Hann Jakob Gumi Vignisson er fimm ára en hafnar því algerlega að hann sé í leikskóla eins og fram kemur í fyrstu tveimur svörunum hans við spurningum blaðamanns.
Jakob Gumi, hvað heitir leikskólinn þinn? Þetta er ekki leikskóli. Þetta er skóli - Austurkór.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í leikskólanum?
Í skólanum? - að fara í bíló og playmo og það er svona Batman-hús i skólanum mínum. Svo fer ég út að leika mér með Veigari vini mínum og Þorvari.
Hvað gerðir þú í sumarfrínu þínu?
Ég fór til útlanda og var í Noregi.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Mér finnst skemmtilegast að tefla og að fara í útilegu. Mamma sagði að við ætluðum ekki að fara aftur í útilegu.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Það er api og svo risaeðlur. Það eru flugrisaeðlur og alveg fullt af risaeðlum. Svo drekar líka.
Ertu að æfa einhverja íþrótt?
Ég er í Latabæjarskóla. Þar er ég að æfa mig og gera ofurhetjuhopp á dýnu. Ég var Spiderman í gær í Latabæjarskólanum.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. ágúst 2016
Æfir ofurhetjuhopp á dýnu
Jón Hákon Halldórsson skrifar
