Sjóðstjórar evrópska eignastýringarfyrirtækisins BlueBay Asset Management búast við því að ávöxtunarkrafa íslenskra ríkisskuldabréfa lækki um eitt hundrað punkta á næstu tólf mánuðum og að gengi krónunnar styrkist um tíu prósent á sama tíma. Gangi spáin eftir gæti fjárfesting í slíkum bréfum mögulega skilað meira en tuttugu prósenta ávöxtun á tímabilinu.
Þetta kemur fram í nýlegu bréfi fyrirtækisins, sem sjóðstjórinn Mark Dowding skrifar undir, til fjárfesta.
Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa sjóðir á vegum eignastýringarfyrirtækisins keypt ríkisskuldabréf í talsverðum mæli á síðustu dögum. Fyrirtækið hóf innreið sína á hérlendan skuldabréfamarkað árið 2015.
Í bréfinu segist fyrirtækið telja að sterkari króna muni á endanum þrýsta verðbólgu niður og gera Seðlabankanum kleift að lækka vexti á það stig sem tíðkast á öðrum þróuðum mörkuðum.
Um leið geti bankinn takmarkað áhættuna af því að vaxtamunarviðskipti leiði til bólumyndunar í hagkerfinu.
Bent er á að íslenska hagkerfið hafi vaxið hratt á síðustu fimm árum og sé nú, ólíkt því sem áður var, nettó útflytjandi fjármagns. Enn fremur hafi þau fjármagnshöft sem settu voru á í kjölfar hrunsins haustið 2008 verið losuð að nánast öllu leyti.
Sjóðstjórar BlueBay telja jafnframt líklegt að lánshæfiseinkunn ríkissjóðs verði hækkuð í AA-flokk. Og í ljósi þess að ávöxtunarkrafa ríkisbréfa sé meira en fimm prósent og að gengi krónunnar hafi veikst um fimmtán prósent gagnvart evrunni á undanförnum tveimur árum telja þeir einnig að ekki þurfi að líða á löngu þar til fleiri erlendir fjárfestar fari að sýna Íslandi áhuga sem fjárfestingarkosti.
Spá gengisstyrkingu og lægri vöxtum
Kristinn Ingi Jónsson skrifar

Mest lesið

„Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“
Viðskipti innlent


Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju
Viðskipti innlent


KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti
Viðskipti innlent

Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs
Viðskipti innlent

Jón Guðni tekur við formennsku
Viðskipti innlent

Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar
Viðskipti innlent

Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti
Viðskipti innlent

Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út
Viðskipti innlent