Farþegum innanlandsflugsins hafði, samkvæmt tölum Isavia, fjölgað fjögur ár í röð til ársins 2017, þegar heildarfjöldinn náði tæplega 772 þúsund farþegum. En í fyrra stöðvaðist vöxturinn og flugu 34 þúsund færri farþegar innanlands á síðasta ári miðað við árið á undan, fækkaði niður í 737 þúsund farþega.
Dótturfélag Icelandair, sem formlega hefur enn firmaheitið Flugfélag Íslands, er langstærst á markaðnum og þar hafa menn áhyggjur.

Tölur Isavia fyrstu þrjá mánuði þessa árs sýna að farþegum fækkaði um tæp tíu prósent frá sama tíma í fyrra eða sem nemur 17 þúsund manns. Fjöldinn fór úr 179 þúsund farþegum á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs niður í 162 þúsund á sama tíma í ár.
Bogi segir að allt sé nú til skoðunar til að gera reksturinn sjálfbæran, þannig hafi flugáætlun verið skorin niður.
„Við höfum verið að skera niður framboðið og áætlunina. Það er alltaf hætta á því þegar þú ert í flugstarfsemi, - í rauninni tíðni býr til eftirspurn. Þannig er svolítið þessi flugmarkaður.
Og það er ákveðin hætta á því þegar við þurfum að skera niður framboð út af lélegri eftirspurn að það í rauninni bara haldi áfram. Þannig að við þurfum að skoða málið mjög alvarlega,“ segir forstjóri Icelandair.
Bombardier Q400 vélar hafa tímabundið verið settar í millilandaflug til Bergen en Bogi segir ekki áform um að nýta þær vélar til sóknar á nýja markaði erlendis.
„Við erum að nota núna Q400 vélarnar til dæmis eitthvað til Noregs út af rauninni stöðunni á MAX-vélunum. Þannig að þær geta hentað ágætlega inn á svona nærmarkaði í millilandaflugi. En það er ekki á stefnuskránni núna að fara að útvíkka í rauninni hvert Q400 vélarnar fljúga,“ segir Bogi.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: