Fjöldi öryrkja kominn á atvinnumarkað 12. febrúar 2007 19:37
Fjöldi öryrkja á Norðurlandi er kominn á atvinnumarkað eftir þátttöku í tilraunaverkefni. Fyrrum óvinnufær einstaklingur þakkaði þetta nýrri nálgun sem vakið hefur athygli fyrir utan landsteinana. Um helgina var starfsendurhæfing Norðurlands tekin formlega í notkun. Hlutverk hennar er að veita einstaklingum endurhæfingu og koma þeim út á atvinnumarkað eða í skóla. Byggt er á þeirri hugmyndafræði að einstaklingurinn komi strax með virkum hætti að sinni endurhæfingu, taki ábyrgð á ástandi sínu. Einblínt er á heilbrigði viðkomandi en ekki sjúkdóma og alúð og virðing eru leiðarstefin í samskiptunum. Byggt er á verðlaunuðu tilraunaverkefni á Húsavík sem borið hefur þann ávöxt að 60% þeirra sem sótt hafa námskeið eru komin úr bótakerfinu í nám eða út á atvinnumarkað. Þess utan segir framkvæmdastjóri starfsendurhæfingar Norðurlands að ríkið geti sparað milljarða í tryggingakerfinu með því að fækka öryrkjum og koma þeim aftur til virkni í samfélaginu. Önnur Evrópulönd eru farin að vinna eftir húsvíska kerfinu og innanlands er hin nýja hugmyndafræði að breiðast út. Þá hefur ESB styrkt verkefnið rausnarlega.
Fréttir Innlent Mest lesið Sigurjón lenti fyrir bíl: „Þetta er alveg lygilegt“ Innlent Þessi troða upp á innsetningarathöfn Trump Erlent Óvenjuleg skjálftahrina í Bárðarbungu Innlent Hyggjast leggja 100 prósent skatt á eignakaup útlendinga Erlent Krafa um að tré verði felld í Öskjuhlíð eigi ekki að koma á óvart Innlent Ragnheiður Torfadóttir er látin Innlent Kassi með utankjörfundaratkvæðum barst ellefu dögum of seint Innlent Fjórir handteknir í tengslum við þjófnað af ferðamönnum Innlent Bloomberg segir viðræður hafa átt sér stað um sölu TikTok til Musk Erlent Biden segir vopnahlésviðræður á lokametrunum Erlent Fleiri fréttir Ekki sést síðan í aðdraganda gossins í Holuhrauni 2014 Ár liðið frá því hraun rann inn í Grindavík Segir nýjan orkuráðherra ætla að hægja á ferðinni Krafa um að tré verði felld í Öskjuhlíð eigi ekki að koma á óvart Ragnheiður Torfadóttir er látin Óvenjuleg skjálftahrina í Bárðarbungu Kassi með utankjörfundaratkvæðum barst ellefu dögum of seint Fjórir handteknir í tengslum við þjófnað af ferðamönnum Fjölgun ferðamanna hefur áhrif á útköll Landhelgisgæslunnar Sigurjón lenti fyrir bíl: „Þetta er alveg lygilegt“ Viðvarandi verkefni að finna jafnvægi milli íhalds og frjálslyndis Hafa hirt tugi hræja í höfuðborginni og fleiri kettir sendir í sýnatöku Alþingi kemur að öllum líkindum saman eftir hálfan mánuð Sakborningur í Sólheimajökulsmáli ákærður fyrir tilraun til manndráps Týnd atkvæði séu ekki einsdæmi Hræin sem hrannast upp, eldar magnast og bassaleit Heimilisköttum haldið inni og hundaeigendur á varðbergi Með eitt og hálft kíló falið innvortis Landsfundi ekki frestað Hlaup hafið úr Grímsvötnum Stærsta kristal-amfetamínmál sögunnar komið til saksóknara Jón Magnús og Guðríður Lára til aðstoðar Ölmu Þáttur hinna mannanna rannsakaður í þaula Deilan í algjörum hnút Rúntað um borgina í leit að holum Telur ljóst að fundinum skuli ekki frestað „Ég man ekki eftir álíka faraldri“ Fjöldi tilkynninga vegna fuglaflensu Skúr varð eldi að bráð Grét og sagði líf sitt búið eftir að hafa stungið þrjá Sjá meira