Ítalski boltinn

Ítölsku meistararnir reka þjálfarann sinn
Rudi Garcia entist ekki nema í nokkra mánuði sem þjálfari ítölsku meistaranna í Napoli.

Inter á toppinn á Ítalíu
Inter er komið á topp Serie A, ítölsku úrvalsdeildina í knattspyrnu, þökk sé 2-0 sigri á Frosinone í síðasta leik dagsins.

Markalaust í Róm
Lazio og Roma gerðu markalaust jafntefli í borgarslagnum um Róm í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.

Miðverðirnir tryggðu Juve sigurinn
Juventus er komið í efsta sæti Serie A um stundarsakir að minnsta kosti eftir sigur á Cagliari í dag.

Daníel Leó á skotskónum þökk sé Kristali Mána
Fjöldi íslenskra knattspyrnumanna var á ferð og flugi í Evrópu í kvöld. Íslendingalið Sönderjyske stefnir á dönsku úrvalsdeildina. Þá virðist Rúnar Þór Sigurgeirsson vera í góðum málum hjá Willem II í Hollandi.

Pomigliano hætti við að hætta: Ekki líta á þetta sem veikleika hjá okkur
Ítalska kvennaliðið Pomigliano hefur tekið U-beygju og hætt við að draga kvennaliðið sitt úr keppni í Seríu A í fótbolta.

Líkir stöðu Alberts við þá sem hann kynntist hjá Salah
Hollenski miðjumaðurinn Kevin Strootman fer fögrum orðum um samherja sinn hjá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Genoa, Íslendinginn Albert Guðmundsson. Albert hefur farið á kostum á yfirstandandi tímabili og er Strootman hræddur um að Íslendingurinn verði ekki lengi á mála hjá Genoa í viðbót, haldi hann áfram að spila svona.

Draga lið sitt úr keppni í efstu deild á Ítalíu í mótmælaskyni
Kvennalið Pomigliano, sem spilar í efstu deild á Ítalíu, hefur dregið lið sitt úr keppni eftir aðeins sex leiki.

Fyrsta markið fyrir uppeldisfélagið tryggði sigur
Þrátt fyrir mikla yfirburði mátti Fiorentina þola 0-1 tap gegn Juventus á Artemio Franchi leikvanginum í 11. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Tvítugur leikmaður uppalinn hjá Juventus skoraði fyrsta mark sitt fyrir félagið og tryggði sigurinn.

Sagði Albert uppgötvun tímabilsins og kallaði hann hinn íslenska Dybala
Albert Guðmundsson hefur farið á kostum með Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í vetur og fékk skemmtilegt hrós í vinsælu hlaðvarpi.

Sjáðu markið: Albert reyndist hetja Genoa í framlengdum leik
Albert Guðmundsson reyndist hetja Genoa er liðið bar 2-1 sigur úr býtum gegn Reggiana í framlengdum leik í 32-liða úrslitum ítalska bikarsins í fótbolta í dag.

42 ára maður lést á Diego Armando Maradona leikvanginum
Stuðningsmaður Napoli var að reynast að stelast inn á leik Napoli og AC Milan í ítalska boltanum um helgina en það ferðalag hans endaði skelfilega.

Albert Guðmundsson er nú aftur markahæstur Íslendinga í Seríu A
Albert Guðmundsson jafnaði íslenska markametið í Seríu A á Ítalíu þegar hann skoraði sigurmark Genoa um helgina.

Meistararnir komu til baka gegn AC Milan
Ítalíumeistarar Napolí og AC Milan gerðu 2-2 jafntefli í lokaleik dagsins í Serie A. Gestirnir frá Mílanó komust 2-0 yfir en meistararnir lögðu aldrei árar í bát.

Thuram skaut Inter á toppinn
Sigurmark Marcus Thuram gegn Roma þýðir að Inter er komið á topp Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Óvænt hetja hjá Juventus sem er komið á toppinn
Það tók Juventus sinn tíma að skora gegn Hellas Verona í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta, í kvöld en það tókst á endanum. Leiknum lauk með 1-0 sigri heimaliðsins sem tyllti sér um leið á topp Serie A.

Liverpool og Chelsea fylgjast grannt með stöðu mála hjá Osimhen
Ensku úrvalsdeildarfélögin Liverpool og Chelsea fylgjast grannt með samningsstöðu Victors Osimhen um þessar mundir.

Albert skoraði sigurmarkið
Albert Guðmundsson skoraði sigurmark Genoa í 1-0 sigri á Salernitana í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld.

Mourinho sá rautt, lét Gomez heyra það og missir af næsta leik
Þrátt fyrir að vera orðinn sextugur á knattspyrnuþjálfarinn José Mourinho það til að leyfa skapi sínu að hlaupa með sig í gönur. Það gerðist síðast í gær, sunnudag, þegar lið hans vann mikilvægan sigur í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Heimsmeistarinn kennir hóstasafti sonarins um fall sitt á lyfjaprófi
Papu Gomez varð heimsmeistari með argentínska landsliðinu í fyrra en innan við ári síðar er hann á leiðinni í bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Albert pissaði í sig af hræðslu en stökk samt
Íslenski knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson var stóru viðtali í helgarblaði ítalska stórblaðsins Gazzetta dello Sport, Sportweek, um helgina og lýsti þar meðal annars yfir að hann væri ekki hinn dæmigerði Íslendingur.

Juventus vann risaslaginn á San Siro
Stórleikur helgarinnar í ítalska fótboltanum var á milli AC Milan og Juventus á San Siro í Mílanó. Liðið voru fyrir leikinn í 2. og 3. sæti, Milan fjórum stigum á undan Juve.

Erfiður dagur hjá Albert og félögum gegn Atalanta
Albert Guðmundsson og félagar sóttu ekki gull í greipar Atalanta í ítölsku Seríu A deildinni í dag. Albert spilaði allan leikinn en uppskar lítið annað en gult spjald fyrir frammistöðu sína.

Níu milljarða leikmaður Newcastle sagður vera á leið í langt bann
Sandro Tonali, leikmaður Newcastle og ítalska landsliðsins, er í slæmum málum eftir að upp komst um veðmálafíkn hans.

Fagioli dæmdur í sjö mánaða bann fyrir brot á veðmálareglum
Ítalska knattspyrnusambandði hefur dæmt Nicolo Fagioli í sjö mánaða bann frá knattspyrnuiðkun fyrir brot á veðmálareglum sambandsins.

„Hann var eins og pabbi og besti vinur“
Zlatan Ibrahimovic viðurkennir að hafa átt erfitt eftir andlát umboðsmannsins skrautlega Mino Raiola. Raiola lést í apríl á síðasta ári en hann var umboðsmaður Ibrahimovic allan hans feril.

Guðný og samherjar hennar héldu hreinu
Como og AC Milan gerðu markalaust jafntefli þegar liðin leiddu saman hesta sína í ítölsku efstu deildinni í fótbolta kvenna í dag.

Giroud í rammanum í liði umferðarinnar
Framherjinn Olivier Giroud sýndi heldur betur fína takta í marki AC Milan um helgina. Giroud þurfti að fara í markið þegar markvörðurinn Mike Maignan var rekinn af velli.

AC Milan selur markvarðartreyjur með nafni Giroud
Olivier Giroud er ekki bara mikill markaskorari því hann er líka seigur markvörður. Það sýndi hann á móti Alberti Guðmundssyni og félögum í ítölsku deildinni um helgina.

Ítölsku meistararnir að missa af toppliðunum
Ítalíumeistarar Napoli máttu þola 3-1 tap er liðið tók á móti Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.