
Samfylkingin

„Ríkisstjórnin hefur misst alla stjórn“
Samfylkingin ætlar í næstu ríkisstjórn og hyggst endurreisa íslenskt velferðarkerfi eftir „áratuga hnignun.“ Þetta kom fram í ræðu Kristrúnar Frostadóttur formanns á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Kaplakrika dag, þar sem nýtt merki flokksins var jafnframt afhjúpað.

Afhjúpuðu nýtt merki Samfylkingarinnar
Nýtt merki Samfylkingarinnar var afhjúpað á flokksstjórnarfundi flokksins í dag. Merkið er rós sem er alþjóðlegt tákn sósíaldemókrata og segist formaðurinn stolt af nýju merki.

Stuðningur við ríkisstjórnina aldrei verið minni
Fylgi ríkisstjórnarinnar minnkar um fjögur prósentustig í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og stendur nú í 42 prósentum. Stuðningur við stjórnarflokkana þrjá mælist fjörutíu prósent og minnkar um tvö prósentustig.

Upphefð eða bjarnargreiði?
Hugleiðing um starfsskilyrði bæjarlistamanns Akureyrar.

Kristrún búin að eiga
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, og eiginmaður hennar, Einar B. Ingvarsson, eignuðust dóttur í byrjun febrúar. Þetta er þeirra annað barn en fyrir eiga þau dóttur sem fæddist árið 2019. Dóttirin hefur fengið nafnið Ragnhildur Steinunn.

Samgöngusáttmáli á gatnamótum
Þegar samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður haustið 2019 af ríki, borg og sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins ríkti almenn og þverpólitísk sátt um að í sáttmálanum fælist mikilvægur áfangi.

Klúður!
Klúður í Hafnarfirði. Enn og aftur. Það var vitlaust lagt á í Hafnarfirði. Það þurfti að laga. Draga þurfti úr hækkun fasteignaskatts afturvirkt. Og var gert í morgun, 23.febrúar í bæjarráði.

Er ríkisstjórnin stikkfrí í kjaradeilunum?
Hvernig er unnt að höggva á hnútinn í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins? Það virðist langt til lands og harkan færist í aukana með áformum atvinnurekenda um verkbann á 20 þúsund félaga verkalýðsfélagsins. Það er olía á eld í þessari kjaradeilu.

Seðlabanki Íslands
Það vekur furðu hve skýrsla erlendra sérfræðinga um Seðlabanka Íslands hefur fengið litla umfjöllun. Sérfræðingarnir eru þrír með Patrick Honohan fyrrverandi seðlabankastjóra Írlands í broddi fylkingar.

Málið sé bænum ekki til framdráttar
Raunir ungrar fjölskyldu sem hefur verið á hrakhólum í fjögur ár eftir að byggingarfulltrúi stöðvaði framkvæmdir á húsi þeirra í Reykjanesbæ eru bænum ekki til framdráttar. Þetta segir bæjarfulltrúi minnihlutans. Málið verði að leysa.

Ríkisstjórnin fékk það sem hún bað um: meiri verðbólgu og hærri vexti
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur kyndir undir verðbólgu með óábyrgri stefnu í ríkisfjármálum. Þetta er ein af orsökum vaxtahækkunarinnar sem kynnt var í gær.

Hafnarfjörður og húsnæðissáttmáli höfuðborgarsvæðisins
Á síðasta bæjarstjórnarfundi Hafnarfjarðarbæjar felldi meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks tillögu Samfylkingarinnar um að ganga til samninga við innviðaráðherra og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um húsnæðissáttmála fyrir Hafnarfjörð.

„Píratar stýra ekki þinginu, þeir eru ekki í meirihluta“
Þingmenn hafa rætt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum í tugi klukkustunda frá því þing kom saman eftir jólahlé í síðustu viku. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Pírata, sem hafa látið að sér kveða í umræðum um málið, ekki stýra þinginu.

Stjórnarandstaðan vill sjá á spilin: „Mér er gjörsamlega misboðið“
Önnur umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra stendur nú yfir á Alþingi en ákveðið var að lengja þingfundinn í dag. Þingmenn Pírata og Samfylkingarinnar vildu að hlé yrði gert á umræðunni þar sem meirihlutinn hefur boðað breytingar. Einn þingmaður Pírata sagði þau eiga skilið að sjá á spilin og annar sagði stjórnarliðum ekki treystandi. Fjármálaráðherra sagði minnihlutann snúa öllu á hvolf.

Hart sótt að Katrínu vegna verðbólgunnar
Hart var sótt að Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag, þar sem ríkisstjórn hennar var ýmist sökuð um að bera töluverða ábyrgð á hækkun verðbólgu í upphafi árs eða skort á aðgerðum gegn henni.

Kristrún farin í fæðingarorlof
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar er farin í fæðingarorlof og hefur kallað inn varaþingmann á Alþingi.

Óréttmæt þvingunaraðgerð gegn lágtekjufólki
Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur verður miðlunartillaga ríkissáttasemjara ekki felld nema 25 prósent félagsmanna í stéttarfélagi greiði atkvæði gegn henni.

Atkvæðagreiðslan skrumskæling á lýðræði
Forysta Eflingar mun í dag heimsækja félagsmenn sína, sem munu leggja niður störf verði verkfallsaðgerðir samþykktar, og hvetja þá til að hafna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Þingmaður Samfylkingarinnar segir tíma til kominn að Alþingi endurskoði reglur um miðlunartillgöru ríkissáttasemjara.

Endurreisn félagslega húsnæðiskerfisins í þéttari Reykjavík
Dreifing byggðar eykur umferð, veikir almenningsamgöngur og eykur tafatíma í umferðinni. Og síðast en ekki síst vinnur dreifing byggðar gegn árangri í loftslagsmálum en við stefnum einmitt á kolefnishlutlausa borg árið 2040.

Tankurinn tómur og tími kominn til að kveðja
Fráfarandi forsætisráðherra Nýja Sjálands segir það hafa verið forréttindi að fá að leiða þjóð sína á erfiðum tímum undanfarin tæpu sex ár. Nú væri tankur hennar hins vegar tómur og tími til kominn að kalla til nýjan leiðtoga.

Jóhann Páll og Anna Bergljót eignuðust stúlku
Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Anna Bergljót Gunnarsdóttir, nýdoktor í efnafræði við Háskóla Íslands, hafa eignast dóttur.

Nýr leiðtogi og skarpari málflutningur Samfylkingunni til góðs
Samfylkingin mælist stærst allra flokka samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir stöðuna ekki mikla forspá fyrir næstu kosningar en leiðtogabreytingar og endurskipulag málefna virðist reynast flokknum vel.

Samfylkingin stærsti flokkur landsins
Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn á Alþingi samkvæmt nýrri könnun Maskínu og er með tæplega 24 prósenta fylgi.

„Ég vil verða forsætisráðherra og helst ekki fara með Sjálfstæðisflokknum“
„Ég á mánuð eftir,“ segir ófrísk Kristrún Frostadóttir sem gerir ráð fyrir að þurfa að vinna eitthvað í fæðingarorlofinu, enda gangi í raun ekki að vera formaður stjórnmálaflokks og vera frá í lengri tíma.

„Ósmekkleg fyrirsögn“ sem hefði ekki átt að birtast
Ritstjóri Viðskiptablaðsins segir fyrirsögn á skoðanapistli sem birtist í blaðinu í síðustu viku hafa verið ósmekklega. Beðist verður velvirðingar á fyrirsögninni í næsta tölublaði blaðsins en fyrirsögninni var breytt í netútgáfunni í gær.

Níu af ríflega fjögur þúsund umsóknum metnar tilhæfulausar
Einungis níu af um fjögur þúsund og fimm hundruð umsóknum um alþjóðlega vernd á síðasta ári voru metnar tilhæfulausar. Þingmaður Samfylkingar telur að staðhæfingar um stjórnlaust ástand í útlendingamálum eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.

Orð Svanhildar sýni skilningsleysi og sendi erfið skilaboð
Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir orð framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs endurspegla það gildismat samfélagsins að störf kvenna megi verðleggja hvernig sem er. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafnar því að hennar flokkur sé í aðför gegn stéttinni og telur að einkarekstur innan heilbrigðiskerfisins geti bætt kjör starfsfólks.

Ekki meiri bílaumferð
Upphafsatriði áramótaskaupsins var merkileg staðfesting á því hve umferðarmál höfuðborgarsvæðisins eru hugleikin landsmönnum. Ömurlegar samgöngur sungu okkar ástkærustu leikarar á meðan myndskot af götum borgarinnar stapp fullum af bílum runnu yfir skjáinn.

Myndir ársins 2022: Eldgos, óveður og menn í járnum
Ljósmyndarar og myndatökumenn Vísis voru á ferð og flugi árið 2022. Eldgos, óveður og stjórnmálin voru að sjálfsögðu meðal helstu myndefna en aðgerðir lögreglu og dómsmál komu einnig oft við sögu.

Þriðjungur vill sjá Kristrúnu sem fjármálaráðherra
Maskína spurði í nýlegri könnun um frammistöðu formanna stjórnmálaflokkanna á Alþingi á yfirstandandi kjörtímabili og niðurstöðurnar voru um margt forvitnilegar. Þá var spurt hver eigi að vera forsætisráðherra og hver fjármálaráðherra.