Neville gekk frá rúmum 15 milljónum punda er hann samdi við Valencia Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. desember 2015 15:30 Neville er mættur til Valencia. vísir/getty
Gary Neville hafnaði risasamningi við Sky Sports til að taka við spænska úrvalsdeildarliðinu Valencia.Í gær var tilkynnt að Neville muni stýra Valencia út tímabilið en stjóri liðsins, Nuno, sagði starfi sínu lausu eftir 1-0 tap fyrir Valencia á sunnudaginn. Þetta er fyrsta stjórastarf Neville sem hefur undanfarin ár getið sér gott orð sem álitsgjafi á Sky Sports. Neville stendur að margra mati fremstur í flokki álitsgjafa og leikgreinanda en þáttur hans, Jamie Carragher og Ed Chamberlain, Monday Night Football, hefur notið mikilla vinsælda. Forráðamenn Sky Sports vildu eðlilega halda Neville og buðu honum gull og græna skóga; fimm ára samning að verðmæti rúmlega 15 milljóna punda. Neville ákvað hins vegar að stökkva út í djúpu laugina og taka við Valencia sem er í 9. sæti spænsku deildarinnar. Sky Sports bíður erfitt verkefni að finna arftaka Neville en nokkrir gestaálitsgjafar munu skiptast á að vera í Monday Night Football það sem eftir er tímabils. Í dag birti The Telegraph áhugaverðan lista yfir mögulega arftaka Neville í Monday Night Football. Þeir sem voru nefndir til sögunnar eru Jamie Redknapp, Paul Merson, Graeme Souness, Thierry Henry, Frank Lampard, Tim Sherwood og gamla brýnið Andy Gray sem var aðalálitsgjafi Sky Sports um margra ára skeið áður en honum var sagt upp störfum í janúar 2011. Umfjöllun Telegraph má lesa með því að smella hér.Frank Lampard þykir álitlegur kostur í Monday Night Football.vísir/getty
Enski boltinn Mest lesið Þórir ráðinn til HSÍ Handbolti „Gætum ekki verið spenntari að koma aftur til Íslands“ Fótbolti Tímabilinu líklega lokið hjá Orra Fótbolti Segir sína menn þurfa að vera í „meistara ásigkomulagi“ Körfubolti Leggur til bíl ef félagið ákveður að ræna Antony Fótbolti „Þetta var ákvörðun sem ég þurfti að taka“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 95-92 | Rosalegasta endurkoma síðari ára Körfubolti „Kóngurinn á Íslandi, DeAndre Kane, bjargaði okkur“ Körfubolti „Þeir vilja náttúrulega fleiri leiki líka“ Körfubolti Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ Handbolti Fleiri fréttir Leeds vann B-deildina en Plymouth og Luton féllu Mikilvægur sigur Villa í Meistaradeildarbaráttunni De Bruyne sá til þess að meistararnir sluppu fyrir horn gegn Úlfunum Eigandi Chelsea þekkti ekki Ruud Gullit Fagnaðarlæti Púlara mældust á jarðskjálftamælum Beckham fimmtugur í dag Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Trans konum bannað að spila í kvennaflokki á Bretlandi Með Man. Utd til Spánar en mega samt ekki spila Chelsea meistari sjötta árið í röð Rodri aftur til æfinga en sagður bíða eftir HM Sádar eltast við þrjá framherja Liverpool ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Sjá meira