Færð á vegum

Nokkur umskipti frá helgarveðrinu
Suðvestur af landinu er hæð sem beinir mildri suðvestlægri átt til okkar. Því verða nokkur umskipti frá helgarveðrinu samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Í pistli hans segir að í nótt hafi þykknað upp vestanlands á meðan það létti til eystra.

Hitastig í júní undir meðallagi á öllum veðurstöðvum
Júnímánuður var nokkur kaldur á landinu öllu. Hiti var undir meðallagi á öllum veðurstöðvum Veðurstofunnar. Mánuðurinn var óvenjulega úrkomusamur á Norðausturlandi auk þess sem það snjóaði óvenjulega mikið miðað við árstíma.

Gul viðvörun á Austfjörðum og Suðausturlandi
Í dag er allhvöss og hvöss norðvestanátt og rigning, hvassast á Austfjörðum og undir Vatnajökli. Gular viðvaranir eru í gildi vegna vinds og ráðlagt að fara með gát, einkum þegar ferðast er með aftan í vagna. Viðvörunin rennur úr gildi snemma á laugardagsmorgun.

Lægð á leið til landsins en sól á Suðurlandi í dag
Vestur af Skotlandi er lægð á leið norður og skilin frá henni eru að nálgast Austfirði með norðlægri átt og rigningu. Er líður á daginn verður norðanátt á öllu landinu, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi.

Yfir tuttugu gráður með mígandi rigningu næstu helgi
Eflaust eru margir farnir að huga að veðrinu næstu helgi fyrir útilegur og önnur ferðalög. Á vef Veðurstofunnar segir að á laugardag verði hlýjast á Suðausturlandi og að hiti gæti þar náð tuttugu stigum. Á sunnudag verður svo hlýjast á Norðausturlandi og gæti hitinn náð 24 stigum.

Suðvestanátt með skúrum
Í dag fara skil sem komu með rigningu í gær og í nótt til norðurs frá landinu. Þá snýst vindurinn í suðvestanátt með skúrum, en léttir til á Norðausturlandi. Hiti verður á bilinu átta til fimmtán stig samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings. Hlýjast verður austanlands.

Rigning eða súld um mest allt landið
Í dag verður breytileg átt og þrír til átta metrar á sekúndu. Það verður aðeins hvassara á Vestfjörðum, en þar verður norðvestan átt og átta til þrettán metrar á sekúndu. Það verður samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings rigning eða súld um mest allt land en styttir smám saman upp austanlands. Hiti 7 til 14 stig yfir daginn.

Öxnadalsheiði opin á ný
Vegurinn um Öxnadalsheiði var opnaður á ný á fimmta tímanum í nótt. Honum var lokað í gærkvöldi eftir að alvarlegt rútuslys varð á veginum.

Næsta gusa lendi á landinu annað kvöld
Langvarandi veðurviðvaranir eiga loks að falla úr gildi í nótt. Appelsínugul viðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra en gul viðvörun á vestan-, norðan, og austanverðu landinu.

Áfram hríðarveður fyrir austan
Áfram er spáð hríðarveðri norðaustan- og austanlands í dag, og einnig hvasst, hviður um 35 m/s og sandfok á köflum, suðaustantil á landinu.

Stærðar snjóskaflar og nagladekkin sett aftur á
Tveggja metra snjóskaflar og hríðarbylur blasti við starfsmönnum Landsvirkjunar þegar þeir mættu til vinnu í morgun á Þeistareykjum á Norðurlandi. Öll ummerki sumars voru fjarlægð á einni nóttu á svæðinu en eins og greint hefur verið frá gildir appelsínugul veðurviðvörun víðs vegar á landinu í dag.

Illviðri miðað við árstíma
Næstu daga er útlit fyrir óvenjulegt illviðri miðað við árstíma. Gul viðvörun er í gildi þar til á miðnætti 5. júní miðvikudag. Hvatt er til þess að huga að lausamunum sem geta fokið. Ferðalög geti verið varasöm, sérílagi á ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi.

Samfelld rigning á Suðvesturlandi en þurrt á Vestfjörðum
Í dag verður suðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu og hvassast norðvestan til. Þá verður nokkuð samfelld rigning og súld suðvestanlands, en rigning öðru hverju fyrir norðan og austan. Á Vestfjörðum verður þó líklega alveg þurrt.

Regnsvæði á leið yfir landið
Regnsvæði er nú á leið austur yfir land í morgunsárið, í kjölfarið á því styttir upp og það léttir til norðaustan- og austanlands eftir hádegi. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að næstu daga sé suðvestanátt í kortunum, upp í stinningskalda eða allhvassan vind norðvestantil í dag.

Vætan minnkar smám saman og birtir til
Í nótt var rigning eða súld nokkuð víða á landinu. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að vætan sé nú smám saman að minnka. Það verði væntanlega þurrt að kalla eftir hádegi og birti jafnvel upp um tíma vestanlands. Vindurinn í dag verður fremur hægur, úr norðvestri eða vestri.

Skýjað og dálítil væta í dag
Í dag má búast við hægri og breytilegri vindátt. Þá verður skýjað að mestu og sums staðar dálítil væta. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur svo fram að í kvöld komi úrkomubakki inn á vestanvert landið með rigningu og súld og vestan fimm til tíu metrar á sekúndu. Þá fer aðeins að hreyfa vind.

Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun
Vegagerðin stefnir á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, á milli gatnamóta við Vogaveg og Grindavíkurveg á morgun.

Um 18 stig á Norðausturlandi í dag
Í dag verður suðaustanátt og þrír til tíu metrar á sekúndu. Það væri verið skýjað og sums staðar lítilsháttar væta eða stöku skúrir en bjart með köflum norðaustanlands. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að þar sem að vindur er hægari í dag en í gær sé líklegt að hafgolan nái sér á strik á Norðausturlandi.

Líklega síðasta veðurviðvörunin í bili
Lægð gærdagsins mjakast vestur til Grænlands og í leiðinni fjarlægast skilin landið. Núna í morgunsárið er enn nokkuð hvasst vestanlands en annars er vindur yfirleitt á bilinu fimm til tíu metrar á sekúndu. Enn er í gildi gul veðurviðvörun á Breiðafirði og Miðháheldi. Það gæti orðið vel hlýtt á norðausturlandi í dag.

Léttskýjað í dag en von á nýrri lægð á morgun
Í dag er hæð suðaustur af landinu sem er á leið austur. Það er því hægviðri á sunnanverðu landinu í dag en suðvestan 5 til 13 metrar á sekúndu bæði norðan- og norðvestanlands. Hvassast er á annesjum er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar.

Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu
Öryggi starfsfólks við vegavinnu er til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar í dag. Á fundinum verður kynnt vitundarátakið; Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, flutt stutt erindi um reynslu fólks af því að starfa í nálægð við þunga og hraða umferð. Samgöngustofa frumsýnir myndband um akstur gegnum vinnusvæði.

Norðlægari vindur í dag en um helgina
Í dag verður vindur norðlægari en var um helgina. Á Austfjörðum verður strekkingur, en annars hægari vindur. Lítilsháttar skúrir eða él verða á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti verður á bilinu tvö til 12 stig, mildast verður syðra.

Lægð nálgast landið úr austri
Dálítil lægð nálgast nú landið úr austri og verður því norðan- og norðaustanátt í dag. Víða kaldi eða stinningskaldi og dálitlar skúrir eða él, en bjart að mestu um landið suðvestanvert.

Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is
Veðurupplýsingar frá Veðurstofu Íslands eru orðnar aðgengilegar á kortavef Já.is.

Víða blautt í dag og varað við asahláku
Í dag gengur í sunnan strekking eða allhvassan vind með súld eða rigningu sunnan- og vestanlands. Norðaustan til verður úrkomuminna. Síðdegis bætir í rigningu, og verður talsverð rigning á Vesturlandi. Hiti verður víða fimm til 12 stig, hlýjast í hnúkaþey fyrir norðan og austan.

Enn verður kalt í dag
Í dag verða litlar breytingar á veðrinu. Enn verður kalt og samhliða hæg norðlæg eða breytileg átt. Á norðanverðu landinu gæti snjóað dálítið og verið frost. Stöku skúrir eða él sunnantil á landinu og hiti þar um eða yfir frostmarki.

Hlýnar um helgina
Áfram verður svalt í dag og á morgun en um helgina fer að hlýna. Grunnar lægðir fara nú austur með suðurströndinni. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að þeim fylgi lítilsháttar úrkoma öðru hverju og frekar hægur vindur.

Hríðarveður og erfitt yfirferðar á Norðurlandi í dag
Varað er við hríðarveðri og allhvössum vindi yfir miðjan daginn á Norðurlandi. Búast má því að það verði víða blint og erfitt yfirferðar norðanlands. Einkum í Húnaþingi og Skagafirði, en einnig við utanverðan Eyjafjörð og austur með ströndinni.

Geta sent ökumönnum skilaboð í rauntíma á nýjum skiltum
Vegagerðin vonast til þess að geta komið upplýsingum til ökumanna á fjallvegum með skilvirkari leiðum á nýjum skiltum.

Snjóflóðið reyndist vera stór skafl
Björgunarsveitir á Tröllaskaga voru kallaðar út í dag um klukkan hálf tvö vegna snjóflóðs á Siglufjarðarvegi. Ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofunni segir að öllum líkindum hafi ekki verið snjóflóð. Það sé afar slæm færð á veginum og óvissustig en tilkynningin hafi borist um hættu utan þess svæðis.