Tækni

Ragnar frá Póstinum til Tix
Ragnar Skúlason hefur verið ráðinn til að leiða hugbúnaðarþróun hjá Tix Ticketing. Hann kemur frá Póstinum þar sem hann var teymisstjóri hugbúnaðarþróunar í upplýsingatæknideild. Ragnar er með tuttugu ára reynslu og þekkingu af hugbúnaðargerð.

Fyrsti steypuframleiðandinn til að kolefnisjafna allan rekstur
Steypustöðinni tókst að kolefnisjafna allan rekstur sinn árið 2021, fyrst allra steypuframleiðenda á Íslandi. Árið áður lækkaði félagið kolefnisspor rekstursins um 65%.

Íslenskt hugvit í velferðartækni gæti sparað samfélaginu milljarða
Hugbúnaðarfyrirtækið Alvican hefur undanfarin ár þróað nýjar lausnir í velferðartækni sem auka lífsgæði eldri borgara, snjallan öryggishnapp og hugbúnað sem vaktar daglegt hegðunarmunstur og skynjar frávik svo bregðast megi við. Eftirspurnin er mikil, yfir fjögur hundruð prósenta aukning varð í áskriftum að Alvican á liðnu ári.

Björgólfur Thor og Davíð taka stökk á milljarðamæringalista Forbes
Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir tekur stökk á nýjum milljarðamæringalista Forbes og hækkar úr 1.444. sæti í það 1.238. milli ára. Forbes metur nú auðæfi Björgólfs Thors á 2,5 milljarða bandaríkjadala eða um 323 milljarða íslenskra króna. Aukast þau um 300 milljónir bandaríkjadala milli ára.

Líklega dýrasta klipping Íslandssögunnar
Í dag hafa flestir heyrt um rafmyntir, þá sérstaklega Bitcoin sem er sú vinsælasta í þeim flokki. Árið 2014 var almenningur ekki með mikla vitneskju um þetta framandi tæknifyrirbæri.

Strætó miður sín vegna Klapp-vandamála
Nýtt greiðslukerfi Strætó hefur farið brösuglega af stað og mörgum verið meinaður aðgangur að vögnum vegna bilunar í kerfinu. Strætó lofar miklum betrumbótum strax í næstu viku.

Stórfyrirtæki framtíðarinnar kynnt til leiks á Siglufirði
Fulltrúar tíu nýsköpunarfyrirtækja fengu tækifæri til að kynna fyrirtæki sitt fyrir fjársterkum aðilum á stórri fjárfestahátíð sem haldin var á Siglufirði í dag.

Vilja eyða hleðslukvíða á djamminu
Þau sem hafa lagt það í vana sinn að stunda næturlíf Reykjavíkurborgar kannast eflaust ófá við vandamálin sem geta fylgt því hversu mikið tak snjalltæki hafa á okkur flestum. Þegar á djammið er komið getur verið sérstaklega mikilvægt að hafa símann við hönd, og þá er eins gott að hann sé vel hlaðinn.

Dohop tryggir sér hundraða milljóna fjármögnun til að breyta flugi
Íslenska ferðatæknifyrirtækið Dohop hefur tryggt sér frekari fjármögnun frá breska fjárfestingasjóðnum Scottish Equity Partners (SEP) sem sérhæfir sig í fjárfestingum í vaxandi tæknifyrirtækjum. Fjárfestingin er sögð hlaupa á hundruðum milljóna króna en SEP fjárfesti fyrst í Dohop í lok árs 2020.

Skapari GIF-sins er fallinn frá
Bandaríski tölvunarfræðingurinn Stephen Wilhite, sem þekktastur er fyrir að hafa fundið upp GIF-ið, er látinn, 74 ára að aldri. Hann lést af völdum COVID-19.

Starfsfólk getur til dæmis valið sitt páskaegg í staðinn fyrir að allir fái eins
Fyrirtæki eru hratt að breyta nálgun sinni gagnvart viðskiptavinum og starfsmönnum.

Nýsköpun forsenda verðmætasköpunar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Hringiðu, hraðal um nýsköpun í hringrásarhagkerfinu sem er í umsjá KLAK – Icelandic Startups. Í hraðlinum felast skipulagðir fundir, fyrirlestrar og vinnustofur með reyndum frumkvöðlum, fjárfestum og innlendum og erlendum sérfræðingum.

Breyttir tímar: Allt að gerast á Messenger, LinkedIn og Twitter
Fyrirtæki hafa breytt nálgun sinni við viðskiptavini í kjölfar Covid og ný rannsókn McKinsey sýnir að samskiptaform sölumanna og viðskiptavina eru að breytast hratt.

Nýsköpunarfyrirtækið Curio metið á fjóra milljarða við kaup Marels í fyrra
Marel greiddi 408 milljónir króna þegar félagið bætti við sig um 10,7 prósenta hlut í íslenska hátæknifyrirtækinu Curio, sem framleiðir fiskvinnsluvélar, í byrjun síðasta árs en eftir þau kaup fór Marel með helmingshlut. Miðað kaupverðið á þeim hlut var Curio því verðmetið á samtals rúmlega 3,8 milljarða króna í viðskiptunum.

Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup ríkisins á Auðkenni
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup ríkisins á Auðkenni ehf. á grundvelli skilyrða í sátt sem samrunaaðilar gerðu við Samkeppniseftirlitið. Auðkenni veitir rafræna auðkenningar- og traustþjónustu á Íslandi og gefur út rafræn skilríki.

Segir sjaldgæft að rafræn skilríki séu misnotuð
Framkvæmdastjóri Auðkennis, sem fer með þjónustu rafrænna skilríkja hér á landi, segir enga ástæðu til að óttast misnotkun á rafrænum skilríkjum í auðgunarskyni. Slík svik séu nokkuð erfið í framkvæmd og fátíðari en annars konar fjármálasvik.

Nýja tunglflaugin loks komin á skotpall
Eldflaugin Space Launch System (SLS) er komin á skotpall í Flórída í fyrsta sinn. Þar verða gerðar prófanir á eldflauginni og ef þær heppnast er vonast til þess að hægt verði að skjóta henni á loft í fyrsta sinn og senda ómannað Orion-geimfar hring í kringum tunglið og til baka.

Misnotuðu rafræn skilríki og tæmdu tugi milljóna af reikningum eldri borgara
Dæmi eru um að rafræn skilríki eldri borgara hafi verið misnotuð til að tæma bankareikninga og taka lán í þeirra nafni. Skúli Sveinsson lögmaður hefur komið að tveimur slíkum málum á stuttum tíma og segir þau vekja upp spurningar um notkunargildi rafrænna skilríkja.

Nýtt kerfi á að minnka líkurnar á því að smástirni grípi jarðarbúa í bólinu
Líkur eru á því að nýtt geimsjónaukakerfi Evrópsku geimvísindastofnunarinnar auðveldi stjörnufræðingum og öðrum geimáhugamönnum að koma fyrr auga á smástirni á borð við það sem sprakk undan ströndum Íslands um helgina.

Gefur út enskt lestrar- og málörvunarapp fyrir börn
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Mussila gaf í dag út enskt lestrar- og málörvunarapp fyrir alþjóðlegan markað og hefur þar með tvöfaldað vöruframboð sitt.

SaltPay fjárfestir í Dineout
Fjármálafyrirtækið SaltPay hefur fjárfest í Dineout og er komið inn í eigendahóp fyrirtækisins. Samningur þess efnis var undirritaður í dag.

Guide to Iceland skiptir um nafn
Ferðatæknifyrirtækið Guide to Iceland hefur breytt nafni sínu í Travelshift. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Eitthvað óútskýranlegt aðdráttarafl á milli Póstsins og kattardýra“
Snjallkisinn Njáll er enn í þjálfun en stendur sig vel.

„Öskuhaugarnir lagðir niður að fullu og öllu“
Ein af skemmtilegri sögum úr rekstri Héðins hf. er frá árinu 1959. Þegar menn töldu að framtíðarlausnin á sorpurðun væri fundin.

Halt and Catch Fire á Stöð 2+
Þættirnir hafa ekki verið sýndir áður hér á landi.

Mikki Mús veitir íslenskum miðlum harða samkeppni
43,1% íslenskra heimila er með áskrift að streymisveitunni Disney+ og hefur fjöldinn hátt í tvöfaldast á einu ári. Þetta sýna nýjar niðurstöður Maskínu sem rýndi í áhorfsvenjur Íslendinga. Í fyrra sögðu 24,0% svarenda að einhver á heimilinu væri með aðgang að Disney+.

Samkeppnismál stóru tæknifyrirtækjanna
Það er ljóst að viðhorf bæði almennings og yfirvalda gagnvart stóru tæknifyrirtækjunum hefur breyst umtalsvert á örfáum árum. Umrædd viðhorfsbreyting endurspeglast ekki síst í víðtækum rannsóknum samkeppnisyfirvalda á starfsemi tæknifyrirtækjanna og fjölda sektarákvarðana á hendur þeim, auk fyrirhugaðrar lagasetningar beggja vegna Atlantshafsins.

„Fyrirtækið var skírt þessum Bjarnhéðni til heiðurs“
Þeir unnu allan sólahringinn segir í gamalli blaðagrein um stofnendur Héðins hf. Fyrirtækis sem telst eitt af framúrskarandi fyrirtækjum landsins og hefur skapað þúsundir starfa á Íslandi í heila öld.

Geimgagnavinnsla hefst á Blönduósi
Borealis Data Center og ítalska fyrirtækið Leaf Space hafa gert samning sem felst í hýsingu og rekstri á búnaði fyrir gervitunglafjarskipti. Gervihnattastöðin er staðsett við gagnaver Boeralis á Blönduósi. Forstjóri Borealis segir ánægjulegt að geimgagnavinnsla sé að hefjast á Blönduósi.

Létu skort á öldruðum sauðfjárbændum ekki á sig fá
Fólkið á bak við TVÍK, tæknivædda íslenskukennarann, vill umbylta tungumálakennslu og hjálpa fleirum að þora að tala íslensku. Teymið skipar Gamithra Marga, Safa Jemai og Atli Jasonarson en þau unnu nýverið nýsköpunarkeppnina Gulleggið.