Stéttarfélag VR, ásamt Jóni Þór Ólafssyni, alþingismanni Pírata, hefur ákveðið að stefna íslenska ríkinu vegna ákvörðunar kjararáðs um hækkun á launum alþingismanna og ráðherra á síðasta ári. Þetta kemur fram á vefsíðu VR.
VR telur að nóg sé komið af aðgerðarleysi stjórnvalda, eins og það er orðað, og hefur því ákveðið að láta reyna á málið fyrir dómstólum. Launahækkun þingmanna og ráðherra nemur um 36 til 44 prósent. Stéttarfélagið telur að hækkunin sé ekki í takti við almennar hækkanir á vinnumarkaði og er þess krafist að ákvörðunin verði ógild með dómi.
Í tilkynningunni segir: „Þegar fréttir bárust af ákvörðun kjararáðs var hún strax fordæmd um allt þjóðfélagið, jafnvel þannig að sjálfur forseti Íslands neitaði að taka við hækkuninni. Þjóðin vænti þess að stjórnvöld myndu strax láta afturkalla ákvörðunina með öllum tiltækum ráðum og lagasetningu ef á þyrfti að halda.“
„VR telur að kjararáð hafi ekki farið að lögum við ákvörðun sína enda standi það skýrum stöfum í 2. mgr. 8. gr. laga nr. 47/2006 um kjararáð að ráðið skuli við ákvarðanatöku „ætíð taka tillit til almennrar þróunar kjaramála á vinnumarkaði.“ Í ákvörðun kjararáðs er hvergi minnst á hver þróun kjaramála á vinnumarkaði hafi verið þrátt fyrir skýr lagafyrirmæli um það. Rökstuðningur kjararáðs getur því ekki talist annað en geðþóttaákvörðun um laun æðstu handhafa löggjafar- og framkvæmdavalds á Íslandi.“
Vísir greindi frá því í október á þessu ári að Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, vildi kæra kjararáð fyrir hækkun á launum þingmanna og ráðherra. „Það er góð regla að ráðamenn fái aðeins kjarabætur ef landsmenn hafa fengið þær fyrst.“
Tilkynninguna má lesa í heild á síðu VR.
VR og Jón Þór Ólafsson stefna kjararáði

Tengdar fréttir

Forsetinn um launahækkun kjararáðs: „Ég bað ekki um þessa kauphækkun“
Guðni sagði að þangað til annað kæmi í ljós myndi hann láta þessa hækkun renna til góðra málefna.

Jón Þór Ólafsson vill kæra kjararáð
Hækkaði laun ráðamanna tvöfalt meira en 70 prósent launafólks hafa mátt sætta sig við.


Katrín um ákvörðun kjararáðs: „Þetta eru mjög miklar hækkanir“
„Það er auðvitað mikilvægt að þeir sem heyri undir kjararáð séu ekki launaleiðandi. Þetta eru mjög miklar hækkanir og það væri eðlilegt að þetta fylgdi almennri launaþróun í landinu.“