Jarðhræringar á Reykjanesi

Íbúar orðnir langþreyttir á skjálftunum: „Maður vaknar bara á hverri einustu nóttu“
Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins í dag er sá næst öflugasti í skjálftahrinunni sem staðið hefur yfir í rúmar tvær vikur. Hann fannst vel á öllum Reykjanesskaganum og alla leið á Sauðárkrók en einnig í Vestmannaeyjum. Hann mældist 5,4 að stærð og var um 2,5 kílómetra vestur af Nátthaga.

Bílasalur Björgunarsveitarinnar Þorbjörns lék á reiðiskjálfi
Það lék allt á reiðiskjálfi í bílasal Björgunarsveitarinnar Þorbjörns á þriðja tímanum í dag þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,4 reið yfir suðvesturhorn landsins.

Vörur hrundu úr hillum þegar jarðskjálftinn reið yfir
Vörur hrundu úr hillum verslunar Nettó í Grindavík þegar heldur kröftugur skjálfti, sem var 5,4 að stærð, reið yfir klukkan 14:15 í dag. Skjálftinn átti upptök sín um fimm kílómetra suðvestur af Fagradalsfjalli.

Kýs eldgos fram yfir þessa stöðugu skjálfta
„Þetta var nú bara töluverður hávaði og högg eins og það væri keyrt á húsið,“ segir Bergur Brynjar Álfþórsson, formaður bæjarráðs Voga á Vatnsleysuströnd. Vogamenn hafa ekki farið varhluta af skjálftahrinunni síðustu vikur en Bergur segir skjálftann í dag þann öflugasta sem hann hefur fundið hingað til. Skjálftinn mældist 5,4 að stærð.

„Það venst ekkert að upplifa þessa stóru skjálfta“
Fannar Jónasson, bæjastjóri í Grindavíkurbæ, segir skjálftann sem reið yfir Reykjanesskaga klukkan 14:15 í dag og var 5,4 að stærð hafa fundist einkar vel í bænum. Mikil skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga í yfir tvær vikur. Mannlífið gangi þó svo til sinn vanagang, þó mörgum íbúum verði ekki um sel þegar stærri skjálftarnir ríða yfir.

„Auknar líkur á eldgosi“
Líkur á eldgosi halda áfram að aukast, að sögn Kristínar Jónsdóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Skjálftavirknin hefur verið að færast til suður en skjálftinn fannst meðal annars á Sauðárkróki.

„Með því sterkara sem hefur fundist“
„Þetta var svona með því sterkara sem hefur fundist. Hann var langur og það hristist vel hérna,“ segir Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjörns í Grindavík.

Suðvesturhornið nötraði þegar skjálfti 5,4 að stærð reið yfir
Afar kröftugur skjálfti varð klukkan 14:15 á Reykjanesskaga, þar sem mikil skjálftavirkni hefur verið síðustu daga og vikur.

Segja útilokað að rafmagnsbilanir tengist jarðhræringum
Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS veitna segir útilokað að jarðskjálftahrinann á Reykjanesi hafi valdið rafmagnsleysi í Hafnarfirði í gærkvöldi og morgun. Þetta er þriðja rafmagnsbilunin hjá HS veitum í þessum mánuði

Skjálfti fimm að stærð sunnan við Fagradalsfjall
Snarpur jarðskjálfti varð klukkan 12:34. Samkvæmt Veðurstofu Íslands var skjálftinn fimm að stærð og átti upptök sín í Sunnanverðu Fagradalsfjalli.

Stærsti skjálftinn í nótt 4,2 að stærð
Jarðhræringar á Reykjanesskaga héldu áfram í nótt og var stærsti jarðskjálftinn 4,2 að stærð þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í fimm í morgun. Alls mældust sjö skjálftar þrír eða stærri eftir miðnætti í nótt.

Rúmlega 1900 skjálftar hafa mælst frá miðnætti
Frá því á miðnætti í dag hafa rúmlega 1900 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga. Virknin var mest við Fagradalsfjall eins og undanfarna daga en nokkrir skjálftanna áttu upptök sín suður af Keili.

Átta jarðskjálftar yfir þrír að stærð frá miðnætti
Af þeim rúmlega þrjú hundruð jarðskjálftum sem hafa mælst á Reykjanes frá miðnætti hafa átta verið yfir 3,0 að stærð. Stærsti skjálftinn var 4,6 að stærð klukkan 1:34.

Ekki ósennilegt að kvika sé nær yfirborði en fyrr í vikunni
Ekki er ósennilegt að kvika sé nær yfirborði en fyrr í vikunni við Fagradalsfjall, þegar hún var á um eins kílómetra dýpi að mati hópstjóra náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands. Vonast sé eftir að gervitunglamynd muni varpa skýrari mynd á það um helgina.

Ólíklegt að sprungan nái til sjávar með tilheyrandi öskugosi
Ólíklegt er að gossprunga sem opnast suður af Fagradalsfjalli nái til sjávar ef horft er til gossögunnar og jarðfræðirannsókna á svæðinu. Eins og staðan er núna er því ósennilegt að það gjósi neðansjávar með tilheyrandi öskugosi, að sögn vísindaráðs almannavarna.

Eldgos í sjó möguleiki
Ekkert lát er á snörpum jarðskjálftum á Reykjanesskaga þrátt fyrir að þeim hafi fækkað síðustu daga. Á þriðja tug jarðskjálfta stærri en þrír hafa mælst frá miðnætti. Sú sviðsmynd er til skoðunar að eldgos gæti orðið í sjó.

Skipar viðbragðshóp vegna mögulegs eldgoss
Ákveðið var á fundi ríkisstjórnar í morgun að skipa sérstakan hóp ráðuneytisstjóra sem er ætlað að eiga í nánu samráði við viðeigandi stofnanir til að undirbúa áætlun til að vernda mikilvæga innviði á borð við vatnsból, orkukerfi og fjarskiptakerfi ef til eldgoss kemur.

Snarpur morgunskjálfti 5,0 að stærð
Snarpur skjálfti fannst á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu um 7:43 í morgun. Skjálftinn var 5,0 að stærð við Fagradalsfjall.

Fimmtán skjálftar yfir þremur í nótt
Alls hafa um 750 skjálftar mælst á Reykjanesskaga frá því á miðnætti í nótt. Þar af hafa fimmtán skjálftar verið yfir þremur að stærð og sá stærsti fjórir að stærð.

Bein útsending af Fagradalsfjalli
Mikil skjálftavirkni og jarðhræringar hafa staðið yfir á Reykjanesi að undanförnu og hefur kvika brotið sér leið í átt að yfirborði jarðar. Vísir er með vefmyndavélar á svæðinu þar sem hægt er fylgjast með óróasvæðinu.

Jarðhræringar á Reykjanesskaga: Fylgst með úr öllum áttum
Enn eru líkur á eldgosi við sunnanvert Fagradalsfjall þó svo að kvikugangurinn hafi færst síðasta sólarhringinn. Fornleifafræðingar leggja nótt við dag við að skrásetja fornminjar á svæðinu sem gætu farið undir hraun.

Líkur á að hraun renni yfir Suðurstrandarveg
Jarðskjálfti af stærðinni 4,6 í Eldvörpum skömmu fyrir klukkan níu í morgun er merki um spennubreytingar á Reykjanesskaga. Smáskjálftavirkni á svæðinu er en talinn fyrirboði eldgoss en talið er að kvikugangurinn við Fagradalsfjall hafi færst til suðurs.

Kvikan smám saman að brjóta sér leið til suðurs
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, telur um helmingslíkur á eldgosi eins og staðan er núna. Þá sagði hún stóran jarðskjálfta við Eldvörp í morgun ekki til marks um að kvika brjótist upp við upptök hans. Kvikugangurinn undir Fagradalsfjalli sé jafnframt að færast til suðurs.

Stór skjálfti vestan af Grindavík
Jarðskjálfti að stærðinni 4,6 varð við Eldvörp um tvo kílómetra suður af Sandfellshæð á Reykjanesskaga klukkan 8:53.

Um 800 skjálftar frá miðnætti
Enn er mikil skjálftavirkni í og við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga og hafa um 800 skjálftar mælst á svæðinu frá því á miðnætti. Nokkrir þeirra hafa verið yfir þremur að sögn Huldu Rósar Helgadóttur, náttúruvársérfræðings, og var sá stærsti 3,4.

Sjö skjálftar yfir 3 á áttunda tímanum
Frá því kl. 19.22 hafa sjö skjálftar yfir 3 mælst á Reykjanesskaga. Röðin hófst með skjálfta upp á 3,6 en nýjasti skjálftinn, sem mældist kl. 19.49 var 3,7.

Margir leita til heilsugæslunnar vegna riðutilfinningar
Margir hafa leitað til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vegna riðutilfinningar sem fylgir skjálftahrinunni á Reykjanesskaga. Forstjóri heilsugæslunnar segir þetta algengt í náttúruhamförum þar sem vöðvaspenna og svefntruflanir geti valdið ójafnvægi í líkamanum.

Um 2.100 skjálftar mælst frá miðnætti en ekki órói
Frá miðnætti hafa ríflega 2.100 jarðskjálftar greinst á mælum Veðurstofu Íslands á Reykjanesi. Virknin hefur að mestu haldið sig í kringum syðsta enda Fagradalsfjalls, frá Geldingadal að Nátthaga.

Eldgos „líklegra og líklegra með hverjum degi sem líður“
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir að það verði að teljast líklegra og líklegra með hverjum deginum sem líður að kvika nái að brjóta sér leið upp á yfirborðið í eldgosi á Reykjanesskaganum.

Fleiri jarðskjálftar á síðustu tveimur vikum en allt árið 2020
Meira en 34 þúsund jarðskjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum á síðustu tveimur vikum eða allt frá því að skjálftahrinan sem ekkert lát virðist vera á hófst á svæðinu.