Borgarráð samþykkti nýlega viðmið fyrir viðræður við olíufélögin um að fækka bensínstöðvum í Reykjavík um helming á næstu sex árum. Stöðvarnar eru um 50 talsins í borginni og fækkar um rúmlega 20 gangi hugmyndirnar eftir. Ætlunin er að nýta lóðir bensínstöðvanna undir íbúðir eða annars konar verslanir.
Forstjóri Olís hefur sagt að honum þyki fækkunin nokkuð brött. Stjórnendur Skeljungs hafa sagt hugmyndirnar eðlilegt framhald af viðræðum við borgaryfirvöld.
Félagið Festi á Krónuna, Elko og N1. Eggert Þór Kristófersson, forstjóri félagsins, segir eðlilega þróun að fækka bensínstöðvum.
„Spurning hvort sex ár sé nægilegur tími, ég er ekki viss um það. En ég held að þessi þróun muni eiga sér stað, engin spurning.“
Færa dælur frá Ægissíðu á Fiskislóð
Aðspurður um tímaramma segir hann raunhæfara að miða við að fækka bensínstöðvum um helming í Reykjavík á tíu árum.Eggert segir að N1 sé það olíufélag sem reki fæstar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
„Þetta kemur auðvitað við alla en við höfum rætt við borgina að loka stöðvum og færa dælur. Á Ægissíðu höfum við óskað eftir því að fá að færa dælurnar á Fiskislóð þar sem við rekum Krónuna og hefja þá uppbyggingu á Ægissíðulóðinni, einhvers konar íbúðabyggð sem dæmi,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festar.