„Þetta er eina hótelið á Íslandi með eigin útisundlaug og hér eru mikil salarkynni, húsið er 5.200 fermetrar að stærð en herbergin 85. Frá því fyrsta skóflustunga var tekin og þar til starfsemi var hafin í húsinu liðu bara níu mánuðir. Hér var sannarlega byggt af stórhug en kannski meira af kappi en forsjá.“
Raunverulega átti byggingin að vera 1500 fermetrar í byrjun en svo var endalaust byggt ofan á, að sögn Jakobs „Það var ekkert vesen í þá daga, bara hringt á bæjarskrifstofuna og spurt hvort það væri ekki í lagi að bæta við hæð! Þetta væri ekki hægt í dag. Bara það að fá leyfi fyrir sundlaug er stórmál.“
Það var Helgi Þór Jónsson byggingarverktaki sem reisti hótel Örk og rak hana í byrjun. Jakob segir hann fyrst bara hafa ætlað að byggja veitingastað.
„Svo datt honum í hug að það væri kannski snjallt að vera með svona 15 herbergi líka en það endaði svona. Pælingin var að þetta yrði heilsuhótel því Þjóðverjar fóru mikið í heilsuferðalög á þessum tíma. Hér störfuðu sjúkraþjálfarar og læknar í byrjun þannig að ekki skorti metnaðinn. Hinsvegar var allt byggt á víxlum og reksturinn var þungur framan af.“

„Þeir sem vilja getað komið með golfkylfur því það er golfvöllur hér við hliðina á hótelinu,“ bendir Jakob á. Örkin er eitt af fáum hótelum á landinu sem státar af því.“
Kvót: „Það var ekkert vesen í þá daga, bara hringt á bæjarskrifstofuna og spurt hvort það væri ekki í lagi að bæta við hæð!“
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. september 2016.