Stéttarfélög

Starfsmenn megi fara í atvinnuviðtöl á vinnutíma
Meirihluti stjórnar Eflingar, B-listinn, segir að samkomulag hafi náðst við trúnaðarmenn starfsfólks skrifstofu Eflingar um framkvæmd á skipulagsbreytingum á vinnustaðnum.

Ráðgjöf við ráðningar hjá Eflingu fyrir meira en 15 milljónir
Allt logar í illdeilum innan verkalýðshreyfingarinnar eftir að stjórn Eflingar ákvað að segja öllum starfsmönnum félagsins upp. Umfangsmikið ferli er fram undan hjá Eflingu við að endurráða í hátt í fjörutíu stöður.

Gagnrýni Drífu „í takt við þá stéttahollustu“ sem hún vilji sýna
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að sér þyki ekki óeðlilegt að ráðast í skipulagsbreytingar á skrifstofu félagsins með hópuppsögnum. Hún fordæmir þá gagnrýni sem aðrir verkalýðsforingjar hafa sett fram.

Blaða- og fréttamenn ræða sameiningu
Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna á ríkisútvarpinu eiga í óformlegum viðræðum um mögulega sameiningu. Stjórn BÍ segir að sameining muni efna samstöðu innan stéttarinnar og faglegt starf félagsins.

Sólveig Anna sakar Drífu um að ráðast á láglaunafólk
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem orðum Drífu Snædal forseta ASÍ er mótmælt hástöfum. Svo virðist sem brotist hafi út stríð innan verkalýðshreyfingarinnar.

Friðrik segir uppsagnir hjá Eflingu vekja óhug
Eftir að stjórn Eflingar greip til hópuppsagna á skrifstofum sínum leikur allt á reiðiskjálfi innan verkalýðshreyfingarinnar en þar hefur reyndar verið mikil ólga að undanförnu.

„Ekki leyfilegt að vera með hópuppsagnir af því bara“
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir það hafa komið sér verulega á óvart að stjórn Eflingar hafi ákveðið á fundi í gær að öllu starfsfólki stéttafélagsins yrði sagt upp störfum. Tillaga Sólveigar Önnu Jónsdóttur, nýkjörins formanns Eflingar, þess efnis var samþykkt á stjórnarfundi í gær.

Starfsmannafundur hjá Eflingu eftir fregnir af uppsögnum
Starfsmannafundur stendur nú yfir hjá Eflingu og er skrifstofan lokuð vegna þessa. Tillaga Sólveigar Önnu Jónsdóttur um að öllu starfsfólki yrði sagt upp störfum var samþykkt í gær.

Segir upp öllu starfsfólki Eflingar
Sólveig Anna Jónsdóttir, sem er nýtekin aftur við sem formaður Eflingar, lagði til á stjórnarfundi félagsins í dag að öllu starfsfólki Eflingar yrði sagt upp störfum. Tillagan var lögð fram og samþykkt af átta manna meirihluta B-lista undir forystu Sólveigar Önnu.

Kosið um forystu í Félagi framhaldsskólakennara
Í fyrstu viku maímánaðar fara fram kosningar í Félagi framhaldsskólakennara. Tveir eru í framboði til formanns og alls bjóða sig 13 manns fram til setu í stjórn félagsins.

Hver fékk bankann okkar gefins?
Í síðustu viku var fimmtungur í Íslandsbanka seldur á undirverði. Okkar sameiginlegu eigur voru seldar með verulegum afslætti til einhverra sem við vitum ekki hver eru. Við þekkjum þetta handrit allt of vel, þar sem hugmyndafræði frjálshyggjunnar ræður för. Það er talið knýjandi að losa sig við almannaeignir og röksemdirnar eru einfaldlega: af því bara.

Sitjandi formaður misnoti sjóði félaga í persónulegum hefndarleiðangri
Fyrrverandi framkvæmdarstjóri Eflingar sakar sitjandi formann félagsins um að misnota sjóði félaga Eflingar persónulegum hefndarleiðangri gegn sér og Sólveigu Önnu Jónsdóttur.

Hækka félagsgjald til að efla vinnudeilusjóð Sameykis
Félagsfólk Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu samþykkti á aðalfundi í gær að hækka félagsgjald í þeim tilgangi að efla vinnudeilusjóð félagsins. Tillagan var samþykkt með miklum meirihluta.

Viðar telur Odd lögmann Agnieszku hafa brotið siðareglur
Viðar Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar, sakar Odd Ástráðsson lögmann um að hafa gengið á svig við siðareglur lögmanna. Oddur hefur haft með höndum lögfræðilega úttekt á starfi kynningardeildar Eflingar meðan Viðar var þar framkvæmdastjóri.

Vill að Efling greiði lögmannskostnað vegna úttektar stéttarfélagsins
Stjórn Eflingar hyggst láta gera aðra úttekt á störfum Viðars Þorsteinssonar fyrrverandi framkvæmdastjóra stéttarfélagsins. Úttektin varðar greiðslur til vefhönnunarstofuna Sigurs en Viðar segir fráfarandi formann Eflingar reyna að gera störf hans tortryggileg. Hann óskar eftir því að fá að sitja við sama borð og fráfarandi formaður og spyr hvort stéttarfélagið geti séð sóma sinn í því að greiða honum lögmannskostnað.

Hver er glæpur forsetans?
Drífa Snædal forseti ASÍ hefur setið undir linnulausum árásum einstakra forystumanna félaga innan ASÍ. Fyrrum forseti ASÍ, samstarfsmaður minn og félagi Gylfi Arnbjörnsson varð fyrir skítkasti og árásum víða að úr samfélaginu, þó mun minna innan úr hreyfingunni sjálfri, en í tilfelli Drífu.

Brögð í tafli í kosningum VM
Það er þannig með sannleikann að einu gildir hversu oft hann er sagður vera lygi. Það sem er rétt breytist ekki og sem betur fer kemur sannleikurinn oftast fram að lokum.

Tekur við starfi samskiptastjóra BSRB
Freyja Steingrímsdóttir hefur verið ráðin nýr samskiptastjóri BSRB og mun hún hefja þar störf um mánaðarmótin.

Þriðja og síðasta þrepið verði að „umbylta forystusveit“ ASÍ
Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík, segir að eftir að tvö þrep í þátt átt að gera breytingar á verkalýðshreyfingunni hafi gengið eftir, þá muni það þriðja og síðasta felast í að „umbylta forystusveit Alþýðusambands Íslands“ – forystuteymið og miðstjórn – á þingi sambandsins næsta haust.

Þrepin þrjú til framtíðar
Áttunda þingi Starfsgreinasambands Íslands lauk fyrir helgina en það var haldið á Akureyri og stóð í þrjá daga. Eins og búast mátti við voru forystumál sambandsins fyrirferðarmikil á þinginu enda fyrirliggjandi að formaður sambandsins, Björn Snæbjörnsson, yrði ekki áfram í kjöri.

Sólveig Anna náði ekki kjöri í framkvæmdastjórn SGS
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar bauð sig fram í framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins í liðinni viku en náði ekki kjöri.

Vilhjálmur lofar að gera sitt besta
Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness var kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins á þingi þess í dag með tíu atkvæða mun. Hann segir að með samstöðu félagsfólks væri því allir vegir færir í komandi kjarasamningum sem verði erfiðir.

Nýr formaður SGS segir átökin í hreyfingunni nauðsynleg
Vilhjálmur Birgisson, nýkjörinn formaður Starfsgreinasambandsins, segir umboð sitt sem formaður ótvírætt. Mikilvægt sé að verkalýðssamtökin takist á um mál. En þegar stefnan liggi ljós fyrir þurfi allir að leggjast á eitt. Það sé samfélaginu til ævarandi skammar að lágmarkslaun dugi ekki fyrir nauðsynjum.

Vilhjálmur nýr formaður Starfsgreinasambandsins
Vilhjálmur Birgisson hefur verið kjörinn nýr formaður Starfsgreinasambandsins. Vilhjálmur hlaut sjötíu atkvæði (53,85 prósent) og Þórarinn G. Sverrisson sextíu atkvæði (46,15 prósent). Alls greiddu 130 manns atkvæði í formannskjörinu.

Flestir launþegar fá launahækkun 1. maí
Hagvaxtarauki Lífskjarasamningsins kemur til framkvæmda þann 1. apríl og verður greiddur út 1. maí. Launataxtar munu hækka um 10.500 krónur og almenn laun um 7.875 krónur.

Fórnarlömb innbyrðisátaka verkalýðshreyfingarinnar eru láglaunafólk
Kjarasamningar eru framundan á miklum óvissutímum. Samstaða innan verkalýðshreyfingarinnar er forsenda þess að hægt sé að ná árangri og hana má ekki brjóta upp nú þegar við stöndum frammi fyrir breyttri heimsmynd, bæði í kjölfar heimsfaraldurs og vegna stríðs í Evrópu sem mun senn hafa mikil áhrif á lífskjör fólks um allan heim.

Þakklátur fyrir stuðning Sólveigar Önnu
Vilhjálmur Birgisson, frambjóðandi til formanns Starfsgreinasambandsins, segist þakklátur fyrir stuðning Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar. Hann kveðst spenntur fyrir komandi kosningabaráttu og telur sig geta unnið með öllum stéttarfélögum.

Dynjandi lófaklapp þegar Sólveig labbaði inn í brottfararsal flugvallarins
Nýkjörinn formaður Eflingar segir áherslubyltingu verða innan Starfsgreinasambandsins nái Vilhjálmur Birgisson kjöri í embætti formanns sambandsins á þingi þess. Klappað var fyrir formanni Eflingar á Reykjavíkurflugvelli í dag þegar hún lagði af stað á þingið.

Kallar eftir afsögn fjármálaráðherra vegna afsláttar á söluverði
Formaður VR gagnrýnir harðlega að hlutur ríkisins í Íslandsbanka hafi ekki verið seldur á markaðsvirði og kallar eftir afsögn fjármálaráðherra.

Sammála Villa sem muni ekki loka sig inni á skrifstofunni
Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörinn formaður Eflingar, lýsir yfir fullum og einlægum stuðningi við framboð Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness, til formanns Starfsgreinasambandsins. Þing sambandsins hefst síðdegis en núverandi formaður lætur af störfum eftir tólf ár í formannsstól.