Wesley Moraes er nú orðinn dýrasti leikmaðurinn í sögu Aston Villa eftir að enska félagið borgaði belgíska félaginu Club Brugge 22 milljónir punda fyrir þennan 22 ára gamla framherja.
Wesley Moraes, sem heitir fullu nafni Wesley Moraes Ferreira da Silva, er Brasilíumaður en hefur spilað með belgíska félaginu frá 2016. Hann skoraði 10 mörk í 28 leikjum á síðustu leiktíð.
Það þekkja kannski einhverjir til hans frá árunum með Club Brugge en mun færri þekkja sögu stráksins sem missti föður sinn þegar hann var aðeins níu ára gamall.
Born with one leg longer than the other
Age 9: Lost his father to a brain tumour
Age 15: Started 11-a-side football
Age 16: Became a father to two children
Age 18: Worked in a screws factory
Age 22: Signed by Villa for £22 millionhttps://t.co/QdOelpC73l
— GiveMeSport (@GiveMeSport) July 24, 2019
Þegar menn fóru að skoða leið Wesley Moraes upp í ensku úrvalsdeildina þá komust menn að því að hann hefur ekki átt auðvelt líf síðan að hann fæddist árið 1996 í litlum bæ 200 kílómetrum frá Ríó.
Faðir Moraes fékk heilaæxli og dó þegar hann var aðeins níu ára gamall. Sextán ára gamall var strákurinn búinn að eignast tvö börn með tveimur konum. Sonurinn Yan og dóttirin Maria eru nú bæði orðin sex ára gömul.
Moraes þurfti líka að vinna í verksmiðju frá sextán ára aldri til að safna pening fyrir fjölskyldu sína á meðan hann reyndi samhliða því að koma sér áfram í fótboltanum.
Hann fæddist líka með annan fótinn þremur sentímetrum styttri og fyrsti þjálfari hans í Evrópu, Robert Rybnicek hjá slóvakíska félaginu Trencín, talaði um það hann liti út fyrir að haltra inn á vellinum.
Moraes fékk sitt fyrsta tækifæri í atvinnumennsku með Trencín þegar hann var átján ára gamall. Hann fékk að æfa með félaginu og vann sér inn samning. Eftir aðeins eitt tímabil þar var hann síðan kominn til Club Brugge.
Nú er að sjá hvort þetta ævintýri hafi góðan endi og Wesley Moraes slái í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur.