Leikjadómar

Assassins Creed Shadows: Ekki þessi ömurlegi leikur sem netið lofaði
Leikurinn Assassins Creed Shadows kom mér bara nokkuð á óvart. Internetið var fyrir mörgum mánuðum síðan búið að staðfesta að leikurinn sökkaði. Svo er samt ekki. Þetta er bara frekar góður leikur, þó sagan sé ekkert beint framúrskarandi. Sögusviðið er samt frábært og það er alltaf jafn undarlegt að Ubisoft hafi ekki leitað þangað fyrr.

Avowed: Í senn hefðbundinn og framúrskarandi hlutverkaleikur
Ævintýraleikurinn Avowed kemur skemmtilega á óvart, þó hann sé í grunninn mjög beisik. Sagan er einkar áhugaverð og bardagakerfið skemmtilegt, þó það sé einfalt.

Kingdom Come Deliverance 2: Geggjuð fyrirsögn um geggjaðan leik
Henry af Skalitz er loksins snúinn aftur, sjö árum síðan við hittum hann fyrst. Upprunalegi Kingdom Come: Deliverance, sem kom út árið 2018, er einn af mínum uppáhalds leikjum og KCD2 er svo sannarlega ekki að valda vonbrigðum.

Sniper Elite: Resistance - Fátt nýtt í annars allt í lagi leik
Ég hef lengi verið aðdáandi Sniper Elite leikjanna. Ég spilaði upprunalega leikinn, sem kom út árið 2005 mikið og hef spilað langflesta af leikjunum síðan þá. Þeir eru margir. Sá nýjasti, Resistance, finnst mér samt koma með lítið sem ekkert nýtt að borði og ég hef rekið mig á fullt af göllum við spilunina.Þá er bersýnilegt að grafíkvél leiksins er komin til ára sinna.

Stalker 2: Töluvert gallaður en æðislegur leikur
S.T.A.L.K.E.R. 2: Heart of Chornobyl er æðislegur leikur. Hann er þó töluvert gallaður enn sem komið er, en í rauninni á maður ekki að búast við öðru af Stalker-leik. Andrúmsloft leiksins stendur upp úr

Dragon Age Veilguard: Fimmtán ára ævintýri lýkur
Dragon Age Veilguard er fjórði og síðasti leikurinn í mjög svo vinsælli leikjaseríu. Thedas er í mikilli hættu, eins og yfirleitt, og spilarar þurfa að bjarga málunum með því að berjast gegn fornum guðum og illum áhangendum þeirra.

Horizon Zero Dawn uppfærður: Besta tækifærið til að stökkva í sögu Aloy
Horizon Zero Dawn var þegar hann kom út árið 2017 mjög góður leikur. Hann er það enn og það má alveg spyrja hver þörfin var á uppfærslu. Ég gæfi samt mikið fyrir að vera að spila þennan leik í fyrsta sinn aftur.

COD Black Ops 6: Myrkraverkin hafa sjaldan verið betri
Call of Duty: Black Ops 6, eða Skyldan kallar: Myrkraverk 6, er að mínu viti meðal betri COD-leikja sem ég hef spilað um árabil. Einspilunin er sérstaklega skemmtilegt að þessu sinni en ég hef lengi verið mikill aðdáandi þeirra hluta þessara leikja.

Until Dawn: Flott endurgerð á hryllilegum leik
Hryllingsleikurinn Until Dawn, frá 2015, hefur verið endurgerður. Þó hann sé níu ára gamall hefur upprunalegi leikurinn verið vinsæll meðal hryllingsleikja þar sem hann gefur spilurum möguleika á að hafa mikil áhrif á söguna. Endurgerðin gerir þó mikið fyrir útlit leiksins og hann lítur merkilega vel út.

God of War Ragnarök á PC: Kratos er enn klikkaður
Það ætti ekki að koma neinum á óvart að God of War Ragnarök er enn þá frábær leikur, sama hvort hann sé spilaður í PlayStation eða PC-tölvu. Kratos er enn klikkaður og leikurinn stendur enn meðal þeirra allra bestu.

Space Marine 2: Fyrirtaks skemmtun af gamla skólanum
Space Marine 2 er ekki fullkominn leikur, þeir eru það fáir, en hann er alveg rosalega skemmtilegur. Að mörgu leyti minnir hann á eldi skotleiki og líkist að miklu leyti Gears of War og Doom leikjunum.

Astro Bot: Astro stígur ekki feilspor í nánast fullkomnum leik
Sumir leikir eru bara einföld og saklaus skemmtun. Þeir eru ekki margir en Astro Bot er svo sannarlega einn þeirra en þar að auki lítur hann stórkoslega vel út. Þetta er í þriðja sinn sem krúttlega vélmennið fær tölvuleik, á eftir Astro‘s Playroom og sýndarveruleikaleiknum Astro Bot Rescue Mission.

Star Wars Outlaws: Ekki eins hræðilegur og internetið segir
Star Wars Outlaws er í fljótu bragði ekki framúrskarandi leikur sem gerist í opnum heimi. Hann fylgir öllum helstu formúlunum og fer sjaldan upp úr þeim förum en hann er þó skemmtilegur og býr yfir góðri sögu úr Star Wars söguheiminum. Hann er ekki gallalaus og hefði haft gott af smá fínpússun fyrir útgáfu.

Ghost of Tsushima: Kominn út á PC og enn geggjaður
Ghost of Tsushima er ekkert verri á PC en hann var á PS5. Þetta er enn einn af mínum uppáhaldsleikjum. Fáir leikir hafa jafn gott andrúmsloft og þessi þar sem berjast þarf gegn hjörðum Mongóla, í einstöku umhverfi.

Senua’s Saga: Hellblade 2: Merkilega flott stafræn upplifun
Senua’s Saga: Hellblade 2 er merkilega flottur leikur og áhrifamikill en hann getur á köflum verið merkilega langdreginn. Það er þótt það taki bara nokkrar klukkustundir að spila sig í gegnum hann. Auk grafíkarinnar stendur hljóð leiksins uppúr.

Dragon's Dogma 2: Skemmtilegur en í senn óþolandi
Það er ansi margt sem mér finnst mjög gott við Dragon's Dogma 2. Sömuleiðis eru margar ákvarðanir sem hafa verið teknar við framleiðslu leiksins sem mér þykir vægast sagt undarlegar. Leikurinn er þó fyrst og fremst skemmtilegur, þegar hann er ekki óþolandi.

Rise of the Ronin: Kunnuglegur leikur frá Team Ninja
Framleiðendur Rise of the Ronin hjá Team Ninja virðast við fyrstu sýn hafa hent haug af leikjum eins og Nioh, Dark souls og jafnvel smá dass af Assassins Creed. Leikurinn gerist í Japan á seinni hluta nítjándu aldarinnar, þegar þriggja alda einangrun eyríkisins var að ljúka, með tilheyrandi óreiðu.

Helldivers 2: Geimverur drepnar í nafni velmegunar
Helldivers 2 er þrususkemmtilegur fjölspilunarleikur sem einkennist af óreiðu og húmor. Um er að ræða einn óvæntasta smell ársins og hefur velgengni leiksins komið framleiðendum hans á óvart.

Like a Dragon: Infinite Wealth - Fíflagangur í fyrirrúmi
Like a Dragon: Infinite Wealth er „japanskasti“ leikur sem ég hef nokkurn tímann spilað. Í grunninn er um að ræða hlutverkaleik, þar sem maður byggir upp teymi bandamanna og berst gegn vondum körlum en að öðru leyti á ég gífurlega erfitt með að lýsa LADIW svo einfalt sé.

Bestu leikir ársins: Ævintýraleikir fyrirferðarmiklir á góðu ári
Árið 2023 var nokkuð gott þegar kemur að tölvuleikjum. Ansi margir góðir leikir litu dagsins ljós og nokkrir leikir sem fengu áður misjafnar móttökur bættu stöðu sína töluvert.

Avatar: Frontiers of Pandora - Einstaklega fallegur leikur en á köflum of einsleitur
Avatar: Frontiers of Pandora er mögulega fallegasti leikur sem ég hef spilað. Grafíkin og hljóðið er framúrskarandi en því miður má ekki segja það sama um söguna og þar að auki getur leikurinn verið frekar einsleitur.

UFC 5: Fátt nýtt í annars fínum leik
Það eru engir aðrir leikir sem fanga blandaðar bardagalistir eins og UFC serían. Fimmti leikurinn er sá fyrsti í þrjú ár og hafa nokkrar vel heppnaðar breytingar verið gerðar milli leikja. Þær mættu þó vera fleiri og umfangsmeiri þar sem UFC 5 fetar frekar vel troðna slóð.

Assassin's Creed Mirage: Andi Altaïr svífur yfir vötnum
Assassin's Creed Mirage markar ákveðið skref afturábak hjá Ubisoft. Búið er að draga seglin saman og minnka leikinn, sé hann borinn saman við síðustu leiki í Assassin's Creed seríunni, sem hafa verið gífurlega stórir.

Spider-Man 2: Stærri og í senn betri Spider-Man
Spider-Man 2 tekst einhvern veginn að vera bæði stærri og betri en fyrri leikurinn, sem er mjög sjaldgæft meðal framhaldsleikja. Þetta er meðal betri leikjum sem ég hef spilað.

Forza Motorsport: Strangheiðarlegur kappakstursleikur
Forza Motorsport er þrusufínn kappakstursleikur þar sem hægt er að upplifa æsispennandi kappakstra, bæði í einspilun og fjölspilun. Þetta er hægt að upplifa á raunverulegum bílum, hvort sem það eru rándýrir kappakstursbílar eða hefðbundnir götubílar.

Cyberpunk Phantom Liberty: Nánast nýr leikur og betri
Umfangsmiklar breytingar á leiknum Cyberpunk 2077 og aukapakki sem kallast Phantom Liberty hafa leitt til þess að leikurinn virðist nánast vera nýr. Þær breytingar sem hafa verið gerðar bæta leikinn mjög en ég hef samt rekist á þó nokkra galla.

Starfield: Stærsti leikur ársins er ekki sá besti en ég elska hann
Fárra leikja hefur verið beðið af jafn mikilli eftirvæntingu og Starfield. Það er fyrsti leikur fyrirtækisins Bethesda, sem eru þekktastir fyrir Fallout og Elder Scrolls leikina, sem gerist í nýjum söguheimi í nokkra áratugi.

Immortals of Aveum: Erfitt að vera meira miðlungs
Einn af framleiðendum Immortals of Aveum lýsti honum einu sinn sem Call of Duty með galdra og er hann kallaður „Fyrstu persónu galdraskotleikur“. Það er ekkert fjarri lagi en í leiknum setur maður sig í spor hermanns og galdramanns í dularfullum heimi þar sem ríki berjast í endalausu stríði um yfirráð yfir göldrum.

Baldur's Gate 3: Mögulega heimsins besti hlutverkaleikur
Baldur‘s Gate 3 er líklega besti Dungeons & Dragons leikur sem gerður hefur verið. Spilun hans er einkar skemmtileg og fjölbreytt. Í fljótu bragði man ég ekki eftir að hafa upplifað annað eins frelsi við að leysa úr verkefnum leiks og drepa skrímsli og drullusokka.

Synapse: Hugarorkan ræður ríkjum í Sýndarveruleika
Synapse, nýjasti sýndarveruleikaleikur PSVR2, sýnir mátt tækninnar gífurlega vel. Hann er hraður og skemmtilegur, þó hann geti verið einsleitur á köflum. Í Synapse fær maður að fleygja hlutum og óvinum til og frá með hugarorkunni, skjóta óvini með byssum eða sprengja þá í loft upp.