
Grindavík

Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný
Veitingastaður og bakarí í Grindavík voru opnuð á ný í Grindavík í dag. Lögreglustjórinn telur viðbragðsaðila hafa ágætis tíma til að rýma bæinn komi til nýs eldgoss á svæðinu.

Stutt í næsta gos komi til gosloka
Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Jarðeðlisfræðingur segir bæði líkur á nýju gosi ofan í það sem er nú í gangi og goslokum, en í því tilfelli myndi líklegast brátt gjósa aftur.

Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson var á meðal áhorfenda á fyrsta leik Grindavíkur og Keflavíkur í undanúrslitum Subway deildar karla í körfubolta í gær. Hrifning hans á einni af flottustu körfu leiksins leyndi sér ekki og voru sérfræðingar Körfuboltakvölds yfir sig hrifnir af viðbrögðum Guðna sömuleiðis.

Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu
Prófessor í jarðeðlisfræði segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni við Grindavík.

Aukin virkni í gosinu
Eldfjallafræðingur segir merki uppi um að virkni hafi aukist í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt. Landris í Svartsengi hafi stöðvast og kvika leiti nú beint upp á yfirborð úr dýpra kvikuhólfinu.

Helmingurinn af búslóðinni í ruslið
Grindvíkingar hafa neyðst til að henda gríðarlegum verðmætum undanfarið vegna búferlaflutninga. Að minnsta kosti hálf búslóðin fór í ruslið hjá einum þeirra. Annar segir að enginn vilji hirða dótið og Góði hirðirinn sé sprunginn.

Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi
Virkni eldgossins við Sundhnúksgíga er með svipuðu móti og síðustu daga. Svo virðist sem mögulega hafi hægt á landrisi undir Svartsengi en náttúruvársérfræðingur segir þó of snemmt að túlka þau gögn sem liggja fyrir á þessari stundu.

Líklegt að það styttist í brotmörk
Lögregla á Suðurnesjum fylgist grannt með stöðu mála við Grindavík, þar sem hrauntunga hóf að renna yfir varnargarð í morgun. Þá telja vísindamenn að annað eldgos gæti verið yfirvofandi á svæðinu hvað úr hverju.

Hraun mjakast yfir varnargarð
Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga hefur teygt sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Hún rennur hægt og engin hætta stafar af henni enn sem komið er.

Vara við því að fara gangandi að gosinu
Lögreglan á Suðurnesjum varar við því að fara fótgangandi að gosstöðvum. Fram hefur komið í fréttum að líkur aukast með hverjum degi á að ný gossprungja opnist eða að nýtt eldgos hefjist. Vegna þess er fólk varað við því að fara fótgangandi.

Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram
Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og er enn einn gígur skammt austan við Sundhnúk, virkur. Landris í Svartsengi hefur áfram á sama hraða og eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega, haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða.

Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar
Stefnt er að því að lokið verði við að samþykkja helming umsókna Grindvíkinga um að ríkið kaupi íbúðarhúsnæði þeirra fyrir lok þessarar viku. Þegar hafa verið samþykkt kaup á 263 fasteignum í Grindavík fyrir um tuttugu milljarða króna.

Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu
Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði nú á föstudaginn með forsvarsfólki fasteignafélagsins Þórkötlu sem stofnað var 27. febrúar 2024 sérstaklega til að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík. Farið var yfir verkferla og hvernig unnið væri með málefni þeirra sem óskað hafa eftir uppkaupum.

Atvinnurekendur í Grindavík krefjast úrræða
Hópur grindvískra atvinnurekenda segir fyrirtæki í Grindavík komin að þolmörkum og kalla eftir að úrræði sem kynnt verða fyrir þinglok verði úrræði sem miða að fyrirtækjum sem geta og vilja starfa í Grindavík, fyrirtækjum sem þurfa að flytja starfsemi sína og þeim sem sjá hvorki rekstrargrundvöll í né utan Grindavíkur og vilja uppkaup á atvinnuhúsnæði.

Sameiningarviðræður á Suðurnesjum komnar á næsta stig
Viðræður um sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum eru komnar á næsta stig og haldnir hafa verið íbúafundir vegna málsins. Bæjarstjóri í Vogum segir endanlega ákvörðun alltaf vera íbúanna.

Göngumennirnir illa haldnir þegar komið var að þeim
Björgunarsveitir björguðu í gær þremur göngumönnum sem höfðu ætlað sér að labba að gosstöðvunum við Litla-Hrút en urðu örmagna á leið sinni. Einn þeirra sem fór í útkallið segir mennina hafa verið illa haldna þegar komið var að þeim.

Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“
„Ég er föst á nýjum stað. Ég verð að geta komið fótunum undir mig og fjölskyldu mína,“ segir Birna Rún Arnarsdóttir um erfiða stöðu sem myndast hefur fyrir Grindvíkinga, meðal annars vegna fasteignafélagsins Þórkötlu.

Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar
Landris í Svartsengi heldur áfram á stöðugum hraða. Flatarmál hraunbreiðunnar á svæðinu er nú 6,15 ferkílómetrar og rúmmál hennar 33,2 milljón rúmmetrar.

Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu
Ferðamenn fá leyfi til þess að fara til Grindavíkur en eingöngu í skipulögðum rútuferðum á veitingastaði samkvæmt nýjum reglum sem lögreglan hefur gefið út. Aðkomufólki verður áfram bannað að ferðast á eigin vegum til bæjarins.

Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu
Grindvíkingar og stuðningsmenn þeirra söfnuðust saman á Austurvelli í dag til þess að mótmæla vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu. Krafan er einföld, þeir vilja fá greitt strax.

Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja
Búið er að samþykkja kaup á 126 eignum Grindvíkinga en Þórkötlu, fasteignafélagsins sem stofnað var til að annast kaup á þessum eignum, hefur borist 711 umsóknir.

Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu
Á næsta skólaári munu leik- og grunnskólabörn úr Grindavík sækja skóla næst sínu heimili og safnskólar verða lagðir af. Forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir um tímamót að ræða en

Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar
Fasteignamarkaðurinn hitnaði verulega í febrúar og líklega í mars líka. Sömu áhrifa er á gæta á leigumarkaði þar sem verð hefur hækkað. Áhrifanna er að mestu að gæta á höfuðborgarsvæðinu og í sveitarfélögunum í kring. Staða íbúa í Grindavík hefur þarna mikil áhrif. Á sama tíma hefur byggingaframkvæmdum fækkað og er yfirvofandi samdráttur í byggingariðnaði.

Varnargarðar utan um fólkið í Grindavík
Í síðustu viku fór tími Alþingis ekki í neitt nema að bíða eftir því að hulunni yrði svipt af nýrri (eða lítillega breyttri) ríkisstjórn. Önnur og mun mikilvægari verkefni voru látin sitja á hakanum.

Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu
Boðað hefur verið til mótmæla á Austuvelli klukkan 17 á morgun, þar sem vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu verður mótmælt. Borið hefur á mikilli óánægju meðal Grindvíkinga, sem vilja fá eignir sínar keyptar upp sem fyrst.

Hætta með safnskóla fyrir grindvísk börn
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að leggja af safnskóla fyrir leik- og grunnskólabörn bæjarins. Á næsta skólaári munu öll börn sækja skóla sem næst sínu heimili og þurfa foreldrar og forráðamenn að sækja þar um skólavist.

Ný staða uppi á Reykjanesskaga
Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina nú hefur staðið yfir í mánuð. Í byrjun apríl fór landris að aukast og nú er um það bil jafn stór hluti kvikunnar að flæða upp á yfirborð og safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Ný staða er komin upp að sögn náttúruvásérfræðings hjá Veðurstofunni.

Vonar að trúin sé enn til staðar á Sauðárkróki
Íslandsmeistarar Tindastóls þurfa að verja vígi sitt er liðið tekur á móti Grindavík í Síkinu í kvöld í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta. Stólarnir mæta til leiks eftir dapra frammistöðu í fyrsta leik. Á heimavelli sem hefur ekki reynst eins gjöfull og undanfarin tímabil.

Engin skjálftavirkni eftir miðnætti
Smáskjálftahrinunni sem hófst í gær við Lágafell, rétt norðvestan við Grindavík, lauk um klukkan hálf fjögur í gær. Alls voru skjálftarnir um 90 talsins og var virknin mest um klukkan 13 og 14 í gær þegar 35 skjálftar mældust.

Fundu veg nær gosinu fyrir tilviljun
Æ fleiri hafa undanfarið reynt að komast að eldgosinu við Sundhnjúk og bera það augum undanfarið þrátt fyrir að svæðið sé lokað. Bandarískir ferðamenn sem fréttastofa ræddi við voru himinlifandi með útsýnið.