Sala Landsbankans á hlut sínum í Borgun fékk þann vafasama heiður að vera verstu viðskipti ársins 2016 að mati dómnefndar Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Viðskiptin sjálf áttu sér stað 2014 en eftirmál þeirra litu dagsins ljós á þessu ári sem endaði með skýrslu frá Ríkisendurskoðun og skömmu síðar lét Steinþór Pálsson af störfum sem bankastjóri Landsbankans.
Gagnrýni á söluna komst í hámæli þegar í ljós kom að kaupendur að hlut Landsbankans fengu í sinn hlut mikinn söluhagnað vegna eignarhlutar Borgunar í Visa Europe þegar það var selt til Visa Inc. Landsbankinn hafði ekki tryggt sér valrétt að eignarhlutnum eins og gert hafði verið við sölu á Valitor.
Fram kom í ummælum dómnefndarfólks Markaðarins að salan hefði verið ógagnsæ. Setja hefði átt Borgun í opið söluferli og að ekki hafi verið vandað nægjanlega til verka.
Önnur viðskipti sem tilnefnd voru sem verstu viðskipti ársins voru Brúnegg þar sem í ljós kom að aðbúnaður hænsnfugla var langt frá því að vera fullnægjandi miðað við markaðssetningu vörunnar sem vistvænnar.
Þá var einnig nefnd sala Lindarhvols sem fer með eignir ríkisins í Klakka. Þar nefndu dómnefndarmenn ógagnsæi og ófagleg vinnubrögð við söluna sem drægju úr trúverðugleika viðskiptalífsins.
