Samgöngur
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 101 ›
Stórbætum samgöngur Mikilvægi öruggra samgangna er gríðarlegt hagsmunamál íbúa landsins. Ekki síst fólks sem býr á landsbyggðinni, í ljósi sérstæðrar búsetusamsetningar þjóðarinnar. Árið 1900 bjuggu um 11% þjóðarinnar á höfuðborgarsvæðinu en eru nú nær 70%. Skoðun 3.5.2024 11:16
„Almennings“ samgöngur? Í viðtali á Rás 2 sagði Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli, að almenningssamgöngurnar sem þangað liggja, vera fyrst og fremst fyrir starfsfólk vallarins. Skoðun 3.5.2024 07:00
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. Innlent 1.5.2024 23:00
Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Orkumál eru formanni Samfylkingarinnar hugleikinn en að mati hennar þarf fimm terawött af orku í viðbót fyrir landið, sem yrði um fjórðungs aukning á næstu tíu árum. Þá vill Samfylkingin verja um 20 milljörðum til viðbótar á ári til nýfjárfestinga og viðhalds á samgönguinnviðum. Innlent 25.4.2024 13:31
Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Samfylkingin segir enga skýra auðlindastefnu vera á Íslandi og heildarsýn skorti á nýtingu auðlinda. Flokkurinn vill taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna. Einnig vilja þau auka fjárfestingar í samgönguinnviðum og nýta fleiri virkjanakosti. Innlent 24.4.2024 22:03
Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun Á morgun verður hinn alþjóðlegi dagur jarðar haldinn og að því tilefni hefur Krónan ákveðið að bjóða öllum sem mæta með fjölnota innkaupapoka í strætó á höfuðborgarsvæðiu ókeypis far. Neytendur 21.4.2024 12:30
Opna Grindavíkurveg fyrir íbúa, starfsfólk og viðbragðsaðila Vegagerðin opnaði Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut eða Grindavík þeim sem eiga erindi þar í dag. Aðeins Grindvíkingar, viðbragðsaðilar og starfsfólk fyrirtækja í bænum og við Svartsengi mega aka veginn. Innlent 11.4.2024 21:45
Vél frá Boeing snúið við eftir að vélarhlíf rifnaði af í flugtaki Samgönguyfirvöld í Bandaríkjunum hafa hafið enn eina rannsóknina er varðar flugvél frá Boeing, eftir að flugmenn neyddust til að lenda vél frá fyrirtækinu í kjölfar þess að vélarhlíf rifnaði af í flugtaki. Erlent 8.4.2024 07:04
Fyrstu 757-þotu Íslendinga lagt eftir 33 ára þjónustu Fyrstu Boeing 757-þotunni sem Íslendingar eignuðust, TF-FIH, hefur núna verið lagt, eftir 33 ára þjónustu hjá Icelandair. Engin flugvélartegund hefur þjónað íslenskum flugfarþegum jafn lengi og þessi. Innlent 4.4.2024 21:07
Stefnir í að bið eftir jarðgöngum lengist Ófærðin sem birtist vegfarendum á fjallvegum á norðurhelmingi landsins um páskana, þar sem þúsundir manna komust ekki leiðar sinnar, hefur kallað fram endurnýjaðar kröfur um jarðgöng. Óvissa ríkir hins vegar um hvernig jarðgangaáætlun verður fjármögnuð og stefnir í að í flestum landshlutum þurfi menn að bíða lengi eftir næstu göngum. Innlent 2.4.2024 22:10
Öxnadalsheiði lokuð vegna áreksturs Öxnadalsheiði hefur verið lokuð vegna áreksturs. Innlent 2.4.2024 10:02
Borgarlína og bráðavandi Samgöngusáttmálinn hefur nú verið rúmt ár í endurskoðun og hafa hver ósköpin á fætur öðrum dunið á ríkissjóði á þeim tíma. Ekki er nóg með að kostnaðaráætlanir Borgarlínu rjúki upp, hamfarirnar í Grindavík kosta sitt, ríkissjóður þarf að kosta ómældu fé til að skynsamlegir kjarasamningar náist á vinnumarkaði og enn er margt vantalið. Skoðun 2.4.2024 09:30
Enn lokað um Öxnadalsheiði Enn er ófært á nokkrum stöðum á landinu, meðal annars um Öxnadalsheiði fyrir norðan og um Þröskulda fyrir vestan. Innlent 2.4.2024 07:23
Bæjarstjóri Akureyrar telur þörf á göngum Ástihildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segir þurfa að huga alvarlega að jarðgöngum milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og á fleiri stöðum á landinu. Innlent 1.4.2024 23:28
Öxnadalsheiðin áfram lokuð en Fjarðarheiðin opnaði í kvöld Ekki náðist að opna Öxnadalsheiði í dag en reiknað er með að hún verði opnuð í fyrramálið þegar veður skánar. Vegurinn um Fjarðarheiði opnaði í kvöld eftir að hafa verið lokaður í fjóra daga. Fulltrúi Vegagerðarinnar segir von á hvelli í kvöld en það veður verði mun skárra á morgun. Innlent 1.4.2024 22:18
Þung umferð í gegnum Siglufjörð og umferðarstýring um Múlagöng Fjöldi fólks á leið suður af Norðurlandi hefur lagt leið sína fyrir Tröllaskaga, þar sem Öxnadalsheiði er lokuð. Innlent 1.4.2024 16:20
Styttist í að Nuuk fái nýjan alþjóðaflugvöll Flugvallafélag Grænlands, Kalaallit Airports, hefur formlega gefið út opnunardag nýs alþjóðaflugvallar í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Stóri dagurinn verður eftir átta mánuði, 28. nóvember 2024. Þetta er fimm árum eftir að flugvallargerðin hófst og meira en árs seinkun frá upphaflegri áætlun. Erlent 1.4.2024 07:27
Árekstur á Siglufjarðarvegi Tveir bílar rákust saman úr gagnstæðri átt á Siglufjarðarvegi á sjöunda tímanum í kvöld. Ekki voru alvarleg slys á fólki en bílarnir eru illa farnir. Innlent 29.3.2024 19:44
Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Í nýju frumvarpi innviðaráðherra til breytinga á umferðarlögum er lagt til að brot á prófreglum í ökuprófi geti varðað sviptingu á próftökurétti í allt að sex mánuði, auk annarra mögulegra refsinga. Innlent 29.3.2024 12:20
Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Bæjarstjóri Þórshafnar í Færeyjum, Heðin Mortensen, vill hefja undirbúning að gerð nýs alþjóðaflugvallar í Færeyjum. Ummælin féllu í viðtali við Kringvarpið í vikunni í framhaldi af vandræðum sem fraktflugfélagið FarCargo glímir við að nýta Vogaflugvöll til fiskflutninga með Eysturoy, Boeing 757-þotu félagsins. Erlent 29.3.2024 08:48
Flestar kvartanir varða framkomu vagnstjóra og aksturslag Strætó bs. bárust 3.493 ábendingar á síðasta ári og fjölgaði þeim um þrjú prósent á milli ára. Kvartanir voru 2.369 árið 2021, en 3.405 árið 2022 og fjölgaði þeim þá mikið árið 2022. Innlent 26.3.2024 06:42
Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Forstjóri Boeing, Dave Calhoun, mun láta af störfum fyrir árslok. Auk hans lætur af störfum forstjóri áætlunarflugvéladeildar félagsins, Stan Deal. Stephanie Pope tekur við af honum. Steve Mollenkopf hefur verið skipaður formaður stjórnar félagsins. Calhoun tilkynnti um þetta í dag í bréfi til starfsmanna. Viðskipti erlent 25.3.2024 13:09
„Skrýtið að við þurfum að taka þessa baráttu á hverju ári“ Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segist illa slegin yfir fréttum af því að ekkert áætlanaflug verði til eyja frá og með mánaðamótum og segir skrýtið að þurfa að fara í sama slaginn á ári hverju. Vegagerðin ákvað að framlengja ekki samning um slíkt flug, en bæjarstjórinn segir ábyrgðina helst liggja hjá Alþingi Innlent 24.3.2024 19:30
Flugi til Húsavíkur og Vestmannaeyja haldið áfram yfir veturinn Flug til Húsavíkur og Vestmannaeyja verður boðið út fyrir næsta vetur en aðeins yfir vetrarmánuðina, frá desember til febrúarloka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Innlent 24.3.2024 17:54
Reiðarslag fyrir íbúa Vestmannaeyja og Húsavíkur Áætlunarflugi frá Reykjavík til Vestmannaeyja og Húsavíkur verður hætt frá og með næstkomandi mánaðamótum. Rekstrarstjóri Ernis segir mikið reiðarslag fyrir íbúa bæjanna að ekkert Reykjavíkurflug verði í boði eftir þann tíma. Innlent 24.3.2024 13:43
Skipulagsstofnun brýnir fyrir Vegagerðinni að vanda til verka Skipulagsstofnun gerir ýmsar athugasemdir við matsáætlun Vegagerðarinnar vegna Sundabrautar og ítrekar meðal annars að í umhverfismatsskýrslu verði greint frá því á hvaða forsendum öðrum kostum, til að mynda jarðgöngum, var hafnað. Innlent 23.3.2024 08:31
Opna Grindavík aftur Grindavík hefur verið opnuð aftur og Grindvíkingum og þeim sem starfa í bænum leyft að dvelja þar og vinna. Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir að lítil sem engin hreyfing sé á hraunrennsli, bæði inn í Svartsengi og fyrir ofan Suðurstrandaveg. Innlent 19.3.2024 10:30
Vannýtt tækifæri Háskóli Íslands hefur farið fögrum orðum um áherslur sínar í umhverfis- og loftslagsmálum. Ein af fjórum áherslunum í stefnu skólans til 2026 snýr að „Sjálfbærni og fjölbreytileika.“ Þessu höfum við í Röskvu fagnað enda höfum við krafist þess að háskólinn taki þessum málum föstum tökum. Skoðun 19.3.2024 08:00
Byrjað að flæða úr tjörninni Enn flæðir hraun úr sprungunni á Reykjanesi, þó dregið hafi úr virkni þar og hraunflæði. Hraunið flæðir í tvær áttir, til vesturs í átt að Grindavíkurvegi, þar sem hraunið hefur farið yfir veginn og nálgast Njarðvíkuræð, og til suðurs í átt að Suðurstrandavegi. Innlent 17.3.2024 10:26
Hraunið rennur hratt og stefnir á Suðurstrandarveg Víðir Reynisson sviðsstjóri hjá Almannavörnum segir að hrauntungurnar tvær frá gosinu við Grindavík valdi mönnum áhyggjum. Stutt er í að hraun renni bæði yfir Grindavíkur- og Suðurstrandaveg. Innlent 16.3.2024 23:19