Guardiola jafnaði met Johan Cruyff hjá Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2011 22:00 Pep Guardiola, þjálfari Barcelona fagnar þeim Cesc Fabregas og Javier Mascherano í gær. Mynd/Nordic Photos/Getty
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, vann í gær sinn ellefta titil sem þjálfari félagsins og jafnaði þar með metið sem Hollendingurinn Johan Cruyff átti einn áður. Barcelona tryggði sér þá sigur í spænska Ofurbikarnum með 3-2 sigri á erkifjendunum í Real Madrid í seinni leik liðanna en þeim fyrri lauk með 2-2 jafntefli í Madrid. Johan Cruyff vann ellefu titla með Barcelona á árunum 1988-1996 en leikmaðurinn Josep Guardiola fékk einmitt tækifærið hjá Cruyff á sínum tíma og vann tíu af þessum ellefu titlum sem Barcelona vann í tíð Cruyff. Guardiola er aðeins á sínu fjórða tímabili með Barcelona sem gerir afrek hans enn glæsilegra. Barcelona hefur unnið spænska meistaratitilinn öll árin, Meistaradeildarinnar tvisvar á þremur árum og vann nú Ofurbikarinn þriðja árið í röð. Guardiola gæti bætt við tveimur fleiri titlum áður en árið 2011 er liðið því framundan er leikur um Ofurbikar UEFA við Porto (Mónakó 26. ágúst) og þátttaka í Heimsmeistarakeppni félagsliða í Japan í desember.Titlar Barcelona undir stjórn Pep Guardiola: Spænska deildin 3 (2009, 2010, 2011) Spænski bikarinn 1 ( 2009) Spænski ofurbikarinn 3 (2009, 2010, 2011) Meistaradeild Evrópu 2 (2009, 2011) Ofurbikar UEFA 1 (2009) Heimsmeistarakeppni félagsliða 1 (2009)Titlar Barcelona undir stjórn Johan Cruyff: Spænska deildin 4 (1991, 1992, 1993, 1994) Spænski bikarinn 1 (1990) Spænski ofurbikarinn 3 (1991, 1992, 1994) Evrópukeppni Meistaraliða 1 (1992) Evrópukeppni félagsliða 1 (1989) Ofurbikar UEFA 1 (1992)
Spænski boltinn Mest lesið „Tappinn var settur aftur á kampavínsflöskuna“ Sport Tvö ólík framboð bárust áður en fresturinn rann út Sport Rosalegt reiðikast Rüdiger sem reyndi að kasta hlut í dómarann Fótbolti Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Enski boltinn Börsungar bikarmeistarar eftir framlengingu Fótbolti Brynjar studdur af KSÍ en Willum af Sundsambandinu Sport Dagskráin í dag: Stútfullur sófasunnudagur til sigurs Sport Spila allar í takkaskóm fyrir konur Fótbolti Warholm setti fyrsta heimsmetið Sport Missti móður sína nokkrum klukkutímum eftir að hann var valinn í NFL Sport Fleiri fréttir Bellingham fékk líka rautt en Rüdiger gæti fengið tólf leikja bann „Hún er klárlega skemmtikraftur“ Leikbann á versta tíma en Kane lofar því að fagna meira en allir í liðinu Spila allar í takkaskóm fyrir konur Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Rosalegt reiðikast Rüdiger sem reyndi að kasta hlut í dómarann Börsungar bikarmeistarar eftir framlengingu Varamennirnir sáu um ótrúlega endurkomu Ísaks og félaga Hollywood-liðið komið upp í B-deild Ismaila Sarr allt í öllu er Palace komst í úrslit Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Bayern kláraði sitt en Leverkusen seinkaði sigurhátíðinni María hetja dagsins en mark Ingibjargar dugði skammt Ræða það að hætta með framlengingar í Meistaradeildinni Súrt hjá bæði Sædísi og Vigdísi Lilju í toppslag Chelsea upp í fjórða sætið Harry Kane getur unnið langþráðan titil í dag Duke framherjinn kominn heim til Íslands og framlengdi við FH Real Madrid skrópaði á blaðamannafund en ætlar ekki að skrópa í leikinn Skoraði og ældi í leik á afmælisdaginn sinn Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Stálum öllu steini léttara frá helstu stöðunum í London“ Fótboltamaður lést í upphitun „Vilja allir spila fyrir Man United“ Grættu dómarann og hættu við blaðamannafund Fyrsta deildartap PSG Ráðgátan leyst: Ólafur Kristjánsson hafði rétt fyrir sér Rúnar staðfestir að Fram þurfti annan markvörð Tók Karólínu Leu stundarfjórðung að komast á blað Sjá meira