

Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur tilkynnt að búið sé að afnema regluna um útivallamörk í öllum keppnum á vegum sambandsins. Það þýðir að mörk á útivelli telja alveg jafnmikið og mörk á heimavelli í Meistaradeild Evrópu og öðrum Evrópukeppnum.
Manchester United gengur illa í vítaspyrnukeppnum og það sannaðist enn á ný í gærkvöldi þegar liðið tapaði í vítakeppni á móti spænska liðinu Villarreal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Það þurfti lengstu vítaspyrnukeppni í sögu allra keppna á vegum UEFA til að skera úr um sigurvegara í leik Villarreal og Manchester United í úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í gærkvöld.
Neil Lennon, fyrrum stjóri Celtic, var spekingur breska ríkisútvarpsins yfir úrslitaleik Villarreal og Manchester United í kvöld.
Villarreal er Evrópudeildarmeistari eftir sigur á Manchester United í úrslitaleiknum í Gdansk í kvöld. Úrslitin réðust eftir ótrúlega vítaspyrnukeppni.
Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að úrslitaleikur Evrópudeildarinnar í kvöld muni skilgreina 2020-21 tímabilið hjá United.
Alberto Moreno er enn á ný kominn í úrslitaleik í Evrópukeppni. Áður með Liverpool og Sevilla en nú með Villarreal. Hann ætti að kannast vel við mótherja kvöldsins eftir árin sín með Liverpool.
Manchester United og Villarreal mætast í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Gdansk í Póllandi síðar í þessum mánuði.
Edinson Cavani skoraði bæði mörk Manchester United gegn Roma í seinni leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í gær. Stuðningsmenn United voru ekki bara ánægðir með mörkin tvö heldur einnig þegar Cavani varði hinn unga samherja sinn, Mason Greenwood.
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, ræddi við BT Sport að loknu 3-2 tapi Manchester United í Róm í kvöld. Liðið er samt sem áður komið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Villareal og Arsenal gerðu markalaust jafntefli á Emirates-vellinum í Lundúnum síðari leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Villareal og lærisveinar Unai Emery því komnir í úrslit gegn Manchester United.
Roma lagði Manchester United 3-2 í síðari leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Gestirnir unnu fyrri leik liðanna 6-2 og einvígið þar með 8-5 samanlagt. Lærisveinar Ole Gunnar Solskjær því komnir í úrslit Evrópudeildarinnar.
Á meðan að Manchester United virðist eiga sigurinn vísan í einvígi sínu við Roma er mikil spenna í undanúrslitarimmu Arsenal og Villarreal þar sem úrslitin ráðast í kvöld, í Evrópudeildinni í fótbolta. Arsenal þarf að gera nokkuð sem engu liði hefur tekist í vetur.
Enska úrvalsdeildin er aftur að verða besta fótboltadeildin í Evrópu samkvæmt mælikvörðum Knattspyrnusambands Evrópu.
Manchester United bauð upp á flugeldasýningu í seinni hálfleik gegn Roma í gær og Bukayo Saka bjargaði Arsenal úr afar erfiðri stöðu gegn Villarreal á Spáni. Mörkin og rauðu spjöldin má sjá hér á Vísi.
Manchester United er í góðri stöðu fyrir síðari leikinn gegn Roma í undanúrslitum Evrópudeildarinnar eftir 6-2 sigur á Roma í kvöld.
Unai Emery náði höggi á sinn fyrrum vinnuveitanda, Arsenal, er hann stýrði Villarreal til 2-1 sigurs gegn Lundúnarliðinu í fyrri undanúrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Stytta hefur verið reist af Ole Gunnar Solskjær, stjóra Manchester United, í heimabænum Kristjánssundi í Noregi en hann er einn af stærstu stjörnum bæjarins.
Bruno Fernandes er svo sáttur hjá Manchester United að hann sér fyrir sér að vinna áfram hjá félaginu eftir að leikmannaferlinum lýkur.
Fyrir nokkru síðan sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man. United, að hann þekkti ekki Roma-liðið og vissi ekki hvað biði United í Evrópudeildinni.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA tilkynnti í dag nýtt fyrirkomulag á Evrópu-keppnum sínum. Um er að ræða bæði Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildina. Tekur fyrirkomulagið gildi árið 2024 þegar núverandi sjónvarpssamningur rennur sitt skeið.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var virkilega sáttur með 4-0 sigur sinna manna gegn Slavia Prag í Evrópudeildinni í kvöld. Liðið er nú komið í undanúrslit keppninnar þar sem þeir mæta sínum fyrrum stjóra, Unai Emary, og lærisveinum hans í Villareal.
Manchester United er komið í undanúrslit Evrópudeildarinnar eftir 2-0 sigur gegn Granada á Old Trafford í kvöld. Liði mætir Roma í undanúrslitum í lok mánaðarins.
Arsenal átti ekki í miklum vandræðum þegar þeir heimsóttu Slavia Prag til Tékklands í Evrópudeildinni í kvöld. Niðurstaðan 4-0 útisigur Lundúnaliðsins og farmiði í undanúrslitin því bókaður.
Staða ensku liðanna fyrir seinni leikina í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar er ansi ólík. Manchester United er komið með annan fótinn í undanúrslitin á meðan Arsenal þarf að taka á honum stóra sínum til að komast þangað.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segir að rauðir borðar með merki félagsins á Old Trafford hafi truflað leikmenn það mikið að nú séu borðarnir með merki félagsins orðnir svartir.
Knattspyrnusamband Evrópu hefur dæmt Ondrej Kúdela, leikmann Slavia Prag, í tíu leikja bann fyrir að beita Glen Kamara, leikmann Rangers, kynþáttaníði í leik liðanna í Evrópudeildinni 19. mars.
Nakinn maður hljóp inn á völlinn eftir fimm mínútna leik hjá Granada og Manchester United á Spáni í gærkvöld, þrátt fyrir áhorfendabann á vellinum.
Manchester United er í algjörri kjörstöðu til að komast í undanúrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir að hafa unnið 2-0 sigur gegn spænska liðinu Granada í samnefndri borg í gær.
Boltastrákur Ajax var ekki sáttur með tafir Riccardos Calafiori, leikmanns Roma, og grýtti boltanum í hann í leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær.