Gengi bréfa Icelandair í Kauphöllinni hefur lækkað um tíu prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Viðskipti með bréf í félaginu nema 81 milljón króna það sem af er dagsins. Hrunið má vafalítið tengja flugslysinu í Eþíópíu á sunnudag þar sem 157 fórust og tíðindum af mögulega auknu framlagi Indigo Partners í rekstur WOW air.
Um var að ræða flugvél eþíópíska flugfélagsins Ethiopian Airlines, ET302, sem var á leið frá Addis Ababa til Naíróbí, höfuðborgar Kenía. Hrapaði hún skömmu eftir flugtak. Sams konar flugslys varð í október yfir Jakaarta í Indónesíu, tólf mínútum eftir flugtak.
Flugvélin var af gerðinni Boeing 737 Max en Icelandair gerir út þrjár svoleiðis þotur og hefur kauprétt að fleiri vélum. Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair, segir í Fréttablaðinu í dag að ótímabært sé að tengja slysin tvö saman. Rúmlega 300 vélar sem þessar séu í umferð á degi hverjum um allan heim. Ekkert bendi til að slysið í gær hafi orðið vegna vélarbilunar.
Þá kom einnig fram á laugardaginn að bandaríski fjárfestingasjóðurinn Indigo Partners væri tilbúinn að hækka framlag sitt inn í rekstur WOW air úr 75 milljónum dollara í 90 milljónir dollara.
Financial Times greinir frá því að bréf í flugvélaframleiðandanum Boeing hafi fallið um rúm tíu prósent í New York í morgun og tæp átta prósent í Þýskalandi. Segir að stefni í versta dag Boeing í Kauphöllinni síðan 11. september 2001 þegar hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á Tvíburaturnana í New York.
Hrun hjá Icelandair í Kauphöllinni í morgunsárið

Tengdar fréttir

Kínverjar kyrrsetja Boeing 737 Max 8
Kínversk flugmálayfirvöld hafa ákveðið kyrrsetja Boeing 737 Max 8 þotur kínverskra flugfélaga, eftir hið mannskæða flugslys sem varð í Eþíópíu um helgina.

Indigo íhugar að auka fjárfestingu í WOW
Fjárfesting Indigo Partners í WOW air gæti orðið allt að 90 milljónir dollara, eða 15 milljónum meira en áður var lagt upp með.

Ótímabært að kyrrsetja vélar Icelandair þrátt fyrir slys erlendis
Ekki stendur til að kyrrsetja Boeing 737 Max farþegaþotur Icelandair eða grípa til sérstakra aðgerða. Tvær slíkar þotur hafa undanfarið hrapað stuttu eftir flugtak, í seinna skiptið í Eþíópíu í gær.