
Jafnréttismál

Fleiri staðreyndir um jafnlaunavottun – íþyngjandi og kostnaðarsamt regluverk
Þann 19. þessa mánaðar birtist snemma dags grein eftir Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann, á þessum vettvangi þar sem hún gagnrýndi að jafnlaunavottun skildi vera lögbundin skylda í stað þess að vera valkvæð. Benti hún á að mörgum atvinnurekendum þyki þessi skylda kostnaðarsöm og íþyngjandi, með takmörkuðum árangri.

Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“
„Íslenska töluð með hreim er samt íslenska,“ segir Athena Neve Leex, stjórnarkona í UAK, félagi Ungra athafnakvenna, í samtali um mikilvægi fjölmenningar og inngildingar en í byrjun þessa mánaðar stóð félagið fyrir viðburði þessu máli tengt.

Staðreyndir um jafnlaunavottun
Vinnuveitendur hafa ýmis tæki og tól til þess að tryggja lagaleg réttindi starfsfólks og er jafnlaunavottun eitt þeirra. Ýmis rök mæltu með því að jafnlaunavottun væri gerð að lagaskyldu árið 2017, meðal annars þau að áratugalöng barátta fyrir launajafnrétti hafði litlu skilað þrátt fyrir að fyrstu íslensku lögin um launajöfnuð kvenna og karla hafi verið sett árið 1961.

Kosningafundur um jafnréttismál
Kvennaár 2025 boðar til opins kosningafundar um jafnréttismál með fulltrúum stjórnmálaflokkanna í dag. Viðburðurinn hefst klukkan tólf og stendur yfir til klukkan hálftvö.

Betra heilbrigðiskerfi fyrir konur
Heilbrigðiskerfið okkar á rætur að rekja til tíma þar sem þjónustan var að mestu mótuð af körlum.

„Ekki stoltur af því að hafa verið partur af eitraðri menningu“
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir miður að hafa verið partur af eitraðri menningu sem ríkti á útvarpsstöðinni X-inu og víðar á tímabili.

Þórður Snær mun ekki taka þingsæti
Þórður Snær Júlíusson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að taka ekki þingsæti hljóti hann kjör í komandi alþingiskosningum. Frá þessu greinir hann í yfirlýsingu á Facebook rétt fyrir hádegi.

Viðhorf til kvenna í leiðtogastörfum versnar
Niðurstöður vísitölunnar ,,Reykjavik Index for leadership“ benda til bakslags í viðhorfi til kvenna í leiðtogastörfum á heimsvísu. Ísland er efst í vísitölunni en tapar tveimur stigum á milli ára.

Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum
Gestir á Heimsþingi kvenleiðtoga segja kominn tími til að grípa til aðgerða til að vinna gegn því bakslagi sem hafi orðið í jafnréttismálum á alþjóðlegri grundu. Þetta segir stjórnarformaður þingsins sem hófst í morgun.

Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga
Heimsþing kvenleiðtoga Reykjavik Global Forum, fer fram í Hörpu í dag og á morgun. Þingið er skipulagt í samstarfi við fjölmarga erlenda og innlenda aðila, og í ár er sérstök áhersla lögð á að kvenleiðtogar taki höndum saman undir yfirskriftinni „Power Together for Action.”

Að vera ung kona á Íslandi árið 2024
Þrátt fyrir að vera einungis tuttugu og eins árs gömul hef ég upplifað óþægilegar og óþolandi aðstæður sem munu fylgja mér út lífið. Í skóla er okkur kennt að Ísland sé besta ríki heims fyrir konur; hér sé jafnrétti í námi og vinnu, konur njóti frelsis og tækifæra sem eru ekki sjálfsögð í mörgum öðrum löndum.

Vekja athygli á bágri stöðu nepalskra kvenna með fjallgöngu
Hópur íslenskra og nepalskra fjallgöngukvenna gengu á dögunum upp á tindinn Lobuche í Himalayafjöllum til að vekja athygli á stöðu kvenna í Nepal og í fjallgöngugeiranum. Lobuche er rúmlega sex þúsund metra hár.

Og segja mér hver fær að vera fyrirmynd?
Það var sagt í gærkvöldi í beinni „fyrirmyndir skipta máli“. Ég vil taka fram það er alveg hárrétt, fyrirmyndir skipta miklu máli. Kona sem lét þau orð falla er ein af mínum fyrirmyndum.

Segir ummæli Trump um konur móðgun við alla
Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrata segir ummæli Donald Trump um að hann ætli að vernda konur „sama þótt þær vilji það eða ekki“ móðgun við alla. Harris segir þessi ummæli sýna að hann skilji ekki umboð kvenna, yfirráð þeirra eða rétt þeirra og getu til að taka ákvarðanir um sitt eigið líf, þar á meðal líkama sína.

Fá greitt 150 þúsund krónum minna en læknar í sömu stöðu
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Fíh, hefur sent inn kæru til Kærunefndar jafnréttismála vegna þess að forstöðuhjúkrunarfræðingar á tveimur sviðum Landspítalans fá greidd um 150 þúsund krónum lægri laun en forstöðulæknar á sömu sviðu.

Jafnlaunavottun verði valkvæð en ekki skylda
Félag atvinnurekenda lýsir yfir stuðningi við frumvarp Diljár Mistar Einarsdóttur og fleiri þingmanna um að jafnlaunavottun verði ekki lagaskylda fyrir fyrirtæki með fleiri en 25 starfsmenn, heldur valkvæð.

49 ár
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna helgaði árið 1975 stöðu kvenna. Af því tilefni tóku kvenfélög og kvennasamtök hér á landi höndum saman og skipulögðu viðburði til að koma kröfum kvenna um jafnrétti á framfæri. Tillaga um að konur legðu niður störf á degi Sameinuðu þjóðanna þann 24. október var ein þeirra.

Allt næsta ár undir til að halda byltingunni áfram
Hátt í fjörutíu samtök munu í dag afhenda formönnum stjórnmálaflokkanna kröfugerð og krefjast aðgerða svo ná megi fullu jafnrétti. Stefnt er að fjölbreyttri dagskrá allt næsta ár, þegar 50 ár verða liðin frá fyrsta Kvennafrídeginum.

Við ætlum áfram, ekki afturábak
Á næsta ári verða liðin 50 ár frá kvennaverkfallinu árið 1975, þegar konur úr öllum samfélagshópum lögðu niður vinnu og stóðu saman með það að markmiði að berjast fyrir bættri stöðu og kjörum kvenna. Tilefnið var ærið, enda voru réttindi og staða kvenna á vinnumarkaði langtum verri en nú er.

Karlar á jeppum og því er snjóruðningur góður
Talsverð vinna hefur verið lögð í það í fjárlögum að finna út hvaða áhrif lögin hafa á jafnrétti kynjanna. Þannig er að finna sérstakan kafla í frumvarpi til fjáraukalaga þar sem gerð er grein fyrir þessari vinnu og niðurstöðum hennar.

Ómissandi fjársjóður!
Ómissandi fjársjóður! Kvenréttindadagurinn mikli er í dag og tilvalið að ræða stöðu innflytjendakvenna, kvenna af erlendum uppruna. Konur af erlendum uppruna í atvinnulífinu á Íslandi eiga betra skilið.

Rödd skynseminnar
Stjórnvöld og ákvarðanir þeirra spegla þann tíðaranda sem er uppi hverju sinni, enda samsett fólki sem er þverskurður samfélagsins. Það er mikilvægt að líta um öxl og horfa gagnrýnum augum á þær ákvarðanir sem stjórnvöld hafa tekið í tilraun til þess að tryggja að ákvarðanir framtíðarinnar séu hafnar yfir persónulegar kreddur, vanþekkingu, fordóma og óöryggi.

Martha Lilja verður framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu
Martha Lilja Olsen hefur verið skipuð framkvæmdastjóri Janfréttisstofu. Það er Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra sem skipar Mörthu í embættið en alls sóttu sex um embættið.

„Leiðangurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“
Eftir viku halda tvær íslenskra konur, Soffía Sigurgeirsdóttir og Lukka Pálsdóttir, til Nepal til að ganga upp á austurtind Lobuche í Himalayafjöllum í Nepal. Upp að tindi eru 6.119 metrar. Soffía og Lukka ganga til stuðnings sjerpa fjallgöngukonum í Nepal.

Dætur, systur, frænkur, vinkonur
Í dag er alþjóðlegur dagur stúlkubarnsins, dagur sem Sameinuðu þjóðirnar tileinka konum og stúlkum. Þennan dag ár hvert er staða stúlkna og kvenna í heiminum metin og vakin athygli á málefnum sem snúa að öryggi þeirra og velsæld.

Alls hlutu 130 viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í dag
Alls hlutu í dag 93 fyrirtæki, 15 sveitarfélög og 22 opinberir aðilar viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA. Metfjöldi viðurkenningarhafa tóku við viðurkenningu í dag, eða alls 130, fyrir að hafa náð að jafna kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum.

Jafnlaunavottun átti aldrei að vera skylda
Lögum um jafnlaunavottun var ætlað að stuðla að jafnrétti á vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins komu að mótun jafnlaunastaðalsins á sínum tíma en voru hins vegar ekki fylgjandi lögfestingu hans. Samtökin gerðu margvíslegar athugasemdir við lagafrumvarpið á sínum tíma og hafa varnaðarorðin raungerst.

Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til
Kynjafræðingurinn Þorsteinn V. Einarsson hefur tilkynnt að ekki verði teknir upp fleiri þættir af hlaðvarpi hans, Karlmennskunni.

Orlof húsmæðra: Barn síns tíma eða liður í jafnrétti?
Meðlimur í orlofsnefnd húsmæðra mótmælir áformum þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að afnema lög um orlof húsmæðra og segir að það yrði skerðing á lífsgæðum fjölmargra kvenna.

Gerir óþægilegt samtal auðveldara
Ný launavakt, Rúna, gefur fyrirtækjum færi á að fá upplýsingar um laun starfsmanna mánaðarlega. Lausnin er hönnuð hjá Origo og er ætlað að auka gagnsæi í launum. Lausnin hefur verið í þróun í tvö ár og var opnuð fyrirtækjum síðasta föstudag.