Hildur Ýr Tryggvadóttir greindi frá því á Facebook í gær að henni hefði verið sagt upp störfum. Sagði hún uppsögnina hafa komið í kjölfar þess að hún hefði farið á fund með yfirmanni og starfsmannastjóra þar sem hún greindi frá einelti.
„Á mánudaginn átti ég fund með yfirmanni og starfsmannastjóra íslandspósts og var að leggja framm kvörtun vegna eineltis sem ég hef orðið fyrir á vinnustaðnum að hálfu annarra starfsmanna. Í dag fékk ég þetta bréf! Aðdáunarvert að sjá hvernig svona stórt fyrirtæki tekur á eineltismálum,“ sagði Hildur Ýr.
Í samtali við Mbl.is segir Hildur Ýr um langtímaeinelti að ræða, sérstaklega af hálfu næsta yfirmanns en einnig fleiri. Yfirmaðurinn hafi mismunað henni.
Veikindavottorð og kvartanir á víxl
„Við vísum algjörlega á bug að henni hafi verið sagt upp vegna eineltiskvörtunar,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspóst. Málið sé mun flóknari en það virðist við fyrstu sýn. Ástandið á vinnustaðnum hafi verið rosalega erfitt undanfarin tvö ár.„Orðið einelti er orðið mjög gjaldfellt hugtak. Það er ekkert einelti ef fólk er að rífast.“
Eftir faglega skoðun sérfræðinga hafi ekki verið neinn fótur fyrir neinu einelti.
Facebook-færsla Hildar Ýrar hefur vakið mikla athygli.
„Það hafa myndast einhverjar fylkingar og svo er bara spurning hvor hópurinn er að kvarta undan honum og skilar inn veikindavottorðum þá vikuna,“ segir Birgir.
Brugðist hafi verið við með því að senda inn sálfræðinga, utanaðkomandi sérfræðinga og mannauðsteymi til að koma hópnum í lag. En lítið hafi gengið.
Flestir lifi í stríðsástandi
„Auðvitað er hlutverk mitt og okkar að skapa heilbrigt starfsumhverfi. Það eru næstum því tuttugu aðrir starfsmenn sem lifa í stríðsástandi og vita aldrei hvaðan á þá stendur veðrið. Það er okkar ábyrgð að sjá til þess að fólk mæti í vinnuna og líði vel.“Því hafi verið gripið til aðgerða og alls fjórum starfsmönnum sagt upp.

Ástandið hafi haft slæm áhrif á þá þjónustu sem Íslandspóstur vilji veita á Selfossi.
Fólk verði að vilja vera með í liðinu
Birgir segist vonast til þess að bjartari tímar séu framundan á Selfossi. Farið verði á fullt með starfsmannaþjálfun og leiðtogaþjálfun. Vísar hann til gríðarlega öflugrar starfsmannaþjónustu sem Íslandspóstur veiti.„En þetta byggir allt á því að fólk vilji vera með í liðinu,“ segir Birgir. Það séu ekkert allir sem vilji það.
Forstöðumaður úr höfuðstöðvum Íslandspósts á höfuðborgarsvæðinu hefur verið settur tímabundið í stól stöðvarstjóra á Selfossi til að stýra starfseminni og koma henni aftur í starfhæft ástand.