Þetta segir Elísabet Helgadóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs hjá Icelandair, í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis.
Starfsemi Icelandair sé háð árstíðasveiflum, eins og þekkt sé í ferðaþjónustu, þar sem umfang starfseminnar er meira á sumrin en veturna.
Samkvæmt heimildum Vísis munu flugfreyjur og -þjónar hjá Icelandair vera ósáttar með þetta tilboð til flugmanna í ljósi þess að hætt var að bjóða upp á hlutastörf fyrir meirihluta þeirra í fyrra.
Árlega uppsagnir fyrir veturinn undanfarin fimmtán ár
„Síðustu 15 ár hefur félagið brugðist við þessu með því að segja hluta af flugmönnum upp fyrir veturinn en ráðið þá svo aftur að vori fyrir háönn sumarsins,“ segir Elísabet.Að þessu sinni hafi Icelandair hins vegar ákveðið að vinna í öðrum lausnum í samvinnu við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA).
„Í stað þess að grípa til uppsagna, höfum við boðið 64 flugmönnum að minnka starfshlutfall sitt í 50% yfir vetrartímann,“ segir Elísabet.
„Þessar aðgerðir eru einungis tengdar árstíðasveiflu í rekstrinum og hafa áhrif á um 9% flugmanna hjá félaginu sem er svipað hlutfall og á undanförnum árum.“
Aðspurð um hvort flugmennirnir hafi svarað boði Icelandair segir Elísabet að það ferli sé enn í gangi.
118 flugfreyjum - og þjónum fengu afarkost
Flugfreyjur frá Icelandair munu samkvæmt heimildum Vísis vera ósáttar við þessi tíðindi í ljósi afarkosta sem Icelandair setti þeim í fyrra. Þá var meirihluta flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair gert að velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. janúar 2019 eða missa vinnuna.Alls fengu 118 flugfreyjur og -þjónar þennan afarkost og þáðu langflest fulla vinnu samkvæmt svörum Icelandair í október síðastliðnum. Þeir sem höfðu starfað hjá félaginu í þrjátíu ár eða lengur eða náð 55 ára aldri bauðst áfram hlutastarf.