Hagnaður verkfræðistofunnar Mannvits dróst saman um 307 milljónir króna og var 32 milljónir króna í fyrra. Tekjurnar jukust um 19 milljónir króna og námu 5,7 milljörðum króna. Eigið fé félagsins nam 1,2 milljörðum króna við árslok og eiginfjárhlutfallið var 43 prósent. Arðsemi eiginfjár var þrjú prósent.
„Grunnrekstur Mannvits gekk vel í fyrra,“ segir Örn Guðmundsson, fjármálastjóri Mannvits, við Markaðinn. „Rekstrarkostnaður hækkaði umtalsvert frá árinu á undan, að mestum hluta vegna launahækkana og endurmats á eignum og kröfum í bókum okkar. Hækkun launakostnaðar hefur veruleg áhrif í fyrirtæki eins og okkar þar sem launakostnaður er 75 prósent af rekstrarkostnaði. Auk þess sem mikið af öðrum kostnaði hjá okkur er aðkeypt þjónusta sem einnig hækkar með hækkandi launakostnaði. Við höfum ekki náð að mæta þeim hækkunum að fullu, hvort sem er með hækkun gjaldskrár eða öðrum hætti.“
Gengisþróun reyndist óhagstæð fyrir rekstur fyrirtækisins í Noregi og Bretlandi. „Þar höfum við orðið fyrir tvöföldum áhrifum þar sem ekki einungis er um að ræða styrkingu íslensku krónunnar heldur hefur verið töluverð veiking norsku krónunnar og pundsins undanfarin ár. Á síðasta ári var gjaldfærður umtalsverður kostnaður vegna tímabundinnar lokunar starfsstöðva í þessum löndum en við vonumst til að geta verið samkeppnishæf á þessum markaði aftur í náinni framtíð,“ segir hann.
Mannvit rekur nokkuð stórar skrifstofur í Ungverjalandi og Þýskalandi. Um 50 starfsmenn af 300 starfa erlendis. „Sú starfsemi er aðallega á sviði jarðhita og verkefnin á því sviði flest í Mið-Evrópu. Við sjáum mikil tækifæri á þessu svæði en verkefnin eru unnin af þarlendu starfsfólki í nánu samstarfi við sérfræðinga okkar hér á Íslandi. Það er orðin forsenda fyrir sterkri stöðu Mannvits í Mið- og Austur-Evrópu að hafa þarlendar skrifstofur þegar gengi krónunnar er jafn óstöðugt og raun ber vitni,“ segir Örn.
Rekstur Mannvits reyndist erfiður vegna hærri launa og gengisþróunar
Helgi Vífill Júlíusson skrifar

Mest lesið

„Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“
Viðskipti innlent

KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti
Viðskipti innlent


Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju
Viðskipti innlent


Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs
Viðskipti innlent

VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi
Viðskipti innlent

Jón Guðni tekur við formennsku
Viðskipti innlent

Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent