Íslenski fasteignamarkaðurinn einkennist nú af byggingu nýrra íbúða. Sést þetta meðal annars á fjölgun þeirra á skrám fasteignasala eða 362 íbúðir yfir landið allt. Aðeins einu sinni frá árinu 2013 hafa fleiri nýbyggingar verið settar á sölu í stökum mánuði.
Hlutfall íbúðaviðskipta yfir ásettu verði sögulega lágt
Hlutfall íbúða sem seljast yfir ásettu verði hefur ekki mælst jafnlágt síðan í byrjun árs 2013. Aðeins 4% íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í janúar áttu sér stað yfir ásettu verði. 14% íbúða seldust á ásettu verði og 83% undir ásettu verði.Í janúar var alls 756 leigusamningum þinglýst hér á landi sem er 16% fjölgun frá sama mánuði í fyrra. Flestum leigusamningum utan höfuðborgarsvæðisins var þinglýst á Suðurnesjum. Þar voru þeir alls 78 talsins sem samsvarar 18% fjölgun frá fyrra ári.
Mesta fjölgun íbúða síðan 2008
Íbúðum á landinu öllu fjölgaði um 2.400 í fyrra og eru þær nú 140.600 talsins. Til samanburðar fjölgaði íbúðum um 1.800 árið 2017. Um er að ræða mestu árlegu fjölgun íbúða síðan 2008. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði íbúðum um 542. Utan höfuðborgarsvæðisins varð mesta fjölgunin í Reykjanesbæ þar sem 227 íbúðir bættust við.7% aukning greiddra húsnæðisbóta milli mánaða í janúar
Húsnæðisbætur eru mikilvægur stuðningur við tekjulága á leigumarkaði. Heildarfjárhæð greiddra húsnæðisbóta í janúar var tæplega 530 milljónir kr. sem samsvarar 7% aukningu frá því í desember þegar 496 milljónir kr. voru greiddar út. Hækkunin skýrist meðal annars af því að félags- og barnamálaráðherra staðfesti breytingu á reglugerð nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur sem hækkaði frítekjumörk húsnæðisbóta frá og með 1. janúar 2019.Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.