á ræktun á þangi.

Dæmi um að brotið hafi verið á rétti au-pair stúlkna hér á landi
Töluverð fjölgun hefur orðið á útgáfu Útlendingastofnunar á au-pairleyfum á síðustu árum sérstaklega til Filippseyinga. Dæmi eru um að brotið hafi verið á rétti fólksins og hefur lögregla kannað aðstæður á heimilum þar sem fólkið dvelur.

Ekki nóg að upplýsa fólk um réttindi sín
Íslendingar þurfa að hugsa til langs tíma þegar kemur að erlendu vinnuafli, segir sérfræðingur á sviði fólksflutninga. Aðlögun sé lykilatriði. Staðan á Íslandi sé hins vegar að mörgu leyti góð hvað snertir alþjóðlegan samanburð.

Borgarstjóri sem Duterte benti á myrtur
David Navarro var á lista sem Duterte forseti birti fyrr á þessu ári yfir einstaklinga sem hann sakaði um að vera „dópstjórnmálamenn“.

Kaþólskir prestar blessuðu gæludýr
Kaþólskir prestar víða um heim blessuðu gæludýr í vikunni á degi dýrlingsins Frans frá Assisí.

Skærustu stjörnur Filippseyja kyssast undir íslenskum norðurljósum
Filippseyska stjörnuparið Kathryn Bernardo og Daniel Padilla er statt hér á landi ef marka má Instagram-færslu þeirrar fyrrnefndu.

Óttast um afdrif frænda síns sem var skotinn í fíkniefnastríðinu á Filippseyjum
Íslendingur ættaður frá Filippseyjum bíður nú milli vonar og ótta fregna um afdrif systursonar síns, sem var skotinn í baráttu við fíkniefnasala í fyrradag. Hann segir að tvær hliðar séu á mannréttindamálum á Filippseyjum.

"Þetta er algjört brjálæði“
Tuttugu þúsund manns hafa verið myrt á þremur árum að undirlagi Duterte forseta á Filippseyjum.

Uppnám í Neskirkju: Stuðningsmaður Duterte hellti sér yfir syrgjandi móður
Uppnám varð í Neskirkju á ráðstefnu um mannréttindi á Filippseyjum þegar stuðningsfólk Rodrigo Duterte, forseta Filippseyja, gerðu hróp að móður sem lýsti morði lögreglunnar þar í landi á syni sínum.

Segist hafa fyrirgefið Íslandi „dauða“ og „einskis nýta“ tillögu
Teodoro Locsin Jr. utanríkisráðherra Filippseyja kveðst hafa fyrirgefið Íslendingum að hafa lagt fram tillögu í Mannréttindaráði sameinuðu þjóðanna, sem gerir ráðinu kleift að rannsaka fíkniefnastríð Filippseyjaforseta.