Fuglar

Dagur fetar ekki í fótspor Garðbæinga
Eru mávar hatursefni? Samfélagið skiptist í fylkingar yfir þessu eins og borgarstjóri Reykjavíkur bendir á og sitt sýnist hverjum. Ólíkt öðrum sveitarfélögum, kemur þó ekki til greina í Reykjavík að fara að skjóta máva eða stinga á egg þeirra.

Ekkert bendi til þess að mávar séu árásargjarnari nú en áður
Engin breyting er á hegðun máva og ekkert sem bendir til þess að þeir séu árásargjarnari nú en áður. Fuglafræðingur segir að ef bæjarfélög vilji hafa græn svæði í byggð verði þeir að lifa með mávnum.

Vill fá að stinga á egg máva sem trufli svefnfrið og ráðist á Garðbæinga
Garðabær mun fara markvisst í aðgerðir til þess að halda mávastofninum í skefjum. Bæjarstjórinn vill fá leyfi til þess að stinga á mávaegg á friðlýstum svæðum en svefnvana íbúar kvarta undan stanslausu áreiti frá fuglunum.

„Það sem er mikilvægt er að þetta má ekki gleymast“
Súgfirðingar gengu í gær til minningar þeirra fjölmörgu æðarfugla sem þurfi að aflífa eftir olíuslys í þorpinu fyrr á árinu. Skipuleggjandi segir mikilvægt að atvikið gleymist ekki og að lærdómur verði dreginn af því.

Dauðir fuglar eins og hráviði á vegum úti
Þeir sem fara um þjóðvegi landsins komast ekki hjá því að taka eftir fuglum sem liggja steindauðir víðsvegar við vegi landsins. Árlega drepst óhemju mikið af fuglum eftir að á þá hefur verið keyrt, ekki síst á þessum tíma ársins.

Heiðra minningu æðarfugla sem drápust í olíuslysi
Á laugardaginn munu Súgfirðingar ganga minningargöngu til heiðurs minningar fjölmargra æðarfugla sem þurfti að aflífa eftir olíuslys á Suðureyri í mars síðastliðnum.

Ótrúlegur páfagaukur í Breiðholti getur ekki hætt að tala
Fyrir um ári síðan byrjaði lítill en óvenjulegur páfagaukur í Breiðholti að tala, eiganda sínum að óvörum. Fuglinn býr nú yfir fjölbreyttum orðaforða, eins og sjá má í meðfylgjandi frétt.

Sléttuúlfar átu páfugla Martha Stewart
Sléttuúlfar brutu sér leið inn að búgarði sjónvarpskonunnar Martha Stewart í dag og átu þar sex af páfuglum hennar. Atvikið átti sér stað um hábjartan dag.

Takmarka eigi lausagöngu katta til að hlífa fuglum
Varptími smáfugla stendur yfir þessa dagana og bendir Fuglavernd kattaeigendum því á að halda köttum sínum inni á næturnar. Undanfarin ár hefur dýravinur í Vesturbæ vakið athygli á fuglaveiðum katta í nær árlegri færslu á Facebook. Hún segir kattaeigendur í nágrenninu orðna meðvitaðri um ábyrgðarhlutverk sitt af því í ár hafi ungar komist á legg í fyrsta skipti í hverfinu.

Áttavilltur lundi í Suðurhlíðunum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um áttavilltan lunda á vappi í Suðurhlíðunum. Hann var hinn gæfasti í höndum lögreglu sem kom honum til dýrahirðis í Húsdýragarðinum.

Eins og þruma úr heiðskíru lofti
Óvænt árás mávs á rottu á Kársnesi náðist á myndband í dag. Mávurinn steypti sér úr loftinu á miklum hraða og greip rottuna í gogginum. Rottan féll skömmu síðar aftur til jarðar.

Haförn sást í Mjóafirði
Fjölskylda sá til hafarnar í Mjóafirði á leið þeirra til Þingeyrar. Ljósmyndarinn Helen María Björnsdóttir náði nokkrum frábærum myndum af fuglinum.

Hafa byggt upp stærsta æðarvarp landsins í 22 ár
Fuglaþorpið Sævarendi er í Loðmundarfirði en þar er sennilega stærsta æðarvarp á Íslandi, með um sexþúsund hreiður og tólfþúsund fugla. Hjónin Ólafur Aðalsteinsson og Jóhanna Óladóttir eru æðarbændur af lífi og sál og hafa byggt upp æðarvarpið í Sævarenda í 22 ár. Ljósmyndarinn Rax heimsótti hjónin og tók myndir af æðarvarpinu og íbúum þess.

Byggja hagkvæmt húsnæði í Reykjavík, fyrir fugla
Tólf fuglahúsum hefur verið komið fyrir við göngugötur, græn svæði og torg í miðborg Reykjavíkur. Staðsetning húsanna er hugsuð til að skapa sýnileika fyrir almenning og vekja athygli á fuglum í umhverfinu.

Fjöldi tilkynninga vegna dauðra fugla
Matvælastofnun eru enn að berast fjölmargar tilkynningar um dauða villtra fugla vegna fuglaflensunnar.

Hrafn gæðir sér á þresti fyrir framan Seðlabankann
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri náði einstöku myndskeiði þar sem hrafn nokkur er að háma í sig þröst fyrir utan Seðlabankann.

Sláttur hafinn á Suðurlandi – Álftunum um að kenna
Sláttur er hafinn á bænum Ártúnum á Rangárvöllum á Suðurlandi óvenjulega snemma. Ástæðan kemur ekki til af góðu.

Önd varð fyrir bíl á Miklubrautinni
Miskunnsamur borgari reyndi sitt besta í dag til að koma í veg fyrir að andafjölskylda yrði síðdegisumferðinni á Miklubrautinni að bráð.

Taka raflínu til Eyja úr rekstri vegna hrafnsunga
Landsnet hefur ákveðið að taka Vestmannaeyjalínu 1 úr rekstri næstu vikurnar vegna „óvæntra leigjenda“. Hrafnapar hefur búið sér til laup á endastæðu línunnar við Rimakot.

Ein elsta íslenska álftin felld í Wales
Í byrjun apríl fannst tæplega þrítug íslensk álft í Pembroke-héraði í Wales. Álftin var særð og þurftu dýraverndunarsamtök að fella hana.

Súla drapst við Kasthústjörn
Íbúi á Álftanesi telur ekki ólíklegt að súlan hafi verið smituð af hinni skæðu fuglaflensu sem nú geisar og vonar að smit berist ekki í hundruð fugla sem þarna koma.

Staðfest að um hið skæða afbrigði fuglaflensu er að ræða
Fuglaflensuveirur sem greinst hafa að undanförnu hér á landi eru af hinu skæða afbrigði H5N1 sem geisar í nágrannalöndunum um þessar mundir.

Bandarískur fangi greindist með fuglaflensu
Fangi í Coloradofylki í Bandaríkjunum varð á dögunum fyrsta manneskjan í Bandaríkjunum sem greinist með það afbrigði fuglaflensu sem nú geisar um landið.

Fuglar um allt land detta dauðir niður
Fuglaflensa hefur nú greinst í að minnsta kosti tólf villtum fuglum víða um landið og ljóst er að þessi skæði sjúkdómur er nú orðinn útbreiddur og smithætta fyrir alifugla er mikil. Viðbúnaðarstig verður hækkað í rautt þegar sjúkdómurinn greinist í alifuglum og þurfa bændur að gæta sín vel.

Fólk verði að gera sér grein fyrir því að fuglaflensan sé orðin útbreidd
Fuglaflensa greindist í átta sýnum af fimmtán sem tekin voru af villtum fuglum í vikunni. Sýnin voru tekin víðsvegar um landið og dýralæknir segir ljóst að fuglaflensa sé orðin útbreidd í villtum fuglum hér á landi. Mannfólk og katta- og hundaeigendur þurfi þó lítið að óttast að svo stöddu.

Fuglaflensa greinist í fleiri villtum fuglum
Fuglaflensuveirur af gerðinni H5 greindust í átta sýnum af fimmtán sem tekin voru úr villtum fuglum í vikunni og rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Matvælastofnun ítrekar mikilvægi þess að fuglaeigendur verndi fugla sína gegn smiti.

Lögreglu beri að aðstoða þrátt fyrir hættu á fuglaflensu
Brigitte Brugger, dýralæknir alifuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun, segir að þó það sé ólíklegt, þá sé ekki hægt að útiloka það að fuglaflensan smitist í önnur dýr.

Áhyggjufullur yfir slasaðri súlu á Vatnsleysuströnd
Staðarhaldari á Vatnsleysuströnd segist ítrekað hafa reynt að ná í yfirvöld án árangurs vegna vængbrotinnar súlu sem hefur verið á svæðinu undanfarið. Lögregla hefur ekki viljað koma nálægt henni af ótta við fuglaflensu.

„Þetta er inflúensuveira sem getur stökkbreyst mjög auðveldlega”
Yfirdýralæknir segir alvarlegt ef smit af skæðu fuglaflensuafbrigði berst inn á alifuglabú. Veiran getur drepið fugla á tveimur dögum. Heimilishænsn eru fyrstu heimilisdýrin á Íslandi sem hafa greinst með veiruna. MAST hefur útbúið kort sem sýnir útbreiðslu smita og sýna sem hafa verið tekin.

Biðla til fólks að handleika ekki veika fugla án hlífðarbúnaðar
Matvælastofnun biðlar til fólks að fara varlega verði það vart við ósjálfbjarga fugla í umhverfi sínu þar sem þeir gætu mögulega verið smitaðir af fuglaflensuveirunni. Ekki skuli handleika slíka fugla, hvort sem þeir eru dauðir eða lifandi, án tilskilins hlífðarbúnaðar.