
Ítalski boltinn

Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður
Stöðva þurfti leik Firoentina og Inter er liðin mættust í Serie A á Ítalíu í dag eftir að Edoardo Bove hneig niður snemma leiks.

McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum
Skotinn Scott McTominay var hetja Napoli í ítölsku deildinni í dag.

AC Milan aftur á sigurbraut
Eftir tvo deildarleiki í röð án sigurs komst AC Milan aftur á sigurbraut er liðið vann örugga n3-0 sigur gegn Empoli í kvöld.

Hákon mættur aftur til leiks
Hákon Arnar Harlaldsson, landsliðsmaður í fótbolta, lék sinn fyrsta leik í tæpa þrjá mánuði í dag þegar hann spilaði með Lille í frönsku 1. deildinni.

Gamla konan áfram taplaus
Juventus er áfram eina ósigraða lið ítölsku úrvalsdeildarinnar en liðið sótti AC Milan heim í stórleik helgarinnar. Leiknum lauk með markalausu jafntefli.

Cecilía búin að loka og læsa marki Inter
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hélt marki Inter hreinu í dag, þriðja leikinn í röð, þegar liðið vann 1-0 sigur gegn Napoli í ítölsku A-deildinni í fótbolta.

Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu
Hvað eiga Cristiano Ronaldo, Andrea Pirlo, Zlatan Ibrahimovic og Albert Guðmundsson sameiginlegt? Að minnsta kosti það að hafa allir verið tilnefndir sem leikmaður ársins í ítölsku A-deildinni í fótbolta.

Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik
Íslandsmeistarar Breiðabliks hafa keypt Ágúst Orra Þorsteinsson til baka frá Genoa á Ítalíu.

Genoa ljáð Vieira
Ítalska knattspyrnufélagið Genoa hefur ekki borið sitt barr eftir að Albert Guðmundsson var seldur þaðan í sumar. Nú er gömlu Arsenal-goðsögninni Patrick Vieira ætlað að snúa gengi liðsins við.

Cecilía hélt hreinu í góðum sigri
Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í byrjunarliði Inter sem mætti Sampdoria á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Tekur við Roma á ný 73 ára gamall
Claudio Ranieri hefur starfað við fótboltaþjálfun í tæpa fjóra áratugi og þessi 73 ára gamli Ítali er nú tekinn við liði Roma, í þriðja sinn á ferlinum.

Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu
Hollenski knattspyrnustjórinn Erik ten Hag gæti tekið við öðru stórliði í Evrópu.

Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus
Sky Sports greinir frá því að miðjumaðurinn Paul Pogba sé við það að rifta samningi sínum við ítalska efstu deildarliðið Juventus. Samningur hans er til sumarsins 2026 en hann hefur ekkert spilað undanfarna mánuði eftir að fara verið dæmdur í leikbann.

Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn
Inter og Napoli mættust í stórleik helgarinnar í Serie A, ítölsku efstu deildar karla í fótbolta. Heimamenn hefðu með sigri komist á topp deildarinnar á kostnað Napoli en leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem Hakan Çalhanoğlu, markaskorari Inter, brenndi af vítaspyrnu í stöðunni 1-1.

Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki
Arftaki Daniele De Rossi hjá Roma í Serie A, efstu deild ítalska karlafótboltans, hefur verið látinn fara eftir aðeins 12 leiki í starfi. Kornið sem fyllti mælinn var tap liðsins á heimavelli gegn Bologna.

Ingibjörg á skotskónum og Cecilía Rán varði víti og hélt hreinu
Það var nóg um að vera hjá íslensku knattspyrnufólki í hinum og þessum deildum í Evrópu.

Juventus vann grannaslaginn
Juventus lagði Torino 2-0 í Serie A, ítölsku efstu deild karla í knattspyrnu. Um er að ræða nágrannaslag en bæði liðin eru staðsett í borginni sem ber sama nafn og gestalið kvöldsins, Torino.

Milan missteig eftir sigurinn frækna á Real
AC Milan missteig sig harkalega gegn Cagliari í Serie A, efstu deildar ítalska fótboltans. Eftir að vinna frækinn útisigur á Real Madríd í liðinni viku tókst liðinu aðeins að ná í stig á útivelli í dag, lokatölur 3-3.

Birkir Bjarna kom aftur inn á og skoraði
Birkir Bjarnason skoraði í öðrum leiknum í röð og í þriðja sinn í síðustu fimm leikjum þegar Brescia varð að sætta sig við 3-2 tap á heimavelli sínum á móti Cosenza í ítölsku b-deildinni.

Þjálfari Íslendingaliðs réðst á eigin leikmann
Þjálfari ítalska fótboltafélagsins Triestina missti stjórn á skapi sínu þegar einn leikmanna hans lét reka sig út snemma leiks í gærkvöldi.

Inter áfram eftir þrjú mörk á ellefu mínútum í framlengingu
Cecilía Rán Rúnarsdóttir og stöllur hennar í Inter eru komnar áfram í átta liða úrslit ítölsku bikarkeppninnar í fótbolta eftir 2-5 sigur á Parma eftir framlengingu í dag.

Lampard gæti orðið næsti stjóri Roma
Eftir aðeins einn sigur í síðustu fimm deildarleikjum, og 3-2 tap gegn Verona um helgina, er útlit fyrir að ítalska knattspyrnufélagið Roma skipti um þjálfara í annað sinn á leiktíðinni.

Hetjumark hrifsað af Mikael og félögum í blálokin
Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson og félagar í Venezia voru nálægt því að krækja í stig gegn stórliði Inter á San Siro í kvöld, í ítölsku A-deildinni í fótbolta. Inter vann þó, 1-0.

Birkir hetjan á gamla heimavellinum
Birkir Bjarnason var hetja Brescia í dag í ítölsku B-deildinni í fótbolta en hann skoraði eina mark leiksins þegar liðið mætti Sampdoria á útivelli.

Cecilía Rán varði mark Inter í svekkjandi tapi gegn Fiorentina
Cecilía Rán Rúnarsdóttir varði mark Inter í 2-1 tapi gegn Fiorentina í áttundu umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Hún átti fjórar vörslur í dag, þar af tvær úr skotum inni í vítateig, en gat ekki komið í veg fyrir endurkomu Fiorentina.

Juventus ekki enn tapað deildarleik á tímabilinu
Juventus hefur enn ekki tapað leik og er eina lið ítölsku úrvalsdeildarinnar sem getur státað sig af því. Taplausa hrinan hélt áfram með 2-0 sigri gegn Udinese í dag.

Albert ekki með gegn Genoa er Fiorentina vann fjórða leikinn í röð
Fiorentina hefur fagnað frábæru gengi undanfarið í ítölsku úrvalsdeildinni, þrátt fyrir að Albert Guðmundsson sé frá vegna meiðsla. Liðið vann fjórða deildarleikinn í röð í dag, 1-0 gegn Genoa, liðinu sem Albert kom á láni frá.

Martínez markahæsti erlendi leikmaðurinn í sögu Inter
Lautaro Martínez, framherji Inter, skoraði eitt mark í 3-0 sigri Inter á Empoli í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Með því varð hann markahæsti erlendi leikmaðurinn í félagsins.

Napoli jók forskotið á toppi deildarinnar
Napoli lagði AC Milan 2-0 á útivelli í stórleik kvöldsins í Serie A, efstu deild karla í fótbolta á Ítalíu. Lærisveinar Antonio Conte eru komnir með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar.

Albertslausir Fiorentina-menn völtuðu yfir Roma
Fiorentina, lið Alberts Guðmundssonar, vann afar öruggan 5-1 sigur er liðið tók á móti Roma í ítalska boltanum í kvöld.