Þrettán sveitarfélög hafa látið Íbúðalánasjóð vita að þau hafi ekki áhuga á að kaupa eignir af sjóðnum. Eins og Fréttablaðið greindi frá bauð Íbúðalánasjóður í byrjun júnímánaðar 27 sveitarfélögum til viðræðna um kaup á fasteignum í eigu sjóðsins.
Sjóðurinn á 509 eignir í sveitarfélögunum og eiga þau kost á að kaupa eignirnar áður en þær verða boðnar til sölu á almennum markaði, með það í huga að þær verði til dæmis nýttar sem félagslegt húsnæði.
Þetta er í annað sinn sem Íbúðalánasjóður býður sveitarfélögum til viðræðna um kaup á eignum, en í sambærilegu átaki fyrir um ári seldi sjóðurinn um sextíu eignir til sveitarfélaga.
Í þeim þrettán sveitarfélögum sem hafa ekki áhuga á að kaupa eignir sjóðsins eru 204 eignir. Flestar þeirra eru í Reykjanesbæ, Sandgerði og Fjarðabyggð.
Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segir að um hafi verið að ræða á annan tug eigna í Reykjanesbæ. „Þessar eignir pössuðu ekki inn í og eru ekki eignir eins og við erum að leita að í félagslega húsnæðið okkar. Það er eina ástæðan, þetta passaði ekki inn í það sem við höfum þörf á,“ segir Friðjón.
Nú þegar hafa þrjú sveitarfélög samþykkt að kaupa átta eignir. Snæfellsbær er að ganga frá kaupum á fjórum eignum, Kópavogur hefur tekið ákvörðun um að kaupa þrjár og Hafnarfjörður hefur tekið ákvörðun um að kaupa eina eign.
Verðhugmyndir hafa verið sendar á átta sveitarfélög sem eru að skoða kaup á 31 eign. Sveitarfélögin sem eru að skoða kaup eru Reykjavík, Mosfellsbær, Garður, Borgarbyggð, Grundarfjarðarbær, Akureyri, Hveragerði og Sveitarfélagið Ölfus.
Þrjú sveitarfélög til viðbótar eru í samskiptum við Íbúðalánasjóð en eru komin styttra á leið og hafa ekki enn óskað eftir verði á eignum. Í einhverjum tilfellum getur verið að það eigi eftir að taka þetta formlega fyrir hjá sveitarfélögunum.
Í heildina á Íbúðalánasjóður nú 535 íbúðir og stefnt er að því að klára sölu þeirra á næstu mánuðum, að stórum hluta fyrir árslok. Afar fáar íbúðir eru á sama tíma að enda í eigu Íbúðalánasjóðs vegna sögulega lítilla vanskila við sjóðinn.
Helmingur sveitarfélaganna ætlar ekki að kaupa af Íbúðalánasjóði
Sæunn Gísladóttir skrifar

Mest lesið

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Heimsskortur á pistasíum vegna Dúbaí-súkkulaðis
Viðskipti erlent

Hvar er opið um páskana?
Neytendur






Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út
Viðskipti innlent

Spotify liggur niðri
Neytendur