

Starfsmenn Hvíta hússins gáfu út í kvöld að blaðamannapassi Jim Acosta, fréttamanns CNN, verður virkjaður á nýjan leik.
Ríkisstjórn Donald Trump ætlar sér að fella niður aðgang Jim Acosta, fréttamanns CNN, að Hvíta húsinu aftur. Það er um leið og úrskurður dómara um að Acosta eigi að fá aðgang rennur út.
Nafn Assange birtist í dómskjölum frá því í ágúst, sem uppgötvuðust aðeins í gær, þar sem saksóknari var að reyna að fá dómara til að innsigla dómsskjöl í máli manns sem var sakaður um kynferðisbrot gegn barni.
Síðustu dagar í Hvíta húsinu hafa einkennst af mikilli bræði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og óreiðu en von er á miklum sviptingum meðal starfsmanna forsetans.
Stjórnmála- og embættismenn í Washington DC undirbúa sig nú fyrir pólitískt stríð í kjölfar yfirtöku Demókrata á fulltrúadeild Bandaríkjaþings og brottreksturs Jeff Sessions, dómsmálaráðherra.
Stafandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna er lýst sem hollum Trump forseta. Hann gæti stöðvað eða verulega hamlað rannsókn Roberts Mueller á meintu samráði framboðs Trump við Rússa.
Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í þingkosningum á þriðjudag.
FBI hefur fengið til rannsóknar ásakanir um að reynt hafi verið að múta konum til að ljúga upp á yfirmann Rússarannsóknarinnar á forsetaframboði Donalds Trump.
Starfsmaður fjármálaráðuneytisins er sakaður um að hafa lekið bankaskýrslum um möguleg ólöglegt athæfi sem tengist Rússarannsókninni svonefndu.
Ekkert liggur þó fyrir um að rannsókn Roberts Mueller á meintu samráði Trump við Rússa sé að klárast.
Hann mætti til fundar við John Kelly, starfsmannastjóra Hvíta Hússins, í dag og væntu fjölmiðlar þess að hann myndi annaðhvort segja af sér eða vera rekinn.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur fyrirskipað að gögn sem tengjast Rússarannsókninni svokölluðu, rannsókn Robert Mueller á afskiptum Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum, verði gerð opinber.
Paul Manafort fyrrverandi kosningastjóri Donalds Trump Bandaríkjaforseta, hefur samþykkt að starfa með rannsakendum Mueller í skiptum fyrir vægari dom í máli er varðar peningaþvætti og störf hans fyrir erlendar ríkisstjórnir.
Ekki liggur fyrir hvort að í játningarkaupum Pauls Manafort fælist að hann ynni með rannsakendum Roberts Mueller.
Saksóknarar fullyrtu að lygar Georges Papadopoulos hefðu hindrað rannsókn FBI á mikilvægum tímapunkti. Hann var dæmdur í tveggja vikna fangelsi vegna lyganna í dag.
Aðstoðarmenn forsetans eru sagðir hafa hunsað skipanir sem þeir töldu skaðlegar hagsmunum Bandaríkjanna eða forsetans sjálfs.
W. Samúel Patten, fyrrverandi samstarfsmaður Paul Manafort, hefur játað fyrir dómi að hafa ekki skráð sig sem útsendara erlendra aðila vegna vinnu hans fyrir úkraínskan stjórnmálaflokk sem er hliðhollur Rússlandi.
Afgerandi meirihluti styður Rússarannsóknina og flestir telja að Trump forseti hafi reynt að hafa áhrif á hana.
Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, sendi frá sér tilkynningu í dag og sagðist ekki hafa fundið vísbendingar um að tölvupóstum hefði verið stolið af Hillary Clinton, þegar hún var utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Lögfræðingurinn er talinn lykilvitni um hvort að Trump forseti hafi hindrað framgang réttvísinnar þegar hann rak forstjóra alríkislögreglunnar FBI.
Tvö dómsmál valda Bandaríkjaforseta miklum vanda. Fyrrverandi kosningastjóri sakfelldur og fyrrverandi lögmaður bendlar hann við glæp. Gætu snúist gegn honum og aðstoðað við Rússarannsóknina.
Hinn 68 ára gamli Paul Manafort er hvað best þekktur þessa dagana sem fyrrverandi kosningastjóri Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann hefur þó verið viðloðin stjórnmál í Bandaríkjunum og víða um heiminn í áratugi og hefur hann meðal annars starfað fyrir fjölda alræmdra einræðisherra í gegnum árin.
Donald Trump Bandaríkjaforseti leitaði fyrir nokkrum vikum ráða hjá lögmannateymi sínu um það hvort ráðlegt væri að náða Paul Manafort, fyrrum kosningastjóra forsetans. Þetta sagði Rudy Giuliani, lögmaður Trumps, í viðtali við Washington Post í dag.
Gærdagurinn var vægast sagt ekki góður fyrir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.
Paul Manafort, fyrrum kosningastjóri Donald Trump, hefur verið fundinn sekur um átta ákæruliði af þeim átján sem hann var ákærður fyrir.
Hann sagði einu ástæðuna fyrir því að rannsókn sérstaka saksóknarans Robert Mueller stæði enn yfir vera þá að hann hefði ekki ákveðið enn að binda enda á hana.
Þeir eru sagðir hafa reynt að komast yfir notendaupplýsingar íhaldssamra samtaka og hugveitna í Bandaríkjunum.
Fyrrverandi varastjórnarformaður landsnefndar Repúblikanaflokksins er grunaður um að hafa óskað eftir milljónum dollara frá erlendum aðilum gegn því að fá Trump-stjórnina til að gera það sem þeir vildu.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sendi frá sér fjölmörg tíst um fréttir af málinu og bæði staðfesti þær og kallaði falsfréttir í sama tísti.