
Landslið karla í fótbolta

Sex dagar í EM-umspil: Aftur íslensk þjóðhátíð í München?
Hvað ef að íslenska karlalandsliðið í fótbolta næði að vinna EM-umspilið og tryggja sér farmiðann til Þýskalands í sumar? Dagskráin liggur fyrir.

Gylfi segir það gríðarleg vonbrigði að vera ekki valinn í landsliðið
Gylfi Þór Sigurðsson er mjög svekktur með ákvörðun landsliðsþjálfarans Age Hareide um að velja hann ekki í hópinn fyrir umspilsleikinn á móti Ísrael en landsliðshópurinn verður tilkynntur á morgun.

Gylfa hafi verið tilkynnt að hann sé ekki í landsliðshópnum
Gylfi Þór Sigurðsson fékk að vita á dögunum að hann verði ekki í landsliðshópi Íslands sem tilkynntur verður á morgun ef marka má fyrirliða Fylkis. Gylfi æfði með Fylkismönnum á Spáni í síðustu viku.

Sjö dagar í EM-umspil: Hverjir eiga að koma Íslandi til Þýskalands?
Á morgun ræðst það hvaða leikmönnum Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta, ætlar að treysta til þess að koma Íslandi á EM í Þýskalandi í sumar.

Óljóst hvort Albert megi spila ef niðurfelling er kærð
Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, hefur staðfest að Åge Hareide, landsliðsþjálfara karla, sé frjálst að velja Albert Guðmundsson í hópinn fyrir komandi verkefni gegn Ísrael. Verði niðurstaða Héraðssaksóknara kærð vandast staðan.

Átta dagar í EM-umspil: Njósnar fyrir Ísland í Bosníu
Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta, einbeitir sér alfarið að leiknum við Ísrael í EM-umspilinu í næstu viku en hefur valið tvo „njósnara“ til undirbúnings fyrir mögulegan úrslitaleik um EM-sæti.

Íhugar alvarlega að kæra niðurfellingu máls Alberts
Kona sem kærði knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson fyrir nauðgun íhugar alvarlega að kæra niðurfellingu héraðssaksóknara á málinu. Hún hefur tíu daga til að ákveða sig. Degi áður en kærufrestur rennur út leikur karlalandsliðið í knattspyrnu við það ísraelska í umspili um sæti á EM 2024.

Níu dagar í EM-umspil: Milljarðar gætu streymt til KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands fékk 1,9 milljarða króna framlag frá UEFA vegna þátttöku sinnar á EM karla í Frakklandi 2016. Mögulegt verðlaunafé tengt Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar er enn hærra. Evrópumeistararnir gætu fengið 4,2 milljarða króna.

Tíu dagar í EM-umspil: Stríðin og sending Þóris skiluðu Íslandi hingað
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er aðeins 180 mínútum frá sæti í lokakeppni EM í Þýskalandi í sumar. En hvernig endaði liðið í þessari stöðu, eftir að hafa aðeins unnið sárafáa leiki á síðustu árum?

Skiptir úr íslenska landsliðinu yfir í það bandaríska
William Cole Campbell hefur ákveðið að feta sömu slóð og Aron Jóhannsson og velja það frekar að spila fyrir bandaríska fótboltalandsliðið en það íslenska.

Ísrael án stærstu stjörnunnar gegn Íslandi
Ísraelsmenn hafa orðið fyrir áfalli í aðdraganda leiksins mikilvæga við Ísland, í umspili um sæti á EM karla í fótbolta, samkvæmt ísraelskum miðlum.

Mæta Hollendingum í Rotterdam eftir leikinn gegn Englendingum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Hollandi í vináttulandsleik í Rotterdam 10. júní næstkomandi.

Mæta Bosníu eða Úkraínu sama hvernig fer gegn Ísrael
Sama hvernig fer gegn Ísrael þá mun íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mæta Bosníu-Hersegóvínu eða eða Úkraínu.

Gylfi æfir með Fylki á Spáni
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er staddur um þessar mundir á Spáni ásamt sjúkraþjálfaranum Friðriki Ellerti Jónssyni í endurhæfingu.

Utan vallar: Hvað mega heilindin kosta?
Þeir sem valdið hafa hjá Knattspyrnusambandi Íslands eru ekki í öfundsverðri stöðu vegna andstæðings karlalandsliðsins í komandi umspili fyrir Evrópumótið. Ekki stendur til að sniðganga leikinn við Ísrael og það hefur ekki einu sinni komið til umræðu hjá sambandinu.

Hikandi við að mæta Ísrael „vegna þess sem þeir hafa gert við saklausa borgara“
Åge Hareide, landsliðsþjálfari í fótbolta, segir að Ísland ætti ekki að þurfa að spila á móti Ísrael, vegna voðaverkanna á Gasa-svæðinu síðustu mánuði. Íslendingar neyðist hins vegar til að spila leikinn, í umspili um sæti á EM.

„Allir á Íslandi verða að trúa“
Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide vill ekki heyra neitt bölsýnistal í aðdraganda leikjanna sem gætu skilað Íslandi á sjálft Evrópumótið í Þýskalandi í sumar. Staðan á leikmönnum liðsins mætti þó vera mun betri.

Aron og Gylfi að falla á tíma: „Miklum vandkvæðum háð að velja þá“
Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, segist ekki koma til með að velja Gylfa Þór Sigurðsson eða Aron Einar Gunnarsson í EM-umspilið, eftir þrjár vikur, nema að þeir verði farnir að spila fyrir félagslið.

Gæti valið Albert að nýju: „Verð að treysta leikmanninum“
Albert Guðmundsson getur að óbreyttu á ný spilað fyrir Íslands hönd þegar liðið mætir Ísrael eftir þrjár vikur, í umspili um sæti á EM í fótbolta. Åge Hareide landsliðsþjálfari segir Albert hafa fullan hug á því að snúa aftur í liðið, eftir hálfs árs fjarveru, í kjölfar þess að kynferðisbrotamál gegn honum var látið niður falla.

Guðjón greindist með Parkinson
Guðjón Þórðarson, einn farsælasti knattspyrnuþjálfari Íslands frá upphafi, greindist með taugasjúkdóminn Parkinson í byrjun ágúst á síðasta ári.

Unga konan sem kærði Albert muni eyða ævinni í að vinna úr málinu
Lögmaður konunnar sem kærði knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson fyrir kynferðisbrot skoðar nú hvort kæra skuli ákvörðun héraðssaksóknara um að láta málið niður falla til ríkissaksóknara. Málið hafi verið afar erfitt fyrir ungu konuna, sem muni eyða ævinni í að vinna úr því.

Mál Alberts látið niður falla
Héraðssaksóknari hefur fellt niður kynferðisbrotamál gegn knattspyrnumanninum Alberti Guðmundssyni. Síðasta sumar var hann kærður fyrir kynferðisbrot.

Gylfi í góðum gír á Spáni og vonast til að spila um EM-sæti
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson sinnir nú endurhæfingu sinni eftir meiðsli, á Spáni, með aðstoð sjúkraþjálfarans Friðriks Ellerts Jónssonar sem áður var sjúkraþjálfari íslenska landsliðsins.

Ísland heldur áfram að falla niður um sæti á FIFA-listanum
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er komið niður í 73. sætið á nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins.

Harðneituðu að spila í Ísrael: „UEFA steig sem betur fer inn“
Ísraelska knattspyrnusambandið pressaði stíft á KSÍ og UEFA að fá að halda umspilsleik karlalandsliða Íslands og Ísrael í heimalandinu. KSÍ harðneitaði ítrekuðum beiðnum og UEFA ákvað að leikurinn skyldi haldinn á hlutlausum velli.

Byrja í Laugardalnum en spila síðasta leikinn í Wales
Knattspyrnusamband Evrópu hefur nú staðfest leikdaga íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í Þjóðadeild UEFA í haust.

Ísland í riðli með Wales, Svartfjallalandi og Tyrklandi
Dregið var í riðla Þjóðadeildar karla í knattspyrnu nú rétt í þessu. Ísland leikur í B-deild og er þar í riðli 4.

Íslensku strákarnir spila á Wembley í júní
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Englendingum í vináttulandsleik rétt fyrir Evrópumótið í Þýskalandi í sumar.

Ákall um að FIFA og UEFA banni Ísrael að spila við Ísland
FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, og UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, hafa verið hvött til að banna Ísrael frá allri keppni í fótbolta vegna hörmunganna á Gasa. Slíkt bann hefði mikil áhrif á Ísland.

Mæta Ísrael í Ungverjalandi
Leikur Íslands og Ísraels í umspili um sæti á EM í Þýskalandi verður leikinn í Búdapest í Ungverjalandi.