

Yfirvöld og náttúruverndarsamtök í Sambíu óttast mikil langtímaáhrif gífurlegrar mengunar á stórri á þar í landi. Stífla við námu brast í síðasta mánuði og flæddi sýrumengaður úrgangur niður ánna og gæti það haft áhrif á milljónir manna sem búa við ánna og reiða jafnvel lífsviðurværi sitt á henni.
Tvær dýrustu fótboltakonur sögunnar koma báðar frá Afríkuríkinu Sambíu.
Racheal Kundananji er orðin dýrasta fótboltakona sögunnar eftir að hún gekk til liðs við bandaríska liðið Bay FC frá Madrid CFF á Spáni.
Fótboltasamfélagið í Sambíu hefur síðustu daga syrgt fyrrverandi landsliðsframherjann Philemon Mulala sem lést eftir að hundarnir hans réðust á hann. Hann var sextugur að aldri.
Auðugur bandarískur tannlæknir sem sakaður var um að hafa skotið eiginkonu sína til bana með haglabyssu í veiðileiðangri í Afríku var í gær sakfelldur fyrir morð og póstsvik. Hinn 67 ára Lawrence Rudolph var ákærður fyrir að hafa myrt Bianca Rudolph í Sambíu árið 2016 og brotið lög þegar hann leysti út 4,8 milljónir bandaríkjadala út úr líftryggingunni hennar.
Andlát Sigurðar Guðmundssonar í Sambíu þann 19. apríl bar brátt að en Sigurður var aðeins 53 ára. Til stendur að flytja hann heim til Íslands og halda útför. Reiknað er með að fjölskylda og vinir Sigurðar í Sambíu komi hingað til lands við það tilefni.
Sigurður Guðmundsson, athafnamaður og fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, er látinn. Sigurður fæddist í Kaupmannahöfn þann 8. mars 1969 en bjó lengst af á Akureyri. Hann var aðeins 53 ára að aldri.
Ein óvæntasta stjarna Ólympíuleikanna í Tókýó er fótboltakonan Barbra Banda frá Sambíu. Hún hefur þegar skráð nafn sitt í sögubækur Ólympíuleikanna.
Kenneth Kaunda, sem var fyrstur til að gegna embætti forseta Afríkuríkisins Sambíu, er látinn, 97 ára að aldri. Hann var einn síðasti eftirlifandi af þeirri kynslóð leiðtoga Afríkuríkja sem hafði barðist gegn nýlendustefnu Evrópuríkja.
Stuðningur frá Íslandi gerir skimunar- og greiningaraðstöðu við landamæri Malaví og Sambíu mögulega.
Bandarískir ferðamenn lentu heldur í sérstöku ativki í ferðalagi sínu í Sambíu á dögunum.
Dýraverndunarsamtökin Elephants Without Borders hafa fundið hræ 87 afríkufíla í Botsvana. Botsvana hefur tekið hart á veiðiþjófnaði í gegnum tíðina. Nýkjörinn forseti hefur þó dregið úr aðgerðunum.
Simbabvesk yfirvöld hafa ákært stjórnarandstæðing fyrir að kynda undir ofbeldi. Hann hafnar sök. Bandaríkin gagnrýna aðgerðir gegn stjórnarandstöðunni og SÞ segja að Sambía gæti hafa framið lögbrot með framsali mannsins.
Trump virtist hafa útilokað að innflutningurinn yrði leyfður aftur eftir mikla gagnrýni í nóvember. Nú hefur hann verið leyfður svo lítið beri á.
Henry Kalaba, utanríkisráðherra Sambíu, sagði af sér í gær þar sem hann gat ekki hugsað sér að sitja í ríkisstjórn landsins lengur.
Bandaríkjamenn geta brátt farið að veiða fíla í Afríku og flytja minjagripi með sér heim aftur. Fílarnir eru á lista bandarískra stjórnvalda um dýr í útrýmingarhættu.
Hammarskjöld var á leiðinni til Austur-Kongó árið 1961 til að koma á friði milli uppreisnarmanna í Katanga-héraði og ríkisstjórnar landsins.