Rangárþing ytra
1 2 3 4 5 6 7 … 15 ›
Fimmtán börn veik í gærkvöldi en fimmtíu í morgun Hátt í fimmtíu börn og sjö fullorðnir hafa notið aðstoðar björgunarsveita í nótt og í morgun eftir að hafa veikst í Emstruskála Ferðafélags Íslands, þar sem þau voru í skólaferðalagi. Fleiri tilkynningar hafa borist björgunarsveitum um veikindi á svæðinu frá því í morgun. Innlent 23.8.2024 09:54
Sextíu veikir og minnst sex með nóróveiru Búið er að staðfesta að í það minnsta sex af þeim rúmlega sextíu sem veiktust eftir að hafa gist á Rangárvöllum á síðustu vikum séu með nóróveiru. Unnið er að því að greina sýni úr neysluvatni á svæðinu og hvort nóróveirur hafi borist í vatnsból. Innlent 19.8.2024 16:23
Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Samningur er í höfn milli Landsvirkjunar og íslenska ríkisins um lands- og vindorkuréttindi vegna Búrfellslundar. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur samningur er gerður en Búrfellslundur liggur innan þjóðlendu. Gildistími samningsins er 35 ár með möguleika á framlengingu um 15 ár. Innlent 14.8.2024 15:07
Orsök veikindanna enn á huldu Tugir hafa veikst af iðrasýkingu vegna mögulegrar E.coli- mengunar á Rjúpnavöllum á Rangárvöllum. Nokkrir hafa þurft að leggjast inn. Settur sóttvarnarlæknir segir enn ekki búið staðfesta að uppruni veikindanna sé mengað neysluvatn Innlent 14.8.2024 12:46
Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir sveitarfélögin á áhrifasvæði fyrirhugaðs vindmyllugarðs í Búrfellslundi verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni af framkvæmdunum og segir ákvörðun munu verða tekna um hvort kæra eigi útgáfu Orkustofnunar á virkjanaleyfi á næstu sveitarstjórnarfundum. Innlent 14.8.2024 10:19
Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Heilsugæslan skipuleggur nú sýnatökur vegna mögulegar mengunar af völdum e. coli í neysluvatni á Rjúpnavöllum á Rangárvöllum. Í tilkynningu frá sóttvarnalækni segir að e. coli hafi verið staðfest, í litlu magni, í vatnssýnum frá Rangárvöllum. Innlent 14.8.2024 10:13
Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fyrsta leyfið fyrir vindorkuver á Íslandi var veitt í dag. Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun virkjanaleyfi fyrir Búrfellslundi þar sem stefnt er að því að reisa þrjátíu vindmyllur. Innlent 12.8.2024 23:05
Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Orkustofnun veitti í dag virkjunarleyfi fyrir vindorkuverið Búrfellslund við Vaðöldu í Rangárþingi ytra. Landsvirkjun hyggst þar byggja upp fyrsta vindorkuver landsins. Gert er ráð fyrir að 28 til 30 vindmyllur rísi sunnan Sultartangastíflu á 17 ferkílómetra svæði og uppsett afl verði um 120 megavött. Innlent 12.8.2024 17:32
Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Veikindi meðal göngufólks á Rjúpnavöllum í Rangárþingi ytra sem mögulega er talið að megi rekja til kólíbaktería, E.coli eru til rannsóknar hjá Sóttvarnalækni og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Innlent 12.8.2024 17:04
Á bólakafi í Hólmsá Björgunarsveitir voru fyrr í dag kallaðar út til aðstoðar ferðamanni sem hafði fest bíl sinn í Hólmsá. Innlent 4.8.2024 19:51
Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Ferðamenn festu bíl af gerðinni Dacia Duster í Jökulgilskvísl rétt vestan við Kýlinga á Fjallabaksleið nyrðri rétt fyrir hádegi í dag. Björgunarsveitir brugðust skjótt við, komu fólkinu til bjargar og fjarlægðu bílinn úr ánni. Innlent 28.7.2024 14:45
Karfa loftbelgsins valt á hliðina í lendingunni Þeir sem sáu loftbelginn hverfa upp í háloftin yfir Rangárvöllum í beinni útsendingu Stöðvar 2 í gærkvöldi vilja eflaust margir vita hvernig flugferðin endaði. Hér sjáum við þá sögu. Innlent 10.7.2024 22:44
Sjáðu Kristján Má takast á loft í beinni Þýskur loftbelgur hefur sést á flugi yfir Rangárvöllum í dag en hann er hingað kominn vegna flughátíðarinnar Allt sem flýgur sem haldin verður á Helluflugvelli um næstu helgi. Kristján Már Unnarsson fréttamaður klöngraðist um borð og tókst á loft í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.7.2024 20:42
Myndskeið af flugi loftbelgs yfir Rangárvöllum í morgun Fyrsta loftbelgsflugið yfir Rangárvöllum í morgun stóð yfir í um eina og hálfa klukkustund og tókst að óskum. Ljósmyndir og myndskeið úr flugferðinni frá Flugmálafélagi Íslands fylgja þessari frétt. Innlent 9.7.2024 14:29
Loftbelgur á flugi yfir Suðurlandi í morgun Stærðarinnar loftbelgur er þessa stundina á flugi yfir Rangárvöllum. Byrjað var eldsnemma í morgun að blása hann upp á Helluflugvelli. Sást hann taka flugið upp úr klukkan sex og hefur hann svifið yfir nágrenni Hellu og Ytri-Rangá síðustu klukkustund. Innlent 9.7.2024 06:54
Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Mennirnir tveir sem handteknir voru í tengslum við vopnamál í Rangárþingi ytra í gær eru lausir úr haldi. Hald hefur verið lagt á skotvopn en lögregla vill ekki staðfesta hvort skotum hafi verið hleypt af. Innlent 7.7.2024 10:48
Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Tveir voru handteknir í aðgerðum lögreglu í Rangárþingi ytra í dag. Lögregla, sem naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra, hefur lokið aðgerðum á vettvangi og rannsókn er á frumstigi. Innlent 6.7.2024 20:22
Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í útkall á þriðja tímanum í dag til að aðstoða lögregluna á Suðurlandi á Hala í Háfshverfi í Rangárþingi ytra. Karl Rúnar Ólafssonsegir ábúendur á Hala hafa skotið að gröfumanni sem var við vinnu. Uppákoman tengist deilum um jarðareign sem má rekja allt aftur til ársins 1929. Innlent 6.7.2024 16:34
Komu fótbrotnum göngumanni til bjargar Hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Landmannalaugum sinnti í dag útkalli vegna göngumanns sem hafði dottið á Bláhnjúk skammt sunnan Landmannalauga. Innlent 2.7.2024 22:39
Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Fyrsta hálendisvakt sumarsins leggur af stað upp úr hádegi. Tólf björgunarsveitarmenn sjá um fyrstu vaktina og segir einn þeirra gleðina vera ein af aðalástæðunum fyrir því að fólk nýti sumarfríið sitt í að bjarga ferðamönnum. Innlent 30.6.2024 12:54
Borða með puttunum á Hellu Það er mikil upplifun fyrir ferðamenn, sem fara í hellana á Hellu til að fá sér að borða því lambakjötið þar er borðað með puttunum að hætti Víkinga. Hellarnir eru taldir vera eldri en landnám Íslands. Innlent 13.6.2024 21:04
Óska eftir sameiningarviðræðum þrátt fyrir andstöðu meirihluta Hreppsnefnd Ásahrepps ætlar að óska eftir viðræðum um sameiningu við tvö önnur sveitarfélög, þrátt fyrir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi í skoðanakönnun íbúa. Sveitarstjórinn segir að íbúar muni fá lokaorðið um sameiningu. Innlent 7.6.2024 12:01
Húsbóndinn á Árbakka hafði aldrei heyrt um þriðju vaktina Óhætt er að segja að líf fjölskyldunnar á hestabúgarðinum á Árbakka snúist í kringum hesta. Hestamennskan sameinaði þau á áttunda áratugnum. Lífið 3.6.2024 15:00
Segir veginn ekki hafa gefið sig Starfsmenn Vegagerðarinnar á vettvangi rútuslyssins á Rangárvallavegi í gær segja ekki hafa séð þess merki að vegurinn hafi gefið sig undan rútunni. Innlent 26.5.2024 16:19
Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Hjón sem lentu í rútuslysi, ásamt 25 öðrum, í Rangárvallasýslu í gær segja ótrúlegt að ekki hafi farið verr. Þrír úr hópnum köstuðust út úr rútunni þegar hún valt en allir eru á batavegi. Þau segja þakklæti til viðbragðsaðila efst í huga. Innlent 26.5.2024 13:59
Ummerki um að vegurinn hafi gefið sig Ummerki eru um að vegur hafi gefið sig að hluta til þegar rúta með 27 manns innanborðs valt í Rangarþingi ytra í gær. Sjö voru fluttir á Landspítalann með þyrlum, en líðan þeirra er sögð stöðug. Innlent 26.5.2024 11:01
Ræða mögulega við rútubílstjórann í dag Lögregla mun mögulega í dag ræða við bílstjóra rútunnar sem valt á Rangárvallavegi við bæinn Stokkalæk í Rangárþingi ytra í gær. Rútan var á vegum Guðmundar Tyrfingssonar ehf. Um borð í rútunni voru 26 manns í hópferð. Allt Íslendingar. Innlent 26.5.2024 08:34
Allir um borð í rútunni Íslendingar Allir þeir 27 sem slösuðust þegar rúta valt á Rangárvallavegi nálægt Stokkalæk rétt fyrir 17 í dag eru Íslendingar. Áverkar á fólki voru mismunandi, frá minniháttar meiðslum upp í meiriháttar áverka, en allir voru fluttir á sjúrahús til aðhlynningar. Innlent 25.5.2024 20:49
Sjö fluttir með þyrlu eftir rútuslys á Suðurlandi Rútuslys varð í Rangárvallasýslu rétt fyrir klukkan fimm í dag. Hópslysaáætlun var virkjuð í kjölfarið. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út og fluttu sjö til Reykjavíkur. Allir farþegar rútunnar hafa verið fluttir af vettvangi. Innlent 25.5.2024 17:36
Langt í að þeir nái sér að fullu Ferðamenn sem voru hætt komnir eftir harðan árekstur á þjóðvegi 1 við Hellu um síðustu helgi telja bílbeltin hafa bjargað lífi þeirra. Bíllinn sem þeir voru á gjöreyðilagðist í árekstrinum og annar ferðamannanna liggur enn talsvert þungt haldinn á Landspítalanum. Innlent 28.4.2024 19:47