Þar varð hann fróðari meðal annars um hversu erfitt starfið er líkamlega og andlega, hversu langar vaktirnar eru, hver launin eru og hvernig það er fyrir slökkviliðsfólk að koma á slysstað. Kjartan Atli fékk að æfa reykköfun og stóð sig nokkuð vel.
Þeir slökkviliðsmenn sem ræddu við Kjartan Atla voru sammála um að starfið væri gefandi og skemmtilegt.
Aftur á móti mælist starfsánægja innan starfsstéttarinnar ekki nægilega mikil. Nýtt vaktafyrirkomulag hjá yngri kynslóðinni gæti verið útskýringin en einn mánuðinn vinna slökkviliðsmennirnir minna og fá því minna greitt og í næsta mánuði vinna þeir á lengri vöktum og fá þá meira greitt.
Þetta getur verið óþægilegt, að launin rokki svona upp og niður. Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.