Indíana Hreinsdóttir, ritstjóri Akureyri Vikublaðs, greindi frá því á Facebook-síðu sinni að útgáfa blaðsins hefði verið sett í stöðvun.
Ómar R. Valdimarsson, nýr stjórnarmaður félagsins, staðfesti við fréttastofu að Indíana væri önnur tveggja launamanna sem hefðu misst starfið. Hann segir að fyrirtækið sé með fjölda verktaka í starfi sem eðli málsins samkvæmt væru ekki starfsmenn félagsins.
„Við erum enn í þeim fasa að ná utan um rekstur blaðanna,“ segir Ómar og bætir við að fjárhagsstaða félagsins sé ekki góð. „Við vissum að [staðan] væri slæm og höfum ekki enn komist yfir öll fjárhagsgögn þannig við getum ekki nákvæmlega sagt til um hver staðan er en hún er ekki þannig að ég geri ráð fyrir að fyrirtækið verði rekið áfram,“ bætir hann við.
Allar eignir félagsins komnar á sölu
Hann segir öll blöðin vera komin á sölu en Pressan gefur út landshlutablöðin Akureyri Vikublað, Austurland, Reykjanes, Suðra, Vesturland, Vestfirði, Ölduna, Sleggjuna, Birtu, Hafnarfjörð, Kópavog og Reykjavík Vikublað.„Allar eignir félagsins eru til sölu fyrir skynsamlegt verð en það er spurning hvort stjórnin taki það að sér að selja þetta eða láta það eiga sig,“ segir Ómar og bendir á að seinni kosturinn feli það í sér gefa félagið upp til gjaldþrotaskipta. „Þá er það bara skiptastjóra að greiða úr því“.

Sjá einnig: Grunur um misferli með fjármuni Pressunnar og mismunun kröfuhafa
Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi útgefandi Pressunnar, svaraði nýrri stjórn í kjölfar ásakana um misferli með fjármuni Pressunnar og sakaði Dalsmenn, nýja eigendur félagsins, um svik og að reyna að koma félaginu í þrot.
Sjá einnig: Björn Ingi sakar Dalsmenn um svik og að reyna að koma Pressunni í þrot
Eftir eigendaskiptin er eignarhald Pressunnar í höndum sjö félaga. Eignarhaldsfélagið Dalurinn ehf. er þar með stærstan hlut í félaginu, rúmlega 68 prósent. Dalsmenn eru þeir Árni Harðarson, Vilhelm Róbert Wessmann, Jóhann G. Jóhannsson, Halldór Kristmannsson og Hilmar Þór Kristinsson. Björn Ingi Hrafnsson á 18 prósent hlut í félaginu í gegnum félög sín Kringluturninn og Kringlueignir.