Almannavarnir

Aflýsa óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum
Ekki er vitað til þess að snjóflóð hafi fallið á þjóðvegi eða nærri byggð eins og er.

Varað við hellaskoðun í Eldvörpum
Breytinga hefur orðið vart og vill Veðurstofan vara við hellaskoðun á svæðinu en mælingar sýndu lífshættuleg gildi á koltvísýringi og súrefnisleysi í helli.

Óvissustig vegna mögulegrar snjóflóðahættu á Vestfjörðum
Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt Veðurstofunni hefur verið mjög hvasst síðan snemma í morgun og skafrenningur til fjalla frá því í gær.

Óvissustigi almannavarna fyrir allt landið lýst yfir vegna sprengilægðarinnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir óvissustigi almannavarn fyrir allt landið vegna óveðurs á morgun. Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi og ráðgerir víðtækar lokanir á vegum strax klukkan eitt í nótt þegar djúp lægð gengur inn á landið.

Íslensk fjölskylda súr í sóttkví meðan kínverskir ferðamenn valsa vandkvæðalaust um
Íslensk kínversk fjölskylda er á öðrum degi í sóttkví hér á landi eftir komuna til Íslands frá Kína. Ástæðan er tilmæli sóttvarnalæknis og almannavarna til að koma í veg fyrir útbreiðslu Wuhan-kórónaveirunnar hér á landi.

Fjórtán daga sóttkví fyrir Íslendinga sem koma frá Kína
Almannavarnir hvetja fyrirtæki og stofnanir til að uppfæra viðbragðsáætlanir til að reikna með allt að helmings afföllum starfsmanna vegna Wuhan-kórónaveirunnar.

Æfðu viðbrögð við snjóflóðum í Bláfjöllum
Stór snjóflóðaleitaræfing hófst í Bláfjöllum í morgun, þar sem hundar og fjöldi fólks koma við sögu. Skipuleggjandi æfingarinnar segir snjóflóð síðustu vikna sýna fram á mikilvægi þess að björgunarsveitir séu ávallt viðbúnar, og kunni réttu handtökin.

Telur innskot kviku líklegra en eldgos á Reykjanesskaga
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur, einn kunnasti jarðvísindamaður Íslendinga, bendir á háa eðlisþyngd kvikunnar og að kvikuinnskot séu algengari en eldgos.

Almannavarnir hvetja Grindvíkinga til að gæta að lausamunum vegna jarðskjálftahrinu
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra leggur áherslu á að íbúar Grindavíkur fari yfir heimili og vinnustaði hvað varðar hættu á óstöðugum hlutum.

Landrisið við Grindavík komið í fjóra sentímetra á tíu dögum
Land hefur haldið áfram að rísa við Grindavík í dag og mælist landrisið nú fjórir sentímetrar frá því umbrotahrinan í Eldvörpum og Svartsengi hófst fyrir tíu dögum.

Samhæfingarmiðstöð virkjuð til vonar og vara
Samhæfingarmiðstöð almannavarna var virkjuð klukkan tíu í dag þar sem stilla á saman strengi í varúðarskyni vegna Wuhan kórónaveirunnar.

Mikilvægt að huga að flóttaleiðum út úr höfuðborginni
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og formaður samgöngunefndar Alþingis, segir nú vera tækifæri til þess að ræða flóttaleiðir út úr höfuðborginni í ljósi þeirra jarðhræringa sem eiga sér stað í Svartsengi.

Unnið eftir áætlun sem gerir ráð fyrir að atvinnulíf skerðist og dánartíðni hækki
Ákvörðun hefur verið tekin hér á landi um að vinna eftir landsáætlun fyrir heimsfaraldur inflúensu í tengslum við kórónaveiruna. Þetta var ákveðið á fundi Sóttvarnarlæknis og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra.

Líklegt að fyrirvari á eldgosi verði nokkrar klukkustundir
Kvikan sem er að valda landrisinu í Eldvörpum og Svartsengi er núna talin vera á þriggja til fjögurra kílómetra dýpi. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur telur líklegt að hægt verði að vara við eldgosi með nokkurra klukkustunda fyrirvara.

Hefðu sent öll neyðarboðin samtímis ef um neyðartilfelli væri að ræða
Aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir að breytingar á váboðakerfi geti að einhverju leyti skýrt tímamismun á neyðarboðum sem send voru við prófanir á kerfinu í nágrenni Grindavíkur á mánudag.

Hér telur jarðeðlisfræðingurinn líklegast að gossprungan opnist
Komi til eldgoss þykir líklegast að það verði á sprungu norðvestan Þorbjarnar. Þá myndi fjallið virka eins og varnargarður fyrir Grindvíkinga.

Fimm þúsund manns á hættusvæði ef gossprunga opnast við Svartsengi
Hratt landris í Svartsengiseldstöðinni, milli Grindavíkur og Bláa lónsins, hefur haldið áfram í dag. Fimm þúsund manns gætu verið innan hættusvæðis, fari svo að eldgos brjótist út.

Búa sig undir hraungos í Svartsengi á margra kílómetra langri gossprungu
Almannavarnir búa sig undir að hraungos geti opnast á sprungu í Svartsengiseldstöðinni milli Grindavíkur og Bláa lónsins. Hratt landris mælist á svæðinu en jarðeðlisfræðingur segir þó algengast að svona atburður endi með kvikuinnskoti.

Grindvíkingar gantast með hugsanlegt eldgos
Jón Gauti Dagbjartsson strandveiðihetja er pollrólegur vegna hugsanlegs eldgoss

„Höfum lengi velt því fyrir okkur hvaða merki það yrðu sem við sæjum fyrst þegar ný goshrina gengur í garð“
Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna landriss við Þorbjörn, en líklegast þykir að kvika sé að safnast saman undir fjallinu.

Mæling gervitungls skýrir áhyggjur manna af Grindavík og Bláa lóninu
Orkuverið í Svartsengi og Bláa lónið eru inni á rauða blettinum og byggðin í Grindavík í jaðrinum á mynd sem unnin er úr gögnum frá gervitungli.

Almannavarnakerfið samræmir viðbragð vegna óvissustigsins
Búið er að slípa til viðbragð almannavarnakerfisins í heild sinni að sögn upplýsingafulltrúa hjá Landsbjörg. Búið sé að fara yfir helstu verkferla ef til viðbragðs kemur.

Áslaug Arna: „Mikilvægt að fólk sé vel upplýst“
Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna landriss við Þorbjörn í Grindavík, en líklegast þykir að kvika sé að safnast saman undir fjallinu.

Bæjarstjóri Grindavíkur: „Menn vilja vera viðbúnir hinu versta“
Fannar Jónasson segir að þó að menn voni það besta þá verði yfirvöld að vera viðbúin hinu versta, en óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna mögulegrar kvikusöfnunar undir Þorbirni.

Gul eldgosaviðvörun á flug aðeins tólf kílómetra frá Keflavíkurflugvelli
Litakóði alþjóðaflugs fyrir eldfjöll á Reykjanesskaga hefur verið færður yfir á gult. Svæðið er aðeins í tólf kílómetra loftlínu frá flugbrautum Keflavíkurflugvallar, stærsta og mikilvægasta alþjóðaflugvallar landsins.

Óvissustigi lýst yfir vegna mögulegrar kvikusöfnunar við fjallið Þorbjörn
Landris hefur mælst frá 21. janúar og virðist miðja þess vera á Reykjanessskaganum rétt vestan við fjallið Þorbjörn.

Töluð hrein vestfirska á íbúafundum á Flateyri og Suðureyri
búafundur var haldinn á Gunnukaffi á Flateyri í Önundarfirði í dag og stendur nú yfir annar slíkur í félagsheimilinu á Suðureyri við Súgandafjörð en á dögunum féllu snjóflóð í fjörðunum tveimur eins og mikið hefur verið fjallað um.

Sendu síðustu stöðuskýrsluna vegna snjóflóðanna
Aðgerðarstjórn á Ísafirði og Samhæfingastöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík hafa lokið störfum vegna snjóflóða á Flateyri og í Súgandafirði.

Skipa starfshóp sem metur fjárveitingar til ofanflóðasjóðs
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að skipa starfshóp sem fara mun yfir framkvæmdaáætlun ofanflóðasjóðs í kjölfar snjóflóðanna sem féllu á Flateyri og við Suðureyri 14. janúar síðastliðinn.

Óttast að tjónið á Flateyri kunni að vera meira en talið var í fyrstu
Viðbragðsaðilar á Flateyri hafa unnið að verðmætabjörgun í morgun. Ljóst er að gífurlegt tjón hefur orðið í bænum sem enn hefur þó ekki verið metið en óttast er að það gæti verið meira en áður var talið.