Samfylkingin

Samfylkingin telur samgönguáætlun ekki full fjármagnaða
Fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis segir ný framlagða samgönguáætlun ekki full fjármagnaða og hefur áhyggjur af efndum um framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Þá væri um 80 milljarða uppsöfnuð viðhaldsskuld á þjóðvegum landsins sem skynsamlegt væri að ráðast í sem fyrst.

„Þurfum að ákveða hvers konar þjóð við viljum vera“
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, segir ákall eftir aðgerðum standa upp úr að liðnum þingvetri. Flokkur hennar hafi reynt að stappa stálinu í ríkisstjórnina sem beri sig illa og tali eins og hún stýri engu.

Segja aðgerðir ríkisstjórnarinnar endurnýtt efni
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur kynnti í dag aðgerðapakka, sem ætlað er að slá á verðbólguna og koma til móts við þá sem farið hafa verst út úr henni. Formenn tveggja stjórnarandstöðuflokka segja fátt nýtt felast í aðgerðapakkanum og segja hann jafnvel endurunnið efni.

Samfylkingin vill leigubremsu og eingreiðslu til skuldsettra heimila
Leigubremsa og vaxtabótaauki fyrir heimilin eru meðal tillagna sem Samfylkingin hefur lagt fram til þess að takast á við verðbólguna. Kristrún Frostadóttir, formaður, segir hægt að fjármagna þær með breytingu á skattkerfinu.

Samfylkingin kynnir verkefnalista fyrir þinglok
Vaxtabótaauki, leigubremsa og ívilnun til uppbyggingar á almennum íbúðum. Allt fjármagnað að fullu — og meira en það — með því að loka skattaglufu sem kallast ehf.-gatið.

Samfylkingin leggur til ívilnun til uppbyggingar
Samfylkingin hefur mánuðum saman kallað eftir aðgerðum frá ríkisstjórninni. Til að vinna gegn verðbólgu og verja heimilisbókhaldið. Við höfum lagt okkar af mörkum með skýrum tillögum að aðgerðum og uppbyggilegri gagnrýni.

Kristrún vill að launahækkanir æðstu embættismanna fylgi markaðnum
Formaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að laun æðstu embættismanna hækki ekki meira en laun á almennum markaði, enda væri það markmið laga um laun þeirra að þeir leiddu ekki launahækkanir í landinu. Hún og aðrir viðmælendur í Pallborðinu í dag voru sammála um að þörf væri á víðtæku samstarfi um vinnumarkaðinn en á mjög ólíkum forsendum.

Vilja sérstaka umræðu um efnahagsmál á þingi sem fyrst
Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur óskað eftir því að haldin verði sérstök umræða um efnahagsmál sem fyrst í ljósi enn einnar stýrivaxtahækkunar peningastefnunefndar Seðlabankans. Meginvextir bankans standa nú í 8,75% og verðbólga mældist 9,9% í apríl.

Alþingi getur ekki farið í sumarfrí án þess að hemja leiguverð og hækka vaxtabætur
Tvær snjóhengjur hanga yfir okkur. Annars vegar á íbúðalánamarkaði þar sem hundruða milljarða skuldir á sögulega lágum vöxtum koma til vaxtaendurskoðunar á þessu ári og því næsta.

Jafnaðarstefnan er Evrópustefna
Á Íslandi er eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða, stöndugu almannatryggingarkerfi sem grípur þau sem þurfa á að halda og öflugu velferðarkerfi sem stendur öllum til boða óháð efnahag.

Í hvernig samfélagi viljum við búa?
Sláandi niðurstöður könnunar um lífskjör og heilbrigðisþjónustu sem Rúnar Vilhjálmsson prófessor við HÍ og ÖBÍ réttindasamtök fólu Félagsvísindadeild HÍ að framkvæma, voru kynntar í dag, þriðjudaginn 23. maí.

Ráðherra verður við áskorun þingmanns og ljósmóður
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ætlar að leggja til að heimaþjónusta ljósmæðra verði veitt nýjum foreldrum og börnum óháð því hve lengi þau dvöldu á fæðingarstofnun.

Velferðarmálin efst á forgangslista raunsærrar Samfylkingar
„Samfylkingin hefur gjörbreytt sinni forgangsröðun eftir að Kristrún Frostadóttir varð formaður flokksins og við erum bara mjög raunsæ á Evrópumálin,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar um gagnrýni Sigmars Guðmundssonar á afstöðu flokksins.

Segir Kristrúnu fara með gamla tuggu úr Valhöll
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, er nokkuð harðorður í garð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, í aðsendri grein á Vísi vegna „stefnubreytingar“ síðarnefndu í Evrópumálum.

Sjálfstæðisflokkurinn sé skíthræddur við Kristrúnu
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, segir að Sjálfstæðisflokkurinn óttist Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar. Að hans sögn endurspeglast það í skrifum aðstoðarmanns dómsmálaráðherra um viðtal við formanninn.

Fylgi Samfylkingar nærri þrefaldast frá kosningum
Enn eykst fylgi Samfylkingar sem mælist nú tuttugu og sjö prósent samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgið hefur nærri þrefaldast frá síðustu kosningum þegar flokkurinn hlaut 9,9 prósent atkvæða.

Ríkisstjórnin verði að dempa áfallið sem hlýst af vaxtahækkunum
Formanni Samfylkingarinnar finnst ekki ólíklegt að stýrivextir Seðlabankans verði hækkaðir á miðvikudag líkt og greiningaraðilar eru á einu máli um. Hún hefur ekki gefið upp von um að ríkisstjórnin dempi höggið sem heimilin finna fyrir þessar þrjár síðustu vikur þingsins. Auknar vaxtabætur og leigubremsa þurfi að koma til svo hægt verði að verja heimilin í þessu viðkvæma efnahagsástandi.

Gömlu stefnumálunum pakkað ofan í pappakassa
Talsmenn allra flokka á þingi mættu í Silfrið á RÚV í dag til að fara yfir veturinn. Aðallega var tekist á um viðbrögð ríkisstjórnarinnar við verðbólgu og húsnæðisvandanum sem vofir yfir.

Hættir sem formaður ef Samfylkingin kemst ekki í ríkisstjórn
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, ætlar að hætta sem formaður ef flokkur hennar kemst ekki í ríkisstjórn að loknum næstu kosningum. Hún útilokar ekki ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokki, en viðurkennir að samstarf með flokknum myndi reynast erfitt.

Stoltur gestgjafi
Í dag er stór dagur í sögu Íslands en einnig stór dagur í sögu Evrópuráðsins þegar leiðtogar aðildarríkja Evrópuráðsins funda hér á landi, en aðeins þrisvar sinnum áður hafa leiðtogarnir komið saman til fundar frá stofnun ráðsins.

„Snúin aftur úr fæðingarorlofi og sé á dagskrá Alþingis að það er ekkert að gerast“
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, sneri aftur á Alþingi í dag eftir fæðingarorlof. Hún kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar og gagnrýndi forystuleysi ríkisstjórnarinnar í þeim málum sem helst brenna á fólkinu í landinu. Nefndi hún í því samhengi verðbólgu, vexti, verkföll og alvarlegan vanda í húsnæðismálum.

Er ekki best að gefa Sjálfstæðisflokknum frí?
Staða borgarinnar er þröng rétt eins og ríkisins og flestra sveitarfélaga. Ástæðan er margþætt en mestu munar um ófyrirsjáanlegan kostnað vegna COVID heimsfaraldursins og stórauknum fjármagnskostnaði vegna verðbólgu en síðast en ekki síst áralanga sögu erfiðra samskipta við ríkið um fjármögnun málaflokka sem fluttir hafa verið úr höndum ríkisins til sveitarfélaganna.

Varið ykkur á Kópavogslæknum!
Í vatnaáætlun Íslands, sem samþykkt var á síðasta ári kemur fram að öll yfirborðsvatnshlot eigi að vera í a.m.k. góðu vistfræðilegu ástandi og góðu efnafræðilegu standi. Nái vatnshlot ekki umhverfismarkmiðum skal fara í aðgerðir til úrbóta þar á.

Ekki í boði að gefast upp
Þann 12. júlí 2022 blés ríkisstjórn Íslands til blaðamannafundar og undirritaði rammasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga um að stefnt verði að byggingu 35 þúsund íbúða á næstu 10 árum.

Eldra fólk hefur ekki tíma til að bíða eftir réttlæti
Kjaragliðnun er pólitísk ákvörðun. Lög um almannatryggingar tryggja lífeyristaka gegn kjaragliðnun, en þrátt fyrir það er kjaragliðnun staðreynd á Íslandi.

Kristrún vill að minnsta kosti Landsbankann eftir sem áður í eigu ríkisins
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að fákeppnismarkað eins og Ísland þurfi að regluvæða: „Ástæðan fyrir því að ég og fleiri höfum talað fyrir því og fleiri að við höldum að minnsta kosti Landsbankanum í opinberri eigu er að við séum þá með einn banka sem er með opinbert viðmið um eðlilega arðsemi, eðlileg kostnaðarhlutföll.“

1. maí í 100 ár
Það er hægara sagt en gert að setja sig í spor alþýðufólksins sem safnaðist saman á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis árið 1923 þegar fyrsti kröfufundurinn í tilefni 1. maí var haldinn í Reykjavík fyrir akkúrat hundrað árum.

Stöndum öll saman
Í ár eru 100 ár frá því fyrsta kröfuganga 1. maí var farin á Íslandi. Barátta launafólks á Íslandi er búin að vera löng og ströng. Verkalýðurinn sameinaðist með stofnun ASI árið 1916 og á sama tíma var Alþýðuflokkurinn stofnaður. Flokkurinn marg klofnaði á síðustu öld, en jafnaðarmenn sameinuðust undir merkjum Samfylkingarinnar í lok síðustu aldar.

„Hér er um að ræða fullkominn forsendubrest“
Samband íslenskra sveitarfélaga telur að rammasamningur ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða sé vanfjármagnaður í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Um sé að ræða „fullkominn forsendubrest“ og íbúðaþörf næstu ára verði ekki fullnægt.

Fíkn, geðheilbrigði og ráðherrar sem tala ekki saman
Þegar okkur mistekst ætlunarverk okkar þurfum við að setjast niður og finna nýtt leikskipulag, hvort sem er í einkalífi okkar, við leik og störf eða rekstur samfélags.