Sambandsdeild Evrópu

Íslenskir dómarar á tveimur völlum
Það eru ekki bara KR og Breiðablik sem verða fulltrúar Íslands í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Það verða íslensk dómarateymi á tveimur völlum.

Rice sakaði dómara um spillingu | Fær tveggja leikja bann
Declan Rice, leikmaður West Ham, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann frá Evrópuleikjum af knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA.

Breiðablik víxlar Evrópuleikjum
Breiðablik hefur samþykkt beiðni Santa Coloma frá Andorra að víxla heimaleikjum liðanna í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta. Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær.

Mismunandi og miserfiðar leiðir sem Víkingur getur farið
Víkingur frá Reykjavík tekur þátt í forkeppni fyrir undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í næstu viku. Ljóst er að Víkingar eiga fram undan Evrópueinvígi sama hvernig fer, en mögulegir andstæðingar eru breytilegir eftir því hversu langt þeir komast.

Blikar til Andorra en KR-ingar til Póllands
Dregið var í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í dag og voru bæði Breiðablik og KR í pottinum.

Meiðslahrjáð hetja Rómverja
Hinn 22 ára gamli Nicolò Zaniolo reyndist hetja Roma er liðið vann Feyenoord 1-0 í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta. Zaniolo hefur þrátt fyrir ungan aldur verið einkar óheppinn með meiðsli og til að mynda tvívegis slitið krossband í hné.

Tárvotur Mourinho skrifar söguna í Rómarborg
Ítalska liðið Roma vann í gærkvöld sinn fyrsta titil í 14 ár eftir 1-0 sigur á Feyenoord frá Hollandi í úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. José Mourinho, stjóri Roma, gat vart haldið aftur af tárunum í leikslok og kveðst vera afar stoltur.

Mourinho bætir enn einum Evrópubikar í safn sitt
AS Roma vann Feyenoord 1-0 í fyrsta úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Bikarinn er fimmti Evrópubikar Jose Mourinho á ferlinum og er hann um leið sá fyrsti til að vinna alla Evrópubikarana sem í boði eru.

Magnaður Mourinho þegar kemur að Evrópukeppnum
José Mourinho er vissulega „sá sérstaki.“ Lærisveinar hans í Roma eru komnir í úrslit Sambandsdeildar Evrópu sem þýðir að José er eini þjálfari sögunnar til að koma fjórum mismunandi félögum í úrslitaleik Evrópukeppna.

Tammy skaut Roma í úrslit
Tammy Abraham skaut Roma í úrslit Sambandsdeildar Evrópu en liðið vann 1-0 sigur á Leicester City í síðari undanúrslitaleik liðanna í kvöld. Marseille og Feyenoord gerðu markalaust jafntefli sem þýðir að Feyenoord er komið í úrslit eftir 3-2 sigur í fyrri leiknum.

Leicester og Roma skildu jöfn | Feyenoord með forystu eftir fimm marka leik
Leicester og Roma gerðu 1-1 jafntefli í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Á sama tíma vann Feyenoord 3-2 sigur gegn Marseille.

Alfons sá eini sem spilaði alla leikina er Bodø/Glimt jafnaði met
Íslenski landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted hefur átt lygilegan tíma með Bodø/Glimt undanfarin misseri. Norsku meistararnir jöfnuðu nýverið met í Evrópu en liðið lék alls 20 leiki í Evrópu á leiktíðinni.

Alfons og félagar úr leik eftir skell | Payet skaut Sverri og félaga úr keppni
Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt máttu þola 4-0 tap gegn José Mourinho og lærisveinum hans í Roma í kvöld og eru þar með úr leik í Sambandsdeild Evrópu. Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í PAOK eru einnig úr leik eftir 1-0 tap gegn Marseille.

Leicester snéri taflinu við og tryggði sér sæti í undanúrslitum
Enska úrvalsdeildarfélagið Leicester er komið í undanúrslit Sambandsdeildar Evrópu eftir 1-2 sigur gegn PSV Eindhoven í kvöld.

Þjálfarinn í banni er Alfons og félagar heimsækja Róm
Evrópska knattspyrnusambandið UEFA hefur dæmt Kjetil Knutsen, þjálfara norska meistaraliðsins Bodø/Glimt, í bann frá síðari leik liðsins gegn Roma í Sambandsdeild Evrópu næstkomandi fimmtudag.

Aðstoðarmaður Mourinhos kærður vegna kverkataks í göngunum
Forráðamenn norska knattspyrnufélagsins Bodö/Glimt hafa nú ákveðið að kæra Nuno Santos, markmannsþjálfara Roma, vegna árásar á Kjetil Knutsen, þjálfara norska liðsins, eftir 2-1 tap Roma í Noregi í gærkvöld. Atvikið náðist á myndband.

Alfons og félagar í góðri stöðu gegn lærisveinum Mourinho
Alfons Sampsted og félagar hans í norska liðinu Bodø/Glimt gerðu sér lítið fyrir og unnu 2-1 sigur gegn José Mourinho og lærisveinum hans í Roma. Þetta er í annað skipti á tímabilinu sem Bodø/Glimt hefur betur gegn Roma.

Alfons endurnýjar kynnin við Mourinho
Alfons Sampsted og félagar í norska meistaraliðinu Bodö/Glimt drógust gegn lærisveinum Jose Mourinho í ítalska liðinu Roma, í 8-liða úrslitum Sambandsdeildar UEFA í fótbolta.

Sjáðu mark Alfonsar sem kom Bodø/Glimt áfram í Sambandsdeildinni
Alfons Sampsted var hetja Bodø/Glimt þegar norsku meistararnir komust áfram í átta liða úrslit Sambandsdeildarinnar.

Sverrir og félagar á leið í átta liða úrslit
Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í gríska liðinu PAOK eru á leið í átta liða úrslit Sambandsdeildar Evrópu eftir 2-1 sigur gegn Gent frá Belgíu í kvöld.

Alfons Sampsted hetja Bodø/Glimt í framlengingu
Alfons Sampsted reyndist hetja norska liðsins Bodø/Glimt í 16-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Hann tryggði liðinu 2-2 jafntefli gegn AZ Alkmaar í framlengingu, en Alfons og félagar unnu fyrri leikinn 2-1.

Leicester í átta liða úrslit þrátt fyrir tap | Íslendingalið FCK úr leik
Enska úrvalsdeildarliðið Leicester City tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu þrátt fyrir 2-1 tap gegn Rennes í kvöld. Leicester vann fyrri leik liðanna 2-0. Þá féll Íslendingalið FCK úr leik eftir 4-0 tap gegn PSV Eindhoven.

86 Danir handteknir eftir markaveislu Ísaks Bergmanns og félaga í gær
Stuðningsmenn FC Kaupmannahafnar komu sér í vandræði eftir leik liðsins á móti PSV Eindhoven í Hollandi í gær.

Ísak skoraði fyrir FCK í átta marka jafntefli: Sjáðu markið
Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði fyrsta mark FCK er liðið gerði 4-4 jafntefli gegn PSV Eindhoven í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Sverrir og félagar fara með forystu í seinni leikinn
Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í gríska liðinu PAOK unnu 1-0 sigur er liðið tók á móti Gent frá Belgíu í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Hollenskir og belgískir mótherjar bíða Íslendinganna
Þrjú Íslendingalið voru í skálinni þegar dregið var í 16-liða úrslit Sambandsdeildar UEFA í fótbolta í dag.

Sverrir Ingi og félagar áfram eftir vítaspyrnukeppni
Það var leikið til þrautar í Þessalóníku í kvöld þar sem Íslendingaliðin PAOK og Midtjylland áttust við í Sambandsdeild Evrópu.

Barcelona skoraði fjögur í Napoli | Framlengt í Íslendingaslagnum
Barcelona er komið áfram í Evrópudeildinni eftir frábæra heimsókn til Napoli í kvöld.

Þægilegt hjá Bodo/Glimt gegn Celtic | Lazio úr leik í Evrópudeildinni
Fyrri leikjalotu kvöldsins í Evrópudeildinni og Sambandsdeild Evrópu lauk nú rétt í þessu.

Leicester með örugga forystu
Enska úrvalsdeildarfélagið Leicester vann öruggan 4-1 sigur gegn Randers frá Danmörku er liðin mættust í útsláttarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.