Skelfilegir atburðir áttu sér stað í Manchester í gærkvöldi og Roger Moore er látinn. Stefán og Tryggvi fóru síðan vel yfir Eurovision-ferð Stefáns en hann skellti sér til Kænugarðs og fjallaði um keppnina fyrir hönd 365 ásamt Benedikti Bóas.
Poppkastið er hlaðvarpsþáttur á Vísi. Umsjónarmenn þáttarins eru Stefán Árni Pálsson (@stebboinn) og Hulda Hólmkelsdóttir (@huldaholm). Í þættinum er farið yfir víðan völl í dægurmálafréttum, farið yfir fréttir vikunnar auk þess sem Stefán og Hulda fá til sín góða gesti til að ræða dægurmálin. Hér að ofan má hlusta á 23. þáttinn af Poppkastinu sem kemur út alla föstudaga á Vísi. Poppkastið er aðgengilegt í hinum ýmsu hlaðvarpsþjónustum, t.a.m. iTunes. Að þessu sinni var Tryggvi Páll Tryggvason gestastjórnandi. (@tryggvipall)