
Hernaður

Íran hafi komið að skipulagningu árásanna yfir nokkurra vikna skeið
Yfirmenn íranska hersins hjálpuðu til við að skipuleggja óvænta árásarhrinu Hamassveita á Ísrael yfir nokkurra vikna skeið, og gáfu grænt ljós á árásina síðasta mánudag.

„Þetta verður langvinnt, erfitt og blóðugt“
Veruleg hætta er á því að átökin sem nú standa yfir í Ísrael og á Gaza-svæðinu muni dreifa sér víðar. Þetta segir Arnór Sigurjónsson sérfræðingur í varnarmálum. Innrás Ísrael á Gaza-svæðið sé óhjákvæmileg enda hafi yfirvöld þar heitið því að uppræta Hamas-samtökin.

„Þetta er ekki venjulegt stríð, það eru engar reglur“
Öryggisráð Ísraels hefur lýst formlega yfir stríði í landinu. Minnst sjö hundruð Ísraelar eru látnir, aðeins lítill hluti þeirra hermenn, og fjögur hundruð Palestínumenn. Mörg þúsund til viðbótar hafa særst. Íslensk kona sem er búsett í Jerúsalem segir ástandið ekki hafa verið svona slæmt síðan í Jom kippúr stríðinu. Staðan sé martraðakennd.

Vaktin: Að minnsta kosti 260 manns voru skotnir á tónlistarhátíð
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael hefur lýst yfir herlögum í landinu vegna stríðsins sem hófst þar í gærmorgun. Minnst sex hundruð Ísraelar hafa fallið í árásum Hamas og þrjú hundruð Palestínumenn fallið í gagnárásum Ísraela.

Níu hundruð fallnir: „Hryllingur að horfa upp á þetta“
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels telur að stríðið þar í landi muni vara í langan tíma. Minnst sex hundruð Ísraelsmenn, þar af 44 hermenn eru sagðir látnir. Þrjú hundruð Palestínumenn eru jafnframt sagðir hafa fallið frá því að stríð hófst í gærmorgun.

Þvinga fanga til að flytja skotfæri gegnum jarðsprengjusvæði
Rannsakendur Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna segjast hafa staðfest að sex úkraínskir stríðsfangar hafi verið teknir af lífi af föngurum sínum. Stofnunin hefur einnig staðfest tvær grimmilegar aftökur úkraínskra manna sem tekin voru upp á myndbönd sem birt voru á netinu.

Segja 49 hafa fallið í árás á matvöruverslun
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir 49 manns hafa fallið í árás Rússa á matvöruverslun og kaffihús í þorpinu Hroza í Karkívhéraði. Sex ára drengur er meðal hinna látnu en minnst sex aðrir særðust í árásinni.

Hermaður svipti sig lífi eftir stanslaust áreiti af hálfu yfirmanns
Jaysley Beck, 19 ára breskur hermaður, er talin hafa svipt sig lífi eftir stöðug kynferðislegt áreiti yfirmanns innan hersins. Hún fannst látin á Larkhill-herstöðinni í Wiltshire í desember árið 2021.

Tekist á um áframhaldandi fjárstuðning við Úkraínu
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur heitið áframhaldandi stuðningi Bandaríkjanna við Úkraínu, jafnvel þótt aukinn fjöldi Repúblikana sé nú á móti auknum fjárútlátum vegna stríðsátakana í landinu.

Pútín biður Wagner-foringja að taka yfir sjálfboðasveitir Rússa
Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur fundað með Andrei Troshev, háttsettum foringja innan Wagner-málaliðahópsins. Stjórnvöld í Moskvu segja Troshev nú starfa fyrir varnarmálaráðuneytið.

Opinberuðu fyrsta heimasmíðaða kafbátinn
Tsai Ing-wen, forseti Taívan, opinberaði í morgun fyrsta heimasmíðaða kafbát ríkisins. Yfirvöld í Taívan vinna að nútímavæðingu herafla ríkisins og uppbyggingu í hergagnaframleiðslu í skugga mögulegrar innrásar frá Kína.

Þvinga fjölskyldur til að hlusta á nauðganir
Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) segir sterkar vísbendingar fyrir því að rússneskir hermenn fremji stríðsglæpi í Úkraínu. Rússar hafa pyntað Úkraínumenn til dauða og þvingað fjölskyldur til að hlusta á þegar hermenn nauðguðu konum í næsta herbergi.

Aðmírállinn virðist enn á lífi
Viktor Sokolov, aðmíráll sem leiðir Svartahafslofta Rússlands, virðist ekki hafa fallið í árás Úkraínumanna á höfuðstöðvar flotans í Sevastopol á Krímskaga á föstudaginn, eins og úkraínski herinn hélt fram í gær.

Segjast hafa fellt yfirmann Svartahafsflota Rússa
Yfirmenn sérsveita Úkraínuhers segja stjórnanda Svartahafsflota Rússa hafa fallið í stýriflaugaárás á höfuðstöðvar flotans í Sevastaopol á Krímskaga á föstudaginn. Þar að auki hafi 34 aðrir yfirmenn í rússneska hernum fallið og rúmlega hundrað hafi særst.

Færa borgurum Nagorno-Karabakh vistir eftir marga mánaða herkví
Leiðtogar aðskilnaðarsinna í Nagorno-Karabakh segja að verið sé að innleiða skilmála vopnahlés við Aserbaídsjan. Á sama tíma vinnur Rauði krossinn að því að færa fólki vistir og flytja særða á brott.

Biden lofar Selenskí nýjum eldflaugum
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti Vólódómír Selenskí, forseta Úkraínu, í dag að hann ætlaði að senda langdrægar eldflaugar til Úkraínu. Úkraínumenn hafa lengi beðið um slíkar eldflaugar sem heita Army Tactical Missile System, eða ATACMS.

Hæfðu höfuðstöðvar Svartahafsflota Rússa
Að minnsta kosti ein eldflaug hæfði höfuðstöðvar Svartahafsflota Rússa í Sevastopol á Krímskaga í morgun. Leppstjóri Rússa í héraðinu, sem Rússar innlimuðu ólöglega árið 2014, birti myndir af höfuðstöðvunum sem eru mikið skemmdar.

Hringdi í neyðarlínuna og sagðist ekki vita hvar orrustuþotan væri
Flugmaður F-35 orrustuþotu sem týndist á dögunum í Bandaríkjunum, lenti í fallhlíf í bakgarði manns í Suður-Karólínu. Þegar eigandi hússins hringdi í neyðarlínuna virtist sú sem svaraði eiga erfitt með að átta sig á hvað væri að gerast, sem gæti ef til vill talist eðlilegt, en flugmaðurinn tilkynnti henni að hann hefði skotið sér úr orrustuþotu og vissi ekki hvar flugvélin væri.

Þreyttir eftir harða bardaga: „Vinir okkar týna lífinu í skóginum, einn af öðrum“
Eftir þriggja mánaða baráttu tókst úkraínskum hermönnum að frelsa bæina Klistjívka og Andrjívka í austurhluta Úkraínu. Hermenn lýsa aðstæðum þar sem helvíti en þeim tókst að sigra Rússa og segjast hafa fellt og handsamað fjölmarga rússneska hermenn.

Umfangsmiklar árásir á báða bóga
Úkraínumenn gerðu í gærkvöldi umfangsmikla árás á flugstöð Rússa á Krímskaga. Á sama tíma skutu Rússar fjölmörgum eld- og stýriflaugum sem ætlað var að valda skemmdum á orkuinnviðum Úkraínu.

Pólverjar hætta vopnasendingum til Úkraínu
Pólverjar hafa lýst því yfir að þeir séu hættir að sjá Úkraínumönnum fyrir vopnum í baráttu sinni við innrásarher Rússa.

Aðskilnaðarsinnar í Nagorno-Karabakh gefast upp
Sveitir Armena í Nagorno-Karabakh hafa gefist upp fyrir Aserum, sem gerðu atlögu að héraðinu í gær. Vopnahlé var sett á klukkan níu í morgun, að íslenskum tíma, og eiga viðræður milli Armena í héraðinu og yfirvalda í Aserbaídsjan að eiga sér stað á morgun.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segjast hafa rofið varnir Rússa við Bakhmut
Gagnsókn Úkraínumanna heldur áfram en hefur enn sem komið er skilað litlum árangri í formi frelsaðs landsvæðis. Úkraínskir hermenn sækja þó fram, bæði í suðurhluta landsins og í austri en töluverð óvissa ríkir um mannfall hjá bæði Rússum og Úkraínumönnum.

Átök hefjast á ný í Nagorno-Karabakh
Ráðamenn í Aserbaídsjan tilkynntu nú fyrir skömmu að her ríkisins væri að reyna að uppræta hryðjuverkamenn í héraðinu Nagorno-Karabakh. Myndbönd eru þegar byrjuð að berast af árásum hersins í héraðinu.

Telja eldflaugina hafa verið úkraínska
Útlit er fyrir að eldflaugin sem banaði minnst fimmtán manns og særði rúmlega þrjátíu í bænum Kostiantynivka í austurhluta Úkraínu þann 6. september hafi verið skotið á loft af Úkraínumönnum sjálfum. Eldflaugin lenti á markaði í bænum en innan við tveimur tímum síðar sakaði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, Rússa um árásina.

Herþotan sem týndist er fundin
Brak úr F-35 herþotunni, sem landgöngulið Bandaríkjanna týndi um helgina, fannst í sveit í Suður-Karólínu í gær. Herinn hafði óskað eftir hjálp borgaranna við leit að vélinni en gat þó ekki staðfest að hún hefði brotlent.

Kreml tekur yfir stjórn Wagner í Mið-Afríkulýðveldinu
Ráðamenn í Mið-Afríkulýðveldinu segja ríkisstjórn Rússlands hafa tekið yfir stjórn rúmlega þúsund málaliða Wagner group þar í landi. Málaliðarnir hafa haft viðveru í Mið-Afríkulýðveldinu í um fimm ár en lengst af voru þeir undir stjórn rússneska auðjöfursins Jevgení Prígósjín.

Herinn óskar eftir aðstoð almennings við að finna týnda herþotu
Hermálayfirvöld í Bandaríkjunum hafa biðlað til almennings um aðstoð við að finna herþotu sem týndist einhvers staðar yfir Suður-Karólínu eftir að flugmaðurinn skaut sér úr þotunni.

Skemmdu herskip og kafbát með stýriflaugum
Úkraínski herinn skemmdi í nótt rússneskt herskip og kafbát sem voru í slipp í Sevastopol á Krímskaga. Það gerðu Úkraínumenn með Storm Shadow stýriflaugum en árásin beindist að höfuðstöðvum Svartahafsflota Rússa.

Kim heitir Pútín fullum stuðningi
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, heitir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, „fullum og skilyrðislausum“ stuðningi. Leiðtogarnir einangruðu funduðu í rúma fjóra tíma í dag og eru þeir sagðir hafa rætt samvinnu á sviði hernaðar og efnahags.