Lífið

Fréttakviss vikunnar #41: Þekkingartékk á Hrekkjavökuhelgi
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi sem kemur út á laugardögum á Vísi.

Óbærilegt að vera manneskja á tímum samfélagsmiðla
„Okkur langaði núna fyrst og fremst að gera skemmtilegt leikhús,“segir Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko. Leikhópurinn Konserta sýnir nú á Loftinu í Þjóðleikhúsinu fyrsta leikverk sitt, Sýningin okkar.

Birkir Blær kominn í níu manna úrslit
Hinn 21 árs gamli akureyringur, Birkir Blær Óðinsson, komst í kvöld áfram í níu manna úrslit í sænska Idolinu.

Stórskemmtilegar auglýsingar frá Stóra Sviðinu
Þátttakendur í skemmtiþættinum Stóra sviðið á Stöð 2 fengu það verkefni að framleiða auglýsingu fyrir einhvers konar þjónustu. Eðli málsins samkvæmt voru auglýsingarnar sprenghlægilegar.

Krabbamein og allt sem því fylgir algjör hlandfata
Fimmtudagskvöldið, 4 nóvember, heldur Kraftur Kraftmikla strákastund á Kexinu. Markmiðið með stundinni er að karlmenn sem hafa verið snertir af krabbameini hvort sem þeir hafa greinst með krabbamein eða eru makar, synir, feður, afar, vinir eða jafnvel samstarfsaðilar hittist, deili reynslu sinni og heyri í öðrum jafningjum.

Taktu þátt: Hvort syngur Sverrir Bergmann eða Valdimar betur í karókí?
Útvarpsþátturinn FM95BLÖ fór af stað með karókíkeppni í síðustu viku og er nú komið að þriðju umferð. Þessa vikuna góla engir aðrir en Sverrir Bergmann og Valdimar Guðmundsson í hljóðnemann. Hlustendur þáttarins meta hvor stóð sig betur.

Poppgyðjan Þórunn Antonía gerði allt vitlaust í Grósku
Icelandic Startups í samstarfi við Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd Háskóla Íslands héldu stærstu vísindaferð frá upphafi í Grósku á dögunum og mættu þar yfir 500 háskólanemar til að kynna sér Gulleggið – stærstu frumkvöðlakeppni landsins.

Todmobile aftur á svið eftir fimmtán ára hlé
Upprunaleg útgáfa hljómsveitarinnar Todmobile sem stofnuð var árið 1988 ætlar að koma tónleikagestum í Hörpu í nostalgíukast á laugardag.

Rifjuðu upp gamalt mál og þá sauð upp úr
Akureyrarferð Æði-drengjanna hélt áfram í síðasta þætti sem fór í loftið á Stöð 2 í gærkvöldi.

Sandra í skýjunum með aukinn hárvöxt Eyfa: „Þú hefur yngst um tuttugu ár“
Söngvarinn ástsæli Eyjólfur Kristjánsson og eiginkona hans Sandra Lárusdóttir vinna nú saman á húð og líkamsmeðferðarstofunni þeirra.

Eurovision-myndin um Hatara aftur í bíósal
A Song Called Hate eða Lagið um hatrið, heimildarmyndin sem fylgir meðlimum Hatara á Eurovision-ferð til Ísrael og Palestínu, verður sýnd á hátíðlegri styrktarsýningu í Bíó Paradís um helgina.

Verður fyrstur Vinanna til að skrifa sjálfsævisögu
Kanadísk-bandaríski leikarinn Matthew Perry hefur ákveðið að setjast við skriftir og rita ævisögu sína og veita þannig lesendum innsýn í tökurnar á Vinum, sjónvarpsþáttunum vinsælu sem framleiddir voru á árunum 1994 til 2004 og skutu Perry upp á stjörnuhimininn.

List án landamæra opnuð í Ráðhúsinu
List án landamæra var opnuð við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur. Athöfnin var bæði fjölmenn sem góðmenn og var eftirvæntingin áþreifanleg eftir að fá loksins að upplifa og njóta bæði listarinnar og samverunnar, samkvæmt tilkynningu sem send var á fjölmiðla.

Hágrét í frjálsu falli: „Gjörsamlega búinn á því á líkama og sál“
Auðunn Blöndal ferðaðist um Asíu þvera og endilanga í þáttunum Asíski draumurinn sem sýndir voru á Stöð 2 og segist hafa verið niðurbrotinn andlega og líkamlega á lokametrunum.

Ronaldo á von á tvíburum í annað sinn
Knattspyrnukappinn Cristiano Ronaldo á von á tvíburum með kærustu sinni spænsku fyrirsætunni Georginu Rodríguez. Ronaldo tilkynnti um barnalánið á Instagram-síðu sinni í dag þar sem skötuhjúin liggja undir sæng og sína sónarmynd.

Gæsahúðarútgáfa af Nangíjala úr Rómeó og Júlíu
Sýningin Rómeó og Júlía, sem hefur verið á fjölunum í Þjóðleikhúsinu í haust, hefur vakið mikla athygli og heillað leikhúsgesti unga sem aldna. Sviðsetningin er sannkölluð sjónræn veisla eins og fjallað hefur verið um hér á Vísi.

Hanna Rún og Nikita í sjöunda sæti á heimsmeistaramótinu
Dansararnir Hanna Rún Bazev Óladóttir og Nikita Bazev tóku þátt í heimsmeistaramótinu í dansi um helgina. Parið keppti í flokki atvinnumanna í latin-dönsum og enduðu þau í sjöunda sæti.

Tólf manna óhefðbundin fjölskylda við Esjuna
Þættirnir Afbrigði í umsjón Ingileifar Friðriksdóttur hófu göngu sína á Stöð 2 á dögunum en þar er fjallað um fólk sem lifir óhefðbundnum lífsstíl og er óhætt að segja að um afar sérstaka og öðruvísi þætti sé að ræða.

„Maður er alveg tómur, eins og það sé búið að taka loft úr blöðru“
Valgerður Helga Björnsdóttir varð fyrir grófu einelti í grunnskóla sem hafði djúpstæð áhrif á hennar líf. Hún hefur glímt við þunglyndi frá tólf ára aldri, mjög alvarlegu og vanlíðan hefur verið það mikil að hún hefur tvívegis reynt að taka eigið líf.

Heimsþekktur Boogie Woogie-píanisti á Dillon í kvöld
Ben Waters er Boogie Woogie-tónlistarmaður sem bæði hamrar á píanó og syngur. Hann mun troða upp á

TikTok-stjarnan Huey Haha er látin
Bandaríska TikTok-stjarnan og grínistinn Huey Haha er látinn, 22 ára að aldri.

Dópsali í sautján ára fangelsi vegna dauða Mac Miller
Þrír menn voru ákærðir í tengslum við dauða rapparans Mac Miller. Einn hefur nú játað sekt sína að hluta og fallist á sautján ára fangelsisvist með dómsátt. Mac Miller lést árið 2018 eftir að hafa tekið of stóran skammt af fíkniefnum.

Ný íslensk hryllingsmynd tilnefnd til verðlauna
Íslenska hryllingsmyndin It Hatched í leikstjórn Elvars Gunnarssonar er tilnefnd til tveggja verðlauna á Austin kvikmyndahátíðinni sem nú fram fer í Texas en kvikmyndin var heimsfrumsýnd þar á dögunum.

Draumur vina um að eignast saman barn orðinn að veruleika
Vinirnir Þórdís Imsland og Sigurjón Örn Böðvarsson tóku þá ákvörðun árið 2019 að eignast saman barn. Nú hefur draumur þeirra ræst.

Rokkhljómsveitin SOMA með langþráða endurkomu
Hljómsveitin SOMA hefur snúið aftur eftir að hún hætti skyndilega árið 1998 og hefur legið í dvala síðan þá. Hljómsveitin fagnar endurkomunni með tónleikum á Ölver næstkomandi föstudag þar sem öll gamla platan verður spiluð ásamt nýju efni.

Ætti að vera bannað að skilja á meðan börnin eru lítil
Þau Hjálmar Örn og Ljósa hittust fyrst á tvöföldu stefnumóti sem skólasystir Ljósu plataði hana á. Eftir stefnumótið sagðist Hjálmar gjarnan vilja hitta Ljósu aftur en tilkynnti henni þó að hann ætti stefnumót við aðra dömu daginn eftir. Ljósa var því óviss hvort hún myndi nokkurn tíman heyra frá Hjálmari aftur. Hann var hins vegar fljótur að átta sig á því að hann vildi kynnast Ljósu betur.

Varð að læra nýjasta lag Hipsumhaps aftur á bak fyrir myndbandið
Sveitin Hipsumhaps frumsýnir í dag nýtt myndband við lagið Martröð sem er einmitt gefið út í dag.

„Lifði erfiðara lífi heldur en nokkur maður getur ímyndað sér“
Sigmundur Ernir Rúnarsson er Akureyringur, sex barna faðir, blaðamaður, ljóðskáld, fyrrum alþingismaður og margt fleira. Í dag er hann ritstjóri Fréttablaðsins.

Íbúð Bigga löggu breytt í draumaheimilið: „Ég er agndofa“
„Það er ekki oft sem ég fæ útkall frá lögreglunni,“ segir Soffía Dögg Garðarsdóttir þáttastjórnandi Skreytum hús. Í fyrsta þættinum í nýrri þáttaröð gerir hún íbúð að draumaheimili.

Segir að eigin íbúðir séu neysla en ekki fjárfesting
Heiðar Guðjónsson forstjóri SÝN var gestur í fjármálahorninu í hlaðvarpinu Blökastið í síðustu viku.