
Skipuðu Landsbankanum ekki að selja Borgun

Sala Landsbankans sé alfarið á forræði og á ábyrgð fyrirtækisins.
Arion banki, Íslandsbanki, Landsbankinn, Borgun og Valitor gerðu í lok árs 2014 sáttir við Samkeppniseftirlitið, vegna rannsóknar á samkeppnishömlum á greiðslukortamarkaði. Með sáttunum var viðurkennt að tiltekin framkvæmd á greiðslukortamarkaði hefði ekki verið í samræmi við samkeppnislög og auk þess að greiða sektir féllust fyrirtækin á að gera breytingar á starfseminni.
Meðal þeirra breytinga var að gera til frambúðar breytingar á eignarhaldi á kortafyrirtækjum. Bönkunum er nú óheimilt að eiga í greiðslukortafyrirtæki með öðrum íslenskum viðskiptabanka. Borgun og Valitor höfðu verið í sameiginlegri eigu keppinauta um langt skeið.
Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að það hafi ekki verið skilyrði eftirlitsins að Landsbankinn fremur en Íslandsbanki seldi sig út úr félaginu. Í sátt Samkeppniseftirlitsins og Íslandsbanka stóð:
„Íslandsbanka er heimilt að leita samninga við Landsbankann um að annar bankinn kaupi út hlut hins eða um sölu á hlut beggja eða annars hvors til þriðja aðila.“
Landsbankinn hafði hins vegar selt hlut sinn í Borgun og Valitor áður en sátt þeirra við eftirlitið lauk.
„Ekki kom því til þess að Samkeppniseftirlitið setti bankanum tímamörk eða önnur bindandi skilyrði varðandi fyrirkomulag á sölu eignarhluta. Sala Landsbankans á hlutum sínum í Borgun og Valitor og tilhögun hennar var því alfarið á forræði og á ábyrgð Landsbankans,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.
Sjá einnig: Landsbankinn tryggði sig fyrir Visa samningi við sölu á Valitor en ekki Borgun
Í Fréttablaðinu í dag sagði Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, að Landsbankinn hafi haft takmarkað aðgengi að upplýsingum um Borgun vegna sáttar við Samkeppniseftirlitið.
Samkeppniseftirlið getur ekki fallist á að ráðstafanir þeirra hafi haft áhrif á skilmála eða viðskiptakjör sölunnar.
Frekari upplýsingar má sjá á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins.
Tengdar fréttir

Landsbankinn hafnar ummælum Árna Páls
Landsbankinn hafnar algjörlega ummælum sem Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, lét falla um bankann í gær.

Ekki hægt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu í hvert sinn sem ríkiseign er seld
Formaður Samfylkingarinnar ræddi sölu ríkiseigna og sölu Landsbankans á Borgun við fjármála- og efnahagsráðherra á þingi í morgun.

Vill að FME rannsaki sölu Landsbankans á Borgun
Árni Páll Árnasson, formaður Samfylkingarinnar, vill að þingið láti til sín taka í málinu og knýi á um svör.

Töldu söluverðið gott
Landsbankinn segir að þegar verið var að semja um söluna á Borgun hafi kaupverðið verið ákveðið í ljósi upplýsinga sem þá lágu fyrir um rekstur Borgunar.

Kaupmáttur og stórir árgangar hafa áhrif
Spáð er áframhaldandi hækkun íbúðaverðs næstu þrjú ár. Áætlanir eru um aukið framboð nýrra íbúða og fjölbýlishúsa í Reykjavík.

Bankasýslan leitar að ráðgjöfum fyrir sölu á Landsbankanum
Leitað er að ráðgjöfum til að aðstoða við sölu á 28 prósenta hlut ríkisins í bankanum.

Landsbankinn tryggði sig fyrir Visa samningi við sölu á Valitor en ekki Borgun
Landsbankinn seldi Arion banka hlut í Valitor með ákvæði um að bankinn fengi greitt ef Visa Inc. seldi Visa Europe. Sambærilegt ákvæði var ekki gert við söluna á Borgun.