Magnús Scheving Thorsteinsson, forstjóri Klakka undanfarin sjö ár, hyggst láta af störfum forstjóra félagsins frá og með næstu áramótum. Magnús er sagður hafa tilkynnt stjórn Klakka þetta nýverið. Þá eru starfslokin sögð „í góðri sátt við stjórn og hluthafa félagsins,“ eins og það er orðað í tilkynningu vegna málsins.
Haft er eftir Magnúsi í sömu tilkynningu að hann líti ánægður um öxl og að starfsmenn Klakka geti verið stoltir af árangri undanfarinna ára. „Ég hef verið forstjóri félagsins í sjö ár og mér finnst vera kominn tími til að skipta um vettvang og snúa mér að nýjum verkefnum. Mikið hefur áunnist á undanförnum árum. Við höfum endurskipulagt, byggt upp og selt eignir og fengið mjög gott endurgjald fyrir þær. Ljóst er að afraksturinn er langt umfram þær heimtur sem gert var ráð fyrir í nauðasamningi félagsins árið 2010,“ segir Magnús og bætir við:
„Framundan er stefnumótun fyrir Lykil fjármögnun hf., en fyrir liggur endurskilgreina og efla enn frekar starfsemi félagsins áður en efnt verður til nýs söluferlis. Hefst sú vinna fljótlega. Ég hef ákveðið að farsælt sé að leiðir skilji á þessum tímamótum og vil þakka bæði starfsfólki Klakka og öðru samstarfsfólki fyrir ánægjulegt samstarf.“
Klakki ehf. er eignarhaldsfélag í eigu innlendra og erlendra fjárfesta en félagið fór í gegnum nauðasamninga árið 2010. Lykill fjármögnun hf. er nú langstærsta eign Klakka en flestar aðrar eignir félagsins, s.s. hlutir í tryggingafélaginu VÍS og fjarskiptafyrirtækinu Skipti/Símanum, hafa verið seldar á síðustu árum. Heildar söluandvirði umræddra eigna nemur yfir 56 milljörðum króna.
