

Fimm erlendir félagsmenn Eflingar lýsa yfir eindregnum stuðningi við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann félagsins og segjast vera í áfalli vegna ásakana um fordóma Sólveigar gagnvart erlendu fólki.
We the undersigned are all born outside of Iceland. What we also have in common is that we are all doing low wage jobs and are therefore members of Efling Union.
Dúsur róa og gleðja. Launakerfi mora í dúsum – nema hjá láglaunafólki. Hjá öðrum hópum finnast mýmargar. Þetta getur verið laxveiðiferð, kaupréttarauki, digur viðbót við viðbótarlífeyri, ókeypis matur, kostað nám, föst yfirvinna, sérstök líkamsræktaraðstaða fyrir starfsfólk, fastur ökutækjastyrkur eða bíll til afnota, mjög veglegar jólagjafir, frí afnot sumarhúsa. Mætti lengi telja.
Fjölmargir sem misstu starfið í hópuppsögn hjá Eflingu hafa leitað til VR eftir aðstoð, líka félagsmenn Eflingar. Formaður VR er bjartsýnn á að verkalýðshreyfingin muni ná að þétta raðirnar fyrir næstu kjarasamningalotu þrátt fyrir allt sem hefur gengið á innan hreyfingarinnar. Tími sé kominn til að bera klæði á vopnin.
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, mun áfram gefa kost á sér til að gegna embætti formanns. Hún var kjörin formaður félagsins árið 2018 en formannskosning fer fram að nýju í byrjun maí.
Formaður Eflingar segir framferði varaformanns Eflingar fyrir neðan allar hellur í tengslum við kröfu um félagsfund og sakar hana um að reyna að knýja fram slíkan fund ólöglega. Þá muni hún fara eftir lögum félagsins og ekki reyna að koma í veg fyrir að félagsfundur verði haldinn.
Trúnaðarmaður Eflingar í Kjörís segir hópuppsagnir félagsins skaða alla verkalýðshreyfingu landsins og setja vont fordæmi fyrir komandi kjaraviðræður. Félagsmenn Eflingar krefjast félagsfundar til að ræða uppsagnirnar og ætlar stjórnin að verða við því.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og nýkjörinn formaður Starfsgreinasambandsins segir að stjórn Eflingar hafi gert mistök með því að ráðast í hópuppsagnir á skrifstofu félagsins.
Ég heiti Magnús Freyr Magnússon og er félagsmaður í Eflingu. Ég er svokallaður „starfsmaður 2 með stuðning” og vinn á leikskóla. Ég brenn fyrir verkalýðsmálum og trúi á lýðræði. Ég er jafnréttissinnaður baráttumaður í húð og hár og ég stend við orð mín undir nafni.
Stjórn Eflingar hyggst koma saman til að taka ákvörðun um boðun og tímasetningu félagsfundar, eftir að hátt í 500 félagsmenn undirrituðu skjal þar sem óskað var eftir fundi.
Félagsmenn Eflingar hafa safnað hátt í 500 undirskriftum þar sem þess er krafist að kallað verði til félagsfundar. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að greiða atkvæði um vantrauststillögu á Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, á fundinum.
Fyrrverandi félagsmálaráðherra og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur einsýnt að hópuppsagnir innan Eflingar muni hafa mikil áhrif á kjaraviðræður í haust. Hann furðar sig á forystu verkalýðshreyfingarinnar.
Árið 2018 fengum við Eflingarfélagar tækifæri til að kjósa um formann í félaginu okkar í fyrsta sinn. Þá völdum við formann, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, til að vinna fyrir okkur. Það gerði hún svo sannarlega: Hún hefur undirbúið, skipulagt og leitt raunverulega baráttu fyrir okkur. Við höfum fengið von um að ef við stöndum saman þá eru okkur allir vegi færir.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sendi í dag tölvupóst á félagsmenn stéttarfélagsins þar sem hún gagnrýnir umræðu um stéttarfélagið harðlega. Hún segir umræðuna hafa oft og tíðum verið vanstillta og byggða á röngum eða ófullkomnum upplýsingum.
Sem láglaunakona á Íslandi og Eflingarfélagi langar mig að skrifa nokkur orð um deilur í fjölmiðlum síðustu vikuna um breytingar í verkalýðsfélaginu okkar. - As a low wage worker in Iceland and member of Efling Union I would like to write some words about the disagreement that has been going on in the last week in the media about changes in our union.
Gunnar Smári Egilsson, sem situr í framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins, skrifar í pistli á Facebook að auglýsing Eflingar um starf framkvæmdastjóra félagsins útiloki að Viðar Þorsteinsson verði ráðinn í starfið.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að nýlegar hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar séu ekkert nema hreinsanir. Drífa segist ekki hafa gert upp við sig hvort hún bjóði sig fram til endurkjörs sem forseti ASÍ í haust.
Starfsmenn Eflingar eru enn í miklu áfalli eftir að þeim var öllum sagt upp í byrjun vikunnar. Auglýst var eftir nýju starfsfólki í morgun og starfsmönnum hent út af innri vef félagsins í gærkvöldi. Trúnaðarmaður félagsmanna VR í Eflingu gagnrýnir framkomu stjórnar harðlega og skiptar skoðanir voru meðal stjórnarmeðlima VR á aukafundi um málið í morgun.
Skiptar skoðanir eru á meðal stjórnarmanna VR um hvernig bregðast eigi við stöðunni sem upp er komin í Eflingu. Þetta herma heimildir fréttastofu. Stjórnin kom til aukafundar klukkan 14 í dag og útilokar ekki að hittast aftur síðar í kvöld til að álykta um næstu skref.
Stéttarfélagið Efling auglýsir í dag eftir nýju starfsfólki með heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu, eftir umdeilda hópuppsögn í byrjun viku. Líkt og fram hefur komið sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, sem er nýtekin aftur við sem formaður Eflingar, upp öllu starfsfólki.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður stéttarfélagsins VR, segir að hópuppsögn starfsmanna Eflingar hafi komið sér á óvart og slíkar aðgerðir séu ávallt áhyggjuefni. Þó beri að horfa á ákvörðunina í samhengi við þau langvarandi átök sem hafi ríkt innan Eflingar.
Lögfræðingur hyggst bjóða fría lögfræðiaðstoð fyrir starfsfólk Eflingar sem sagt var upp í hópuppsögn í vikunni. Hún segir að réttlætiskennd sinni sé misboðið og að það skjóti skökku við að stéttarfélag grípi til umræddra aðgerða gegn starfsmönnum sínum.
Eftirlitsmaður hjá Alþýðusambandinu segir hópuppsögn hjá Eflingu fordæmalausa og að hún muni hafa mikil áhrif á vinnumarkaðinn. Formaður Eflingar segir nóg komið af því að lítið sé gert úr forystu félagsins.
Fyrrverandi stjórnarmaður í Eflingu segir það gífurleg afglöp að segja upp öllu starfsfólki skrifstofunnar. Stjórn félagsins sé klofin og nú sé til umræðu að kalla saman félagsfund til að kjósa hana frá.
Mikið hefur verið fullyrt um laun hjá starfsmönnum stéttarfélaga í fjölmiðlum og almennri umræðu undanfarið. Slegið hefur verið fram ýmsum tölum og í sumum tilfellum haldið fram að starfsmenn stéttarfélaga séu jafnvel með rúmlega tvöföld lágmarkslaun og slagi jafnvel í laun upp 800-900 þúsund krónur.
Trúnaðarmaður starfsfólks Eflingar segir að Sólveig Anna sé búin að gengisfella tíu ára starf innan verkalýðshreyfingarinnar með hópuppsögn - sem ekkert samráð hafi verið haft um.
Mikil umræða hefur farið fram um hópuppsögn alls starfsfólks á skrifstofu Eflingar og hefur aðgerðin víða verið harðlega gagnrýnd. Formaður Starfsgreinasambandsins, hefur nú stigið fram og tekið upp hanskann fyrir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, og segist treysta því að vel verði staðið að hópuppsögninni.
Agnieszku Ewu Ziółkowsku, varaformanni Eflingar, barst í gærkvöldi uppsagnarbréf frá stjórn Eflingu. Hún segist óviss hvað þetta þýði, enda hafi hún verið lýðræðislega kjörin af félagsmönnum, ekki ráðin eftir auglýsingu.
Trúnaðarmenn starfsmanna Eflingar segja að fullyrðingar Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns félagsins um að samkomulag hafi náðst um framkvæmd hópuppsagnar með öllu rangar. Þeir segja hana sömuleiðis ekki hafa setið samráðsfundi með trúnaðarmönnum áður en hópuppsagnir voru tilkynntar.
Samtök ungs launafólks innan Alþýðusambands Íslands segja hópuppsögn innan Eflingar standa á mjög tæpum lagalegum grundvelli og stangast alfarið við þau siðferðislegu gildi sem þau vilji tileinka sér.